Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Blaðsíða 11
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júní 2015
Aftur á Frigg
Árið 1991 réði ég mig á Þórunni
Sveinsdóttur (nú Suðurey) sem þá
kom ný til Eyja. Skipstjóri var sá
mikli aflamaður Sigurjón Óskars-
son. Afskaplega vandaður skipstjóri
í alla staði og stóð allt sem hann
sagði. Vorum á ísfiski um haustið en
um áramót var Þórunni breytt í
frystitogara. Um vorið 1992
byrjuðum við á frystingu en ég fann
mig aldrei í frostinu, hafði reynt
það fyrir norðan á Siglfirðing SI
150 og ekki líkað útiverurnar. Þá
réði ég mig á mitt gamla skip Frigg
en þá hafði Óskar á Háeyri keypt
hana og gerði út fram á haust þegar
hún fór í breytingar í Skipalyftunni
og varð Frár VE 78 sem hún er í
dag. Það voru mikil forréttindi að
vera með Óskari.
Óskar á Háeyri
einstakur maður
Óskar á Háeyri formaður á Frá er
einn mesti karakter sem ég hef siglt
með. Þolinmæðin með eindæmum
og húmorinn alveg einstakur. Eins
og Eyjamenn vita kviknaði tvisvar í
veitingastaðnum Skútanum með
stuttu millibili.
Einhverju sinni eftir seinni
brunann var Skari á Háeyri og
einhverjir fleiri á Skútanum að gera
sér glaðan dag. Þar kom blökku-
maður að afgreiða þá með brenni-
vínið. Skari tók manninn tali og
komst að því að hann talaði ágætis
íslensku og spurði svo blámann:
„Lentir þú í báðum brununum
vinur“.
Svona var Skari, sá lífið einhvern
öðruvísi er aðrir og svo einfalt. Eitt
sinn vorum við búnir að taka síðasta
halið austur á Vík í rjómablíðu og
allt orðið fullt. Áhöfnin í aðgerð og
kallinn búinn að setja á fulla ferð til
Eyja. Þá er slegið af eftir 20
mínútur og við héldum að nú ætlaði
kallinn að fara að kasta aftur þó allt
væri fullt. Nei þá kallaði hann
okkur uppá dekk og við vorum
staddir rétt austan við gatið í
Dyrhólaey og við hugsum að nú sé
kallinn kominn með rugluna, keyrir
uppí harða land og stoppar þar! En
þá kom „þetta er bara svo fallegt
strákar að þið verðið að sjá þetta“.
Sögur og skrautlegir
karakterar
Svona var þetta stundum. Skari var
mikill sögumaður og oft var setið í
borðsalnum yfir kallinum langt
fram á nótt. Leysti hann einu sinni
af klukkan hálf ellefu um kvöld.
Fór niður um eitt um nóttina til að
ræsa í hífop, þá var kallinn með alla
peyjana í sögustund. Við hífðum og
það var lítið í. Eftir aðgerðina um
klukkutíma seinna var kall kominn
aftur í borðsalinn í meiri sögustund.
Þetta voru skemmtilegir tímar um
borð í Frá VE og margir skrautlegir
karakterar þar um borð. Nefna skal
ég nokkra.
Tryggvi beikon, vélstjóri. Júlli
kokkur en hann og Tryggvi elduðu
oft grátt silfur saman. Árni Marz,
vélstjóri eða Massinn eins og við
kölluðum hann. Gústi Lása,
stýrimaður. Gylfi heitinn Úra sem
kallaður var Polli róni því hann datt
einu sinni í það með áhöfninni.
Ómar Sveins, Tói Vídó, Sigmar
Þröstur markmaður og fleiri og
fleiri. Það væri hægt að skrifa
marga hillumetra af sögum af
þessum snillingum en við látum það
bíða betri tíma.
Á frosti á Hampiðjutorginu
En aftur að fyrstu skuttogurunum.
Á þessum fyrstu skuttogurum okkar
var blóðgað og rist fyrir uppúr
móttökunni í sérstök blóðgunarkör
sem sjór var á. Þessi kör sem voru
þrjú, tóku allt að tvö til þrjú tonn
hvert. Svo var slitið innanúr áður en
fiskurinn fór í þvottatromlu og
þaðan í lestina og settur í 90 lítra
kassa, 60 kg af fiski í hverjum
kassa. Það veitti ekki af þessum 16
köllum þegar vel fiskaðist. Allir
komu í aðgerð þegar mest gekk á
eins og í grálúðunni á Hampiðju-
torginu. Þá voru yfirleitt alltaf tveir
kallar í trolli uppá dekki. Það var
alltaf rifið. Um 1980 var fækkað um
einn á togurunum, annan vélstjóra
og þar eftir vorum við alltaf 15 á.
Of langt gengið í fækkun
Nú eru blikur á lofti um mönnun
fiskiskipa og útgerðarmenn hafa
gengið alltof langt í fækkun á
mannskap. Dæmi eru um að menn
hafi ekki komist frá störfum sínum
til að hlúa að slösuðum manni. Það
er enginn til að taka við ef eitthvað
fer úrskeiðis og ef eitthvað getur
farið úrskeiðis gerist það einhvern-
tímann, eins og sjómenn þekkja.
Kjarasamningurinn okkar er
misnotaður herfilega til að spara
nokkrar krónur á kostnað öryggis
sjómanna. Þessu verðum við að
breyta með öllum ráðum.
Til að byrja með verðum við að
krefjast lágmarksöryggismönnunar.
Hún ætti að vera þannig að hvert
skip sé tekið út með tilliti til
öryggis áhafnar. Þá er ég líka að
tala um lágmarkshvíld, því eins og
dæmin sanna hafa sjómenn sofnað
við stýrið, menn eru vansvefta með
hörmulegum afleiðingum. Þessu
verður að fylgja eftir áður en verra
hlýst af. Hvernig við snúum þessari
þróun við er svo spurning. Gerum
við það með ákvæðum í kjarasamn-
ingi eða með því að krefjast nýrra
laga um mönnun skipa sem myndi
lúta opinberu eftirliti og þá sérstakri
mönnunarnefnd sem tæki á
deilumálum um mönnunina?
Fiskverðsmálin óskiljanleg
Fiskverðsmálin eru svo sér kapítuli
og eiginlega óskiljanlegt að þau séu
í þeim farvegi sem þau eru, í
þjóðfélagi sem vill kenna sig við
frelsi á öllum sviðum. (Bara ef það
hentar mér.)
Þetta verðum við að skoða mjög
vandlega og krefjast úrbóta og vera
harðir á því. Eins er með hin ýmsu
mál sem við höfum dregist afturúr
öðrum stéttum með, vegna þess að
samningar sjómanna hafa verið
lausir í bráðum fimm ár. Einhver
samtöl hafa átt sér stað um nýjan
kjarasamning en sú vinna gengur
hægt. En orð eru til alls fyrst og við
skulum líta til framtíðar með
bjartsýni í huga.
Við náðum kjarasamningi við
Landssamband Smábátaeigenda LS
árið 2012. Nokkuð merkur áfangi
að mínu mati. Nokkur ágreiningur
hefur verið um túlkun á ákvæði
samningsins um skiptaprósentur og
hvort útgerðarmönnum sé heimilt
að draga frá olíukostnað áður en til
skipta kemur. Risu málaferli útaf
þessu og þar höfðu sjómenn fullan
sigur í Hæstarétti.
Stöndum á rétti okkar
Á síðustu misserum hafa fallið tveir
dómar um veikinda- og slysarétt
sjómanna sem eru í skiptikerfi.
Þessi mál voru í nokkurri óvissu
vegna tveggja mismunandi dóma
sem fallið höfðu áður. Tveir nýjustu
dómar Hæstaréttar taka af allan vafa
um þessi mál og eru mjög skorin-
orðir og ekki hægt að misskilja þá.
Eitthvað ætla útgerðarmenn að
skirrast við að gera upp veikinda-
og slysarétt sjómanna samkvæmt
þessum nýju dómum. Ætla að mæta
af fullri hörku og gera upp eftir sínu
höfði. Ég skora á sjómenn að standa
saman gegn þessum aðferðum, hafa
samband við sitt félag ef einhver
vafi er á réttu uppgjöri.
Samþjöppun áhyggjuefni
Ég hef nokkrar áhyggjur af því
ástandi sem hefur skapast í
íslenskum sjávarútvegi með
samþjöppun aflaheimilda, kross-
eignatengslum stóru fyrirtækjanna í
hvort öðru og fyrirtækjum tengdum
sjávarútveginum. S.s. eigna-
tengslum útgerðanna í fiskmörkuð-
unum. Við verðum að spyrna við
fótum og gera upp við okkur hvort
þessi tengsl séu eðlileg. Það er ekki
sjálfgefið að íslenskir sjómenn segi
já og amen við hverju sem er.
Að lokum óska ég öllum ís-
lenskum sjómönnum og fjöl-
skyldum þeirra til hamingju með
Sjómannadaginn, hátíðisdag
íslenskra sjómanna. Og kærar
þakkir Eyjamenn fyrir að fóstra mig
þessi 26 ár, er betri maður fyrir
vikið.
Takk fyrir mig.
Starfsemi stéttarfélaga hefur
breyst mikið á undanförnum
árum og er þjónustan stöðugt að
aukast. Það er ekki bara spurn-
ing um laun og kjör og að standa
vaktina gagnvart atvinnurekend-
um. Í dag koma félögin inn á
miklu fleiri þætti eins og t.d.
rekstur orlofshúsa og íbúða og
nú er hægt að fá keypta flugmiða
á hægstæðu verði hjá félaginu
og far með fullum afslætti með
Herjólfi án þess að þurfa að
punga út tugum þúsunda.
Þessu fékk blaðamaður að kynnast
þegar hann ræddi við Þorstein Inga
Guðmundsson sem tók við starfi
formanns Sjómannafélagsins Jötuns
þann fyrsta júní sl. Hann tekur við
af Valmundi Valmundssyni sem nú
er formaður Sjómannasambands
Íslands. Fyrsta verkefnið var
undirbúningur Sjómannadagsins
eða öllu heldur Sjómannahelgar-
innar því nú standa hátíðahöldin frá
fimmtudegi til sunnudags. Það er
ekki annað hægt að segja en að vel
hafi tekist til og að veðurguðirnir
hafi verið sjómönnum hagstæðir um
helgina. Sennilega átt það inni eftir
erfiða vertíð.
„Mitt starf er líka að sjá um
reksturinn á Alþýðuhúsinu þar sem
skrifstofur félagsins eru. Núna erum
við að klára að gera klárt fyrir fund
á vegum VR sem haldinn verður í
hádeginu á morgun og svo verða
Eykyndilskonur með kaffiveitingar
hér á Sjómannadaginn,“ sagði
Þorsteinn þegar blaðamaður ræddi
við hann á fimmtudaginn í síðustu
viku. Þorsteinn bjó í Reykjavík frá
2000 en var hér áfram til 2008.
Strengurinn slitnaði ekki því hann
kom fyrst inn í stjórn Jötuns 1976
og var varamaður á meðan hann bjó
uppi á landi.
„Það var mitt hlutverk að sjá um
íbúðirnar sem félagið á í Reykjavík.
Sjá um viðhald og afhenda fólki
lykla sem tekur þær á leigu allt frá
einni nótt upp í eina viku. Það eru
ekki bara félagsmenn sem nýta sér
íbúðirnar. Þær standa öðrum opnar
þegar þær eru lausar sem kemur sér
vel, ekki síst fyrir fólk sem er að
leita sér læknisaðstoðar og þarf
húsaskjól í eina nótt. Nú taka
Valmundur og Bogga, Björg Sigrún
Baldvinsdóttir, við þessu hlut-
verki,“ sagði Þorsteinn sem lýsti
þessu sem erilsömu en um leið
þakklátu starfi.
„Það má segja að formannsstarfið
hjá Jötni sé tvöfalt, annars vegur að
fara fyrir stjórn félagsins og hafa
yfirumsjón með daglegum rekstri
og svo hins vegar reksturinn á
Alþýðuhúsinu. En ég er ekki einn,
kletturinn í þessu er Hulda B.
Skarphéðinsdóttir sem starfað hefur
hjá félaginu frá 2006. Ég kem líka
að Sjómannadagsráði þar sem eru
að koma inn ungir og öflugir menn.
Það sem snýr að félagsmönnum
eru ýmis álitamál sem koma upp.
M.a. vegna slysa og veikinda
sjómanna. Þeir eiga rétt á bótum úr
sjúkrasjóði félagsins en í hann
rennur eitt prósent af öllum tekjum
félagsmanna. Við höfum það
hlutverk að koma þessum peningum
út því það hefur engan tilgang að
sjóðurinn safni peningum. Það sem
manni kannski svíður mest er að nú
geta konur ekki fætt börn í
Vestmannaeyjum. Það er mikill
kostnaður fyrir þá sé hér búa og
sjómenn finna fyrir því eins og
aðrir. Ég veit dæmi þess að
sjómaður varð fyrir vinnutapi upp á
hálfa milljón sem er ansi hár
aukaskattur á okkur Eyjamenn.“
Til að létta undir með félags-
mönnum hefur Jötunn og reyndar
fleiri stéttarfélög í bænum keypt
mikið magn flugmiða af Flugfélag-
inu Erni á góðum afslætti sem þeir
selja svo félagsmönnum á sama
verði. „Þá kaupum við aflsáttarkort
af Herjólfi og getur fólk keypt miða
hjá okkur eins og það þarf í hverja
ferð. Nóg er það nú dýrt samt að
komast hér á milli. Fjölskylda sem
fer í Þorlákshöfn og tekur klefa er
að borga yfir 20.000 krónur bara til
þess eins að komast upp á þjóðvegi
landsins. Ansi hár skattur þó að fólk
nýti sér 40 prósent afsláttarkortin.
Þarna teljum við okkur vera að létta
fólki að sækja eðlilega þjónustu
uppi á landi og að komast af og til í
frí. Með þessu og að bjóða upp á
íbúðir á góðu verði í Reykjavík má
segja að við séum að sjá um
þjónustu sem ríkið ætti að sinna“
Þorsteinn segist taka við góðu búi
af Valmundi sem hafi byggt upp
góð tengsl við sjómenn sem sé
nauðsynlegt fyrir stéttarfélag ætli
það að standa undir nafni. „Það á
ekki síst við um yngri mennina sem
eru að verða meðvitaðri um gildi
félagsins. Finnst það orðið skipta
máli. Stéttarvitund er grundvallar-
atriði ætli menn eða ná árangri í að
ná sínum málum fram,“ segir
Þorsteinn en hvað er efst á baugi í
hagsmunamálum sjómanna í dag?
„Það er númer eitt, tvö og þrjú að
koma á samningum við sjómenn
sem hafa verið samningslausir í
fjögur ár. Það á aldrei slaka á í
öryggismálum. Þó margt hafi
áunnist í þeim efnum erum við að
sjá alvarleg slys á yngri mönnum.
Síðasti vetur var mjög erfiður og
hættan er alltaf mest við þær
aðstæður. Að menn uggi ekki að sér
ef eitthvað fer úrskeiðis. Ef slys
verða kemur sjúkrasjóðurinn að
góðum notum svo höfum við líka
aðgang að mjög hæfum lögfræð-
ingum sem sjá strax hver réttur
manna er eftir slys.“
Hvernig sérðu framtíðina hjá Jötni?
„Ég er mjög sáttur við stöðuna eins
og hún er og við munum halda
áfram að sækja. Það eru mörg
verkefni framundan og hingað
koma margir. Það sýnir góðan hug
manna til félagsins og með þetta
bakland á félagið að geta staðið
undir væntingum sem félagsmenn
og samfélagið allt gerir til þess. Og
ég mun ekki láta mitt eftir liggja,“
sagði Þorsteinn að endingu.
Þorsteinn Ingi Guðmundsson :: Nýr formaður
Sjómannafélagsins Jötuns:
Númer eitt, tvö
og þrjú að koma
á samningum
:: Hafa verið samningslausir í fjögur ár :: Það á aldrei
slaka á í öryggismálum :: Enn verða alvarleg slys
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is