Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Síða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júní 2015 Það var árið 1982 sem Jónína Björk Hjörleifsdóttir, eða Jóný eins og hún er oftast kölluð, og Bergur Guðnason fóru að stinga saman nefjum. Það var svo 24 maí 1986 sem þau giftu sig, á afmælisdegi Jónýar. „Sá dagur var nú eiginlega valinn til að auðvelda Bergi lífið“ segir Jóný. „Núna þegar ég óska honum til hamingju með brúðkaupsaf- mælið man hann eftir því að óska mér til hamingju með afmælið“ bætir hún við og hlær. Saman eiga þau Esther sem er fædd 1985, lítinn dreng sem þau misstu 1997 þegar Jóný var gengin 6 mánuði, Ingvar 1989, Þóri 1992 og Ingu Hönnu 1999. Þegar Jóný og Bergur byrjuðu að vera saman reyndi Jóný að fá hann af sjómennskunni, hann fékk sér vinnu í landi fyrsta árið en gafst upp og hélt aftur út á sjó. Hann hefur frá þeim tíma verið á Gullbergi VE-292. Ekki vön sjómennskunni „Ég var bara ekki vön sjómennsk- unni“ segir Jóný. „Það hafði aldrei verið nein sjómennska í kringum mig og ég vissi bara ekkert hvað ég var að fara út í. Ég fann það þó fljótt að hann átti bara miklu meira heima úti á sjó heldur en í landi og varð bara að sætta mig við það.“ Jóný var lengi að venjast því að hann væri sjaldan heima, en hún gerði það að lokum enda aðlögunar- góð. Bergur fór þó í Stýrimanna- skólann árið 1987 og útskrifaðist þaðan 1989 og var þá í landi allan þann tíma. „Það var pabbi sem kom með umsókn í Stýrimannaskólann og ýtti Bergi í að sækja um. Okkur fannst við ekki hafa efni á því en pabbi taldi okkur á að gera það, annað myndi bara reddast og það reddaðist. Það var voðalega gott að hafa hann heima þessi tvö ár og tók auðvitað tíma að venjast því þegar hann fór aftur út á sjó,“ segir Jóný. Jóný var ófrísk báðar annirnar sem Bergur var í skólanum. Á fyrri önninni misstu þau son sinn en á seinni önninni fæddist Ingvar sem var svo skírður í útskriftarveislu pabba síns. Heima með börnin Myndaðist einhvern tíma togstreita á milli þeirra hjóna þegar Bergur kom í land? „Jú, auðvitað gerðist það alveg,“ segir Jóný. „Aðal togstreitan var þó kannski þegar hann ætlaði eitthvað að skipta sér af uppeldi barnanna sem ég var að ala upp,“ bætir hún við brosandi. „En hann var, og er enn, voðalega hjálpsamur þegar hann kemur heim, gengur til dæmis bara beint inn í eldhúsið og sér bara um það, eldamennskuna og öllu sem eldhúsinu fylgir og á mikið hrós skilið fyrir það.“ „Jóný var nú heldur ekkert að breyta neinu á heimilinu þegar ég var á sjó,“ bætir Bergur við. „Ég geng að öllu vísu þegar ég kem heim og beint í mín verk, sem er mjög gott og þægilegt.“ Jóný ákvað það strax að reyna að vera heima með börnin, hún lét aðra hluti bíða til að geta séð alfarið um uppeldið. „Þær voru nokkrar í hverfinu sem voru líka heima, það var mikill samgangur á milli okkar, við skiptumst á að baka og bjóða í kaffi og pössuðum fyrir hver aðra.“ Langar útiverur Jóný segir að Bergur hafi kannski minnst verið heima þegar Esther var lítil en þá voru útiverurnar langar og hann í burtu í nokkrar vikur í einu. „Ég man eftir því einu sinni þegar Esther var lítil og Bergur búinn að vera í burtu í einhverjar sex eða átta vikur. Hann var á leið í land og ég var voða spennt að fara niður á bryggju að ná í hann. Ég sagði Esther að nú væri pabbi að koma heim og við værum að fara að sækja hann. Litla skottan skildi ekkert í spenningi móður sinnar, horfði á mig og sagði, „Æi mamma, við eigum mynd af honum,“ segir Jóný og hlær. Hvernig finnst þér aðstæður sjómanna hafa breyst á þessum 30 árum? „Það er ótrúlega margt sem hefur breyst á þessum árum. Skipin eru stærri og betri og allur aðbún- aður um borð til fyrirmyndar. Mér finnst allir líka miklu varkárari heldur en áður“ segir Jóný. „Samskiptin við land eru auðvitað mikið betri líka,“ bætir Bergur við. Oft hrædd í brælum „Núna er hægt að hringja heim og allir eru í netsambandi um borð,“ bætir hann við, en þau hjónin muna þá tíma þegar aðeins var hægt að hringja heim í gegnum talstöðina og allir að hlusta, þá var ekki mikið einkalíf. Jóný segist oft verða hrædd um Berg þegar hann er á sjó. „Það er óþægilegt að hugsa til hans úti á sjó í skítabrælu, sérstaklega þegar hann er á loðnu og er oft lengi í burtu.“ Báðir synirnir hafa prófað sjómennskuna. Yngri sonurinn, Þórir, fann sig ekki á sjónum en eldri sonurinn, Ingvar, hefur lagt sjómennskuna fyrir sig,var um tíma með pabba sínum á sjó en er nú farinn að róa á litlum línubát í Noregi. „Auðvitað finnst mér stundum óþægilegt að hugsa til hans þar, en það er ævintýraþráin sem togar í hann og maður verður bara að vona það besta“ segir Jóný um sjómennsku sonar síns. Á listnámsbraut og sjúkraliðanám Jóný hefur ekki setið auðum höndum undanfarin ár. Árið 1998 veiktist Hjörleifur, faðir Jónýar. „Við tók mjög erfiður tími og ég varð eitthvað eirðarlaus og fann mig ekki í neinu,“ segir Jóný. „Þá fór ég að fikta við að teikna, aðallega rissa og krassa. Ég fann mig alveg í þessu og keypti mér svo leirofn í kjölfarið,“ heldur hún áfram. Árið 2000 fór hún svo á myndlist- anámskeið hjá Steinunni Einars- dóttur og eftir það, skráði hún sig í fjarnám á listnámsbraut frá Borgarholtsskóla. Haustið 2012 var svo boðið upp á sjúkraliðanám og skellti hún sér í það og útskrifaðist sem sjúkraliði vorið 2014 og svo sem stúdent haustið sama ár. Hún nýtir sjúkra- liðanámið í dag og vinnur í íhlaupum á Hraunbúðum. Listin er þó það sem heillar mest og langar hana að læra meira, þó aðallega í leir og kol. Jóný opnaði sína fyrstu einkasýningu þann 5. júní síðast- liðinn í Einarsstofu. „Þann dag hefði pabbi orðið 90 ára og fannst mér það því vel við hæfi“ segir Jóný. Á sýningunni er hún aðallega með olíumyndir, kolaverk og mosaík og hafa undirtektirnar verið góðar. „Það komu svakalega margir á sýninguna um helgina“ segir Jóný um undirtektirnar. „Í tilefni dagsins vorum við svo líka búin að hóa öllum systkinum saman og vorum því með hálfgert ættarmót líka“. Jóný er afar þakklát fyrir þessar góðu viðtökur og einnig þakklát öllum þeim sem komu á sýninguna. Enn er þó tími fyrir þá sem misstu af þessu um helgina því sýningin verður uppi til fimmtudags. Útbjó gjöf fyrir Thierre Henry „Mesti heiðurinn sem ég hef upplífað í listinni var fyrir nokkrum árum þegar Jói Ragg, sem þá var formaður Arsenal klúbbsins á Íslandi, kom til mín og bað mig um að búa til verk sem hann ætlaði að afhenda Thierre Henry á fundi á Englandi. Ég bjó til skál með mynd af Heimakletti því Jói vildi hafa þetta tengt Vestmannaeyjum og var Henry afhent þetta með mikilli viðhöfn. Henry var hæstánægður með verkið og sagði að loksins fengi hann eitthvað sem konan sín gæti notið líka. Þetta var mjög skemmtilegt“ segir Jóný hæst- ánægð. Gaman að ferðast En hvað gera þau hjónin helst í frístundum sínum? „Okkur finnst mjög gaman að ferðast, bæði innanlands og utan“ segir Jóný og segist alveg vita hvaðan eldri sonurinn hafi ævintýraþrána. Þau fjárfestu í hjólhýsi fyrir nokkrum árum en hafa þó ekki verið alveg jafn dugleg að nota það eins og þau hefðu viljað. Í fyrra skelltu þau sér svo í tveggja vikna mótorhjólaferð. „Við byrjuðum á því að fara til Færeyja í þrjá daga, þaðan fórum við svo til Danmerkur og héldum svo til Svíþjóðar.“ Jóný sat aftaná hjá Bergi sem naut sín í mótor- hjólaástríðunni. „Í rauninni hefðum við þurft miklu fleiri daga“ segir Bergur um ferðina. Planið var að enda í Svíþjóð til að fylgjast með Ingu Hönnu, dóttur þeirra, sem var þar að keppa. „Hún sagði okkur að við ættum endilega að koma og fylgjast með henni keppa, en bað okkur vinsamlegast um að mæta ekki í mótorhjólagöllunum“ segir Jóný og hlær. Nú eiga þau orðið þrjú barnabörn sem eru dugleg að vera hjá ömmu og afa. Jóný er með yngsta barnabarnið, Þórhildi Helgu sem er tveggja ára á daginn meðan mamman er í vinnu þar sem sú stutta er ekki komin með pláss hjá dagmömmu eða leikskóla ennþá. „Þetta er voðalega gaman“ segir Jóný um ömmuhlutverkið. „Það eru forréttindi að fá að einbeita sér að barnauppeldinu og fá að koma að uppeldi barnabarnanna. Svo leyfum við bara ævintýraþránni að njóta sín þegar Bergur er kominn á eftirlaun“ segir hún að lokum og hlær. Jónína Björk Hjörleifsdóttir var ekki sátt við að hafa sinn mann á sjó en sætti sig við það: Aðal togstreitan þegar hann skipti sér af uppeldi barnanna sem ég var að ala upp :: Var og er voðalega hjálpsamur þegar hann kemur heim :: Gengur í allt í eldhúsinu :: Á mikið hrós skilið fyrir það Guðrún mary ÓLaFSdÓTTir gudrunmary@eyjafrettir.is Jóný ásamt fjölskyldunni. Fyrir aftan eru börnin hennar Þórir, Esther, inga Hanna og ingvar. Fyrir framan eru þau hjónin Jóný og Bergur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.