Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Page 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júní 2015
KFS vann sinn þriðja sigur í fjórum
leikjum á laugardaginn þegar
Káramenn komu í heimsókn. Það er
augljóst að KFS fer betur af stað en
margir áttu von á þar sem liðið
hefur níu stig eftir fjórar umferðir.
Káramenn sáu aldrei til sólar í
leiknum en Kjartan Guðjónsson
kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik eftir
glæsilega sendingu Einars Kára-
sonar. Káramenn áttu sinn besta
kafla rétt fyrir seinna mark KFS en
það gerði Sigurður Grétar Benónýs-
son með flottu skoti af stuttu færi.
Eyjamenn sigldu sigrinum í höfn á
lokamínútunum en Halldór Páll
Geirsson átti stórleik í markinu.
Opna Ísfélagsmótið var haldið í
sól og blíðu síðasta föstudag og
var þátttakan góð, samtals tóku
72 einstaklingar þátt og voru
vinningar í mótinu með glæsi-
legasta móti.
Úrslit mótsins urðu að í forgjafar-
flokki 0-10,4 var Gunnar Geir
Gústafsson var með besta skor án
forgjafar, 70 högg. Í fyrsta sæti varð
Guðjón Grétarsson með 37 punkta,
í öðru sæti Huginn Helgason einnig
með 37 punkta og í þriðja Grétar
Þór Eyþórsson með 36 punkta.
Í forgjafarflokki 10,5 -28,0 var
Ágúst Emil Grétarsson í fyrsta sæti
með 40 punkta, Guðlaugur Gísli
Guðmundsson í öðru sæti með 38
punkta og í þriðja sæti Tómas Aron
Kjartansson með 38 punkta.
Í sjómannaflokki var Örlygur
Helgi Grímsson með besta skor, 69
högg. Í fyrsta sæti Albert Sævars-
son með 39 punkta, í öðru sæti
Brynjar Smári Unnarsson með 39
punkta og í þriðja sæti Kristinn
Sigurðsson einnig með 39 punkta.
Auk þess voru veitt fjöldi af
aukavinningum.
Fótbolti | KFS 2:0 Kári:
KFS fer vel af stað
Golf | Opna
Ísfélagsmótið:
Gunnar Geir
og Örlygur
Helgi með
besta skor
Staða náms- og
starfsráðgjafa við GRV
Staða náms- og starfsráðgjafa við Grunnskóla Vest-
mannaeyja er laus til umsóknar skólaárið 2015-2016.
Menntun sem náms- og starfsráðgjafi, skilvirkni og mark-
viss vinnubrögð, hæfni og lipurð í samskiptum, drifkraftur og
áhugi á að gera góðan skóla enn betri eru nauðsynlegir
þættir.
Í Grunnskóla Vestmannaeyja eru um 540 nemendur.
Stöðugildið er 50% og eru laun greidd skv. kjarasamningi KÍ
og LN.
Umsóknarfrestur er til 22. júní. nk.
Sigurlás Þorleifsson skólastjóri, sigurlas@grv.is, veitir nánari
upplýsingar um starfið í síma 488-2300 og 868-4350.
Vestmannaeyjabær
Ráðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159,
sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is
V
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir,
frændi og vinur.
Þorsteinn Elías Þorsteinsson
frá Vestmannaeyjum
lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 8. júní.
Útför hans verður auglýst síðar,
Kolfinna Þorsteinsdóttir
Kristín Elsa Þorsteinsdóttir
Þorsteinn Sigtryggsson, Anna Kristín Hauksdóttir
Snæborg Þorsteinsdóttir, Agnar Torfi Guðnason
Guðlaug F. Þorsteinsdóttir
Hrefna Haraldsdóttir
og systrabörn.
V
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts móður okkar,
Erlu K.L. Baldvinsdóttur,
Hraunbúðum Vestmannaeyjum.
Þökkum starfsfólki Hraunbúða einstaka
alúð, natni og fagmennsku.
Gísli Kristjánsson, Baldvin Kristjánsson, Páll Kristjánsson,
Snjólaug Kristjánsdóttir, Finnur Kristjánsson og fjölskyldur.
SELFOSS: Hlaupið frá BYKO í Langholti kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 2,2 km, 4,8 km og 5,7 km. Forsala:
fimmtudag 11. júní og föstudag 12. júní kl. 14-18 í
Krónunni og á hlaupadag kl. 09:00-11:00 í Byko.
Ókeypis í sund eftir hlaup (með fyrirvara um að
framkvæmdum við laugina sé lokið).
HAMRATUNGA: Hlaupið frá Árnesi LAUGAR-
DAGINN 20. JÚNÍ kl. 11:00. Vegalengdir í boði 2 km,
3 km og 4 km. Ókeypis í sund að loknu hlaupi.
SÓLHEIMAR: Hlaupið frá Grænu könnunni,
Sólheimum kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 2,5 km og
5 km. Forsala í Kertagerðinni í síma 422 6066 / 893
9984. Athugið að nauðsynlegt er að panta boli eigi
síðar en 5. júní svo þeir séu til fyrir hlaupið. Ferskt
lífrænt ræktað grænmeti frá Garðyrkjustöðinni
Sunnu eftir hlaup og ókeypis í sund að loknu hlaupi.
HVERAGERÐI: Hlaupið frá sundlauginni í Lauga-
skarði kl. 14:00. Vegalengdir í boði: 3 km og 6 km.
Forsala í Bónus í Hveragerði 11. og 12. júní kl 16-19.
ÖLFUS: Gengið/hlaupið FIMMTUDAGINN 18. JÚNÍ
kl. 18:00 um Ölfus. Nánari upplýsingar hjá Herdísi
Reynisdóttur í s. 864 4434
HRAUNBORGIR: Hlaupið frá Þjónustumiðstöðinni í
Hraunborgum kl. 13:00. Forsala í þjónustumiðstöð-
inni. Ókeypis í sund fyrir þátttakendur.
ÞORLÁKSHÖFN: Hlaupið frá íþróttahúsinu kl.12:00.
Létt upphitun frá kl. 11:30. Vegalengdir 2,5 km og
5 km. Forsala í íþróttamiðstöðinni þriðjudag 9. júní
og fimmtudaginn 11. júní kl. 17-18. Ókeypis í sund að
hlaupi loknu.
EYRARBAKKI: Hlaupið frá Rauða húsinu kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 3 km og 5 km. Forsala
í versluninni Bakkinn 1. júní kl. 15-17. Ókeypis
í sund á Stokkseyri eftir hlaup.
STOKKSEYRI: Hlaupið frá Sundlaug Stokkseyrar
kl. 11. Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5 km. Forsala í
sundlauginni 12. júní kl. 17:00-18:00 og á staðnum
á hlaupadag. Ókeypis í sund á Stokkseyri eftir hlaup.
FLÚÐIR: Hlaupið frá íþróttahúsinu á Flúðum kl.
11.00. Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5 km. Ókeypis
í sund að loknu hlaupi.
HELLA: Hlaupið frá Íþróttahúsinu á Hellu kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 3 km og 5 km. Forsala í Lyf og
heilsu. Ókeypis í sund að hlaupinu loknu.
ÞYKKVIBÆR: Hlaupið frá íþróttahúsinu kl.
10:30. Vegalengdir í boði 1 km, 3 km og 5 km.
Ungmennafélagið verður með pylsusölu eftir hlaup.
HVOLSVÖLLUR: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni á
Hvolsvelli kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 3 km og 7 km.
Forsala í Lyf & Heilsu á Hvolsvelli. Ókeypis í sund að
loknu hlaupi.
SELJALANDSFOSS: Hlaupið frá Seljalandsfossi
kl. 14:00. Vegalendir í boði: 2 km og 5 km.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR: Hlaupið frá
íþróttamiðstöðinni kl. 11:00. Vegalengdir í boði:
1 km, 3 km og 5 km. Ókeypis í sund fyrir
þátttakendur eftir hlaup.
VESTMANNAEYJAR: Hlaupið frá íþróttamið-
stöðinni kl. 12:00. Vegalengdir í boði: 2,2 km, 3,5 km
og 7 km. Forsala í Active.
VÍK: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 3 km, 5 km og 10 km. Ókeypis
í heita pottinn að loknu hlaupi.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ laugardaginn 13. júní.