Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Qupperneq 16

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Qupperneq 16
B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19 Vikutilboð SuShi frá osushi Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30 Tökum niður pantanir ! S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir Vinnslustöðin hf. (VSV) skilaði 7,2 milljóna evra hagnaði eftir skatta á árinu 2014, jafnvirði 1140 milljóna króna. Á árinu 2013 nam hagnaður félagsins 11,5 milljónum evra eða um 1760 milljónum króna. Þetta kom fram á aðalfundi VSV í síðustu viku. Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður sagði í skýrslu stjórnar að í ljósi loðnubrests í fyrra yrði að segjast að afkoma félagsins hafi verið vel viðunandi. Samþykkt var á aðalfundinum að greiða hluthöfum, 247 talsins, alls 8 milljónir evra í arð, jafnvirði tæplega 1200 milljóna króna. Arður sem hlutfall af markaðs- hlutdeild hlutafjár er rétt rúm sex prósent. Mikið er framundan hjá Vinnslu- stöðinni. Nýr togari er í smíðum í Kína, Breki VE, og gert ráð fyrir að hann verði afhentur vorið 2016. Þá hefur VSV keypt tvö skip af HB Granda, Ingunni AK og Faxa RE, sem nefnd verða Ísleifur VE og Kap VE. Með í kaupum fylgdu aflaheim- ildir í loðnu sem svarar til 0,7% af heildarkvótanum. Hlutdeild VSV í heildarkvóta loðnu er þar með kominn í um 11%. „Allar þessar ráðstafanir efla félagið og treysta stoðir þess. Þær sýna líka að hér ríkir hreint engin kyrrstaða, heldur góður stígandi í uppbyggingunni í anda málsháttarins góða „sígandi lukka er best,“ sagði Guðmundur Örn. Þá kom fram að hafnar eru framkvæmdir við tvo hráefnisgeyma á athafnasvæði VSV og fljótlega verður boðin út stækkun frysti- geymslu félagsins á Eiði. Ný mjölgeymsla er á teikniborðinu og nýtt uppsjávarfrystihús sömuleiðis. Komið var inn á viðskiptahindranir rússneskra stjórnvalda gagnvart íslenskum fyrirtækjum og sagðar eru tæknilegar. Þær hafa leitt til þess að útflutningur til Rússlands hefur í reynd stöðvast. VSV hefur brugðist við þessu með því meðal annars að stækka og þétta sölunet sitt í öðrum álfum, einkum í Japan, Kína og Bandaríkjunum. Veiðigjöld hafa margfaldast Vinnslustöðin greiðir 519 milljónir króna í veiðigjöld til ríkisins á yfirstandandi fiskveiðiári og áætlar að greiða 865 milljónir króna vegna næsta fiskveiðiárs. Er það marg- földun því fiskveiðiárið 2011 til 2012 greiddi félagið 192 milljónir króna í veiðigjöld. VSV höfðaði mál gegn ríkinu vegna sérstaka veiðigjaldsins, sem félagið telur að brjóti gegn stjórnarskránni. Málflutningur verður að líkindum í september 2015. VSV höfðaði annað mál gegn ríkinu á grundvelli álits frá Umboðsmanni Alþingis. Það mál var þingfest núna í apríl og bíður greinargerðar ríkisins. Þar lætur félagið reyna á skaðabóta- skyldu vegna þess að þáverandi sjávarútvegsráðherra sniðgekk lög við úthlutun aflaheimilda í makríl, að áliti Umboðsmanns Alþingis. Íris Róbertsdóttir var kjörin í aðalstjórn VSV í stað Páleyjar Borgþórsdóttur. Íris var áður varamaður stjórnar. Endurkjörin voru í aðalstjórn Guðmundur Örn Gunnarsson, Einar Þór Sverrisson, Guðmundur Kristjánsson og Rut Haraldsdóttir. Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir var kjörin ný í varastjórn og Eyjólfur Guðjónsson endurkjörinn í varastjórn. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Aðalfundur VSV fyrir árið 2014 :: Viðunandi afkoma :: Þrátt fyrir loðnubrest: Hagnaður 620 millj- ónum minni en 2013 :: Arðgreiðsla 1200 milljónir :: Togari í smíðum :: Nýr Ísleifur og Kap :: Heildarkvóti í loðnu í um 11% Brúðkaup í Kafhelli Á laugardaginn var heldur óvenju- legt brúðkaup en Sigurjón og Lovísa létu gefa sig saman í Kafhelli í eyjunni Hænu. Ribsafari flutti brúðhjónin ásamt Sæunni Magnús- dóttir fulltrúa sýslumanns og gestum í hellinn og gaf Sæunn brúðhjónin saman. Hilmar Nínon og Alma Eðvaldsdóttir voru svaramenn. Þetta er annað brúðkaupið sem fer fram í bát Ribsafari en einnig hafa tvö bónorð verið borin upp í bátum fyrirtækisins. LU Prince kex 300 gr verð nú kr 348,- verð áður kr 438,- Jacobs Club Orange verð nú kr 298,- verð áður kr 388,- Gevalía kaffi 500 gr verð nú kr 798,- verð áður kr 998,- Svali 3x0,25 ltr verð nú kr 188,- verð áður kr 218,- Hellema kex 300 gr verð nú kr 198,- verð áður kr 298,- Milka súkkulaði 100 gr verð nú kr 199,- verð áður kr 298,- Nýjungar frá SS

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.