Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Side 1
Eyjafréttir Fyrirsögn >> ?? Aldrei hafa fleiri skemmtiferðaskip haft viðkomu í Vestmannaeyjum en á þessu sumri. Í fyrra voru þau 21 talsins en í ár eru þau nær tvöfalt fleiri eða samtals 39. Samkvæmt upplýsingum sem Ólafur Jónsson, hafnarvörður hjá Vestmannaeyjahöfn, lét Eyjafréttum í té, hafa í sumar komið hingað 34 skemmtiferðaskip og 8.795 farþegar hafa komið af þeim í land. Af þessum 34 skipum voru sex sem sigldu framhjá þar sem ekki var hægt að afgreiða þau vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Enn á eftir að bætast við þann farþegafjölda sem stígur á land í Eyjum þar sem fimm skip eiga enn eftir að koma hér við, eitt þeirra á morgun, fimmtudag og annað á laugardag. Er ekki ólíklegt að farþegafjöldinn eigi eftir að fara hátt í tíu þúsund manns. Þau skemmtiferðaskip, sem væntanlega munu hafa hér viðdvöl á næstunni eru: 13. ágúst Rotterdam 15. ágúst Ocean Diamond 23. ágúst Silver Cloud 31. ágúst Ocean Nova 28. sept. Sea Spirit >> 10kliFu hæstu tinda Vestmannaeyjum 12. ágúst 2015 :: 42. árg. :: 32. tbl. :: Verð kr. 450 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is okinawa stóð undir væntingum >> 8 >> 12Ekki Þöggun Ferðamenn hafa aldrei verið fleiri í Vestmannaeyjum en í júlí þegar metfjöldi tók sér far með Herjólfi. Á það líka við aðra flutninga með skipinu, þeir eru mun meiri en á síðasta ári. Alls voru 74.036 farþegar með Herjólfi í júlí á móti 59.808 í júlí 2014. Er aukningin 14.228 farþegar eða 23,8 prósent. Rútum fjölgaði úr 151 í 190, bílum úr 10.867 í 12.496 og vögnum úr 311 í 322. Fyrra metið var í júlí 2012 en þá voru farþegar 66.912 og bílar 11.862. „Þetta er mjög ánægjuleg þróun og við höfum mætt auknum áhuga ferðafólks að koma hingað með því að fjölga ferðum,“ sagði Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum. „Herjólfur siglir nú það sem eftir er sumaráætlunar 40 ferðir í viku og hafa þær aldrei verið fleiri í áætlun skipsins.“ Skemmtiferðaskip aldrei fleiri en í sumar Sigurgeir jónSSon sigurge@internet.is Á fimmtudaginn lá hollenska skemmtiferðaskipið Ryndam á Klettsvíkinni. - Mynd: Óskar Pétur. Metfjöldi farþega með Herjólfi

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.