Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Page 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. ágúst 2015
Útgefandi: eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: ómar garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
Blaðamenn: gígja óskarsdóttir - gigja@eyjafrettir.is
Ásta Sigríður guðjónsdóttir - asta@eyjafrettir.is
Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og
Íþróttir: guðmundur Tómas Sigfússon
Ábyrgðarmaður: ómar garðarsson.
Prentvinna: Landsprent ehf.
ljósmyndir: óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppnum,Vöruval,Herjólfi,Flughafnarversluninni,
Krónunni, Kjarval og Skýlinu.
Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Á fundi bæjarstjórnar þann 24. júlí
var samþykkt að fara í endurbætur á
Fiskiðjunni. Ekki var þó einhugur
um málið því bæjarfulltrúar
Eyjalistans telja peningunum betur
varið í uppbyggingu á Hraun-
búðum, dvalarheimili aldraðra í
Vestmannaeyjum. Hiti var í
umræðum á fundinum og bentu
fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis-
manna á að nú mjög svo nýverið
hefði Stefán Óskar Jónasson oddviti
E-lista skrifað undir viljayfirlýsingu
þess efnis að afhenda Þekkingar-
setrinu aðra hæð Fiskiðjunnar sem
næst því að hún sé tilbúin undir
tréverk.
„Það vekur því vægast sagt undrun
að nú vilji hann rífa húsið. Ljóst má
vera að það verður erfitt fyrir
Þekkingarsetrið að vera með
starfsemi á annarri hæð í húsi sem
búið verður að rífa,“ segir m.a. í
bókun meirihlutans.
Þessu er minnihlutinn ekki
sammála og lét bóka: „Það sem
kemur fram í bókun D-listans, að
Stefán Óskar Jónasson hafi viljað
rífa húsið, er ekki rétt. Þær
framkvæmdir sem á að fara í við
Fiskiðjuna eru að okkar mati ekki
réttar. Ekki hefur verið staðfest nein
starfsemi í húsinu þótt viljayfir-
lýsing hafi verið undirrituð og óljóst
þykir hvernig eigi að nýta restina af
húsinu.“
Logið upp á mig
„Mér finnst óþolandi þegar logið er
upp á mig. Ég hef rætt við fólk sem
ég hef unnið með að málum
Fiskiðjunnar og það kannast enginn
við að ég vilji rífa húsið. Það er
frekar að ég vilji vernda það,“ sagði
Stefán um bókun sjálfstæðismanna.
„Sama hvort þeir eru í Eyjalistanum
eða Sjálfstæðisflokki. Það er
ömurlegt að vera í pólitík þegar það
eru borin upp á mann ósannindi og
lygi. Það er nógu erfitt samt. Um
Fiskiðjuna vil ég segja, það þarf að
finna henni hlutverk áður en
ákveðið er að henda í hana
hundruðum milljóna. Vona ég að
fulltrúar sjálfstæðismanna dragi
þann hluta bókunarinnar, þar sem
segir að ég vilji rífa húsið, til baka.
Það er hauga helvítis lygi.“
Aðeins tvennt í stöðunni
Þegar rætt var við Elliða Vignisson,
bæjarstjóra á mánudaginn sagði
hann að öll gagnrýni væri ætíð góð
og í stjórnmálum meira að segja
sérstaklega mikilvæg svo fremi sem
hún sé málefnaleg. „Það er hins
vegar erfitt að átta sig á hvað
E-listinn vill gera með Fiskiðjuna.
Fyrir liggur að þarna eru 4400 m2 á
stað sem er gríðarlega mikilvægur
fyrir okkur skipulagslega. Reyndar
svo mjög að fagráðgjafar sveitar-
félagsins hafa kallað húsið andlit
bæjarins og ráðlagt eindregið að
ráðist verði í framkvæmdir við það
og uppbyggingu því tengda. Á
sama hátt liggur fyrir að húsið er og
hefur lengi verið illa útlítandi og
okkur til vansa. Það er því bara
tvennt í stöðunni; að rífa húsið eða
laga það. Þetta þekkir E-listinn
enda oddviti þess nýlega skrifað
undir viljayfirlýsingu um að þar
verði byggð upp þekkingarstarf-
semi. Síðan gerist það allt í einu að
E-listinn vill ekki laga húsið en
hann vill heldur ekki rífa húsið.
Vart vill hann að það verði okkur
áfram til skammar og auðvitað
verður það ekki heldur flutt í burtu.“
Út úr kortinu
Elliði segir að öll tenging við
málefni aldraðra sé á sama máta
algerlega út úr kortinu. „Yfir-
lýsingar um að í staðinn eigi að
„stækka Hraunbúðir“ einhliða eru
út úr kortinu. Hraunbúðir eru
heilbrigðisstofnun og það eina sem
myndi gerast ef við stækkum
Hraunbúðir einhliða er að þau
herbergi myndu standa tóm þar til
ríkið myndi setja fjármagn í rekstur
þeirra.
Ég vil samt að það sé alveg skýrt
að E-listinn hefur hvergi dregið
fæturna í sameiginlegri og faglegri
vinnu hvað málefni aldraða varðar
og þetta upphlaup er einsdæmi í
þverfaglegri vinnu við stefnumótun
í málefnum aldraðra.
Það hefur þvert á móti verið góð
samvinna og innan fagráðsins, alger
eining. Þau vita enda sem er að
stækkun Hraunbúða kallar á vilja
ríkisins til að veita þar þjónustu.
Þau vita líka sem er að verkefnið er
stærra en svo að það snúist bara um
Hraunbúðir. Við þurfum að fjölga
þjónustuíbúðum, bæta dagþjónustu,
efla leigumarkað með heppilegar
íbúðir, halda áfram að efla starf
Félags eldri borgara og svo margt
fleira. Það tengist hins vegar hvorki
Fiskiðjunni, fráveitunni eða
Félagsheimilinu. Við erum
einfaldlega stórt og öflugt bæjar-
félag með margþættan rekstur og
meðal mikilvægra verkefna eru
bæði skipulagsmál, uppbygging
þekkingarstarfs og málefni eldri
borgara,“ sagði Elliði.
Bæjarstjórn :: Enn tekist á um Fiskiðjuna :: Fulltrúi E-lista ósáttur:
Mér finnst óþolandi þegar
logið er upp á mig
:: Segist aldrei hafa nefnt að rífa húsið :: Öll málefnaleg gagnrýni í stjórnmálum góð,
segir bæjarstjóri
ómar garðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Vikan og helgin var með rólegra
móti hjá lögreglu fyrir utan að nóg
er búið að vera að gera við að svara
fyrirspurnum fólks sem tapaði
lausamunum á þjóðhátíðinni.
Eitthvað er enn af óskilamunum á
lögreglustöðinni og bendir lög-
reglan þeim sem sakna einhverra
muna síðan á þjóðhátíðinni að fara
inn á facebook-síðu lögreglunnar í
Vestmannaeyjum og skoða þar
myndir af þeim óskilamunum sem
bárust lögreglu.
Undir kvöld á fimmtudaginn leitaði
erlendur maður til lögreglu vegna
þjófnaðar á útivistarmyndavél.
Hafði hann sett myndavélina við
lundaholu í Stórhöfða fyrr um
daginn og skilið hana þar eftir.
Þegar hann síðan vitjaði vélarinnar
síðdegis sama dag var vélin horfin,
ásamt fylgihlutum. Þeir sem
einhverjar upplýsingar hafa um hvar
vélin er, eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við lögreglu.
Alls liggja fyrir tólf kærur vegna
brota á umferðarlögum, í tveimur
tilvikum er um að ræða grun um
akstur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna, þá liggja fyrir kærur
vegna hraðaksturs, fyrir að leggja
ólöglega, vanrækslu á að greiða
lögboðnar tryggingar, akstur án
ökuréttinda og vanrækslu á að hafa
öryggisbelti spennt í akstri.
Lögreglan :: Enn eitthvað af óskilamunum:
Hver tók myndavél við
lundaholu í Stórhöfða?
:: Alls liggja fyrir tólf kærur vegna brota á umferðarlögum