Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Síða 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. ágúst 2015
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Eyjamaður vikunnar
Hefur haldið 27 einka-
og samsýningar
Steinunn Einarsdóttir
er ein fjölda kvenna
sem haldið hefur
sýningu á verkum
sínum í sumar. Hún
opnaði sýningu sína
30. júlí í Einarsstofu í
Safnahúsinu, sýningu
sem hún kallar Út og
suður og alls staðar.
Hún varð 75 ára 19.
júlí síðastliðinn og er
Steinunn Eyjamaður
vikunnar að þessu
sinni.
Nafn: Steinunn
Einarsdóttir.
Fæðingardagur:
190740 3669.
Fæðingarstaður:
Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Dóttir og
þrjú barnabörn í
Ástralíu.
Draumabíllinn: Ferrari
Uppáhaldsmatur: Allt
gott.
Versti matur: Enginn.
Uppáhalds vefsíða:
http://steinu.blogspot.
com
Hvaða tónlist kemur
þér í gott skap: Happy
tónlist.
Aðaláhugamál: List.
Hvaða mann/konu
myndir þú vilja hitta
úr mannkynssögunni:
Jesús.
Fallegasti staður sem
þú hefur komið á:
Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþrótta-
maður og íþróttafé-
lag: IBVarar!
Ertu hjátrúarfull/ur:
Nei.
Stundar þú einhverja
hreyfingu: Golf.
Uppáhaldssjónvarps-
efni: Náttúrulífs- og
sakamálamyndir.
Hvenær byrjaðir þú
að mála: Í móður-
kviði.
Hvað er það við
myndlist sem heillar:
Sköpun.
Hvað hefur þú haldið
margar sýningar:
Tuttugu og sjö einka-
og samsýningar á
Íslandi.
Eitthvað að lokum:
Þakka fyrir mig og
blessunarkveðjur til
allra sem vilja taka við
þeim.
Matgæðingur vikunnar
Ég vil byrja á að þakka Hildi Vattnes
fyrir áskorunina. Ég ætla að gefa
ykkur uppskrift að kjúklingabring-
um í piparostasósu og franskri
súkkulaðiköku í eftirrétt
Beikonvafðar kjúklinga-
bringur í piparostasósu
• 4 kjúklingabringur
(skornar í ca. 3 cm lengjur)
• beikon
• piparostur
• 1/2 peli rjómi
• mjólk (eftir þörfum)
1. Kjúklingabringurnar skornar í
lengjur og einni beikonsneið vafið
utan um hverja lengju.
2. Því næst eru lengjurnar steiktar
eða grillaðar í ca 4-5 mínútur á
hvorri hlið (George afar ákjósan-
legur).
3. Piparosturinn og rjóminn sett
saman í pott og hitað þar til
osturinn bráðnar (við vægan hita)
Mjólk bætt út í eftir þörfum (ekki
gott að hafa sósuna of þykka).
4. Kjúklingurinn í beikondressinu
er lagður í eldfast mót og sósunni
hellt yfir.
5. Sett í ofn við 180 gráður í ca. 5
mínútur.
Gott að bera fram með hrísgrjónum
eða ofnbökuðu rótargrænmeti,
fersku salati og snittubrauði
Frönsk súkkulaðikaka
Botn:
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði (eða gott
dökkt súkkulaði)
1 dl hveiti
4 stk. egg
Súkkulaðibráð:
150 g suðusúkkulaði (eða gott
dökkt súkkulaði)
70 g smjör
2 msk. síróp
Þeytið eggin og sykurinn vel
saman.
Bræðið smjörið og súkkulaðið
saman við vægan hita í potti eða í
örbylgjuofni. Athugið að passa að
súkkulaðið brenni ekki ef örbylgju-
ofn er notaður.
Blandið hveitinu varlega saman við
eggin og sykurinn með sleif. Bætið
bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að
lokum varlega út í deigið.
Klæðið botninn í springformi með
smjörpappír, smyrjið vel og hellið
deiginu í það. Bakið svo við 170°C
í 30 mínútur. Það má jafnvel stytta
tímann eftir því hversu blauta í
miðjunni þið viljið hafa hana. Þegar
kakan er tilbúin þarf hún að kólna
örlítið áður en hún er tekin úr
forminu. Besta aðferðin til að taka
hana úr forminu er að losa formið,
setja disk á hvolfi á kökuna og snúa
henni við þannig að hún liggi á
hvolfi á diskinum, taka smjörpapp-
írinn af og hvolfa svo aftur á það fat
sem hún að að vera á.
Súkkulaðibráð:
Látið allt saman í pott og bræðið
saman við vægan hita. Kælið
bráðina svolítið og smyrjið henni
síðan á kökuna.
Það er líka í fínu lagi að sleppa
súkkulaðibráðinni, og dreifa í
staðinn smá flórsykri yfir botninn.
Það er mjög gott að setja jarðarber
eða hindber á kökuna áður en hún
er borin fram.
Ég ætla að skora á samstarfskonu
mína hana Ásu Sif Tryggvadóttur að
vera næsti matgæðingur og veit ég
af eigin reynslu að þar kemur
matgæðingur af lífi og sál með
eitthvað geggjað gott.
Beikonvafin kjúklingabringa
og frönsk súkkulaðikaka
Sigríður Guðmundsdóttir
er matgæðingur vikunnar
TIL SÖLU
ISUZU CREW CAB
Árgerð 2002. Keyrður 166.000
km. Fæst á kr. 400.000.
Upplýsingar í síma 899 0862
Smáauglýsingar
Sunnudagur 16. ágúst:
Kl. 11.00. Helgistund í Landa-
kirkju. Kór Landakirkju syngur
nokkra valinkunna sálma, sr.
Guðmundur Örn flytur hugvekju.
Miðvikudagur 19. ágúst:
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Viðtalstímar prestsins eru þriðju-
daga til föstudaga milli 11.00 og
12.00.
Vatktsími: 488-1508
LANDAKIRKJA