Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Blaðsíða 7
7
Sólveig Aspach kvikmyndaleik-
stjóri lést á föstudaginn og var þá
54 ára að aldri. Banamein hennar
var krabbamein sem hún barðist við
í um 20 ár. Sólveig var fædd í
Vestmannaeyjum 8. desember 1960,
dóttir Högnu Sigurðardóttur
arkitekts og Gerhardts Anspach.
Dvaldist Sólveig oft á sumrin í
Vestmannaeyjum hjá móðurfor-
eldrum sínum.
Annars var Sólveig alin upp í París
þar sem hún stundaði nám við hinn
virta kvikmyndaskóla FEMIS í
París þaðan sem hún útskrifaðist
1990. Eftir hana liggja margar
kvikmyndir og hafði hún nýlokið
tökum á þeirri nýjustu, Sundáhrifin
(L'effet aquatique) en hún er tekin
bæði á Íslandi og í Frakklandi.
Sólveig byrjaði á gerð heimilda-
mynda en sína fyrstu leiknu mynd
gerði hún árið 1999, Hertu upp
hugann! Myndin var byggð að
nokkru á eigin reynslu Sólveigar
sem þá hafði greinst með krabba-
mein.
Stormviðri eða Stormy Weather,
sem frumsýnd var árið 2003, var að
mestu tekin í Vestmannaeyjum með
Élodie Bouchez, Baltasar og Diddu
Jónsdóttur, skáldkonu. Bæði Élodie
Bouchez og Baltasar hafa náð
fótfestu í kvikmyndaheiminum og
Didda og Sólveig héldu áfram
samstarfi í þríleik sem hófst á
Skrapp út (2006) og varð númer eitt
í röðinni, Queen of Montreuil
(2011) númer tvö og loks Sund-
áhrifunum sem tekin var upp í
sumar.
Margir Eyjamenn komu að gerð
Stormviðris sem var góð kynning
fyrir Vestmannaeyjar. Margir
kynntust Sólveigu þann tíma sem
tökurnar stóðu og fór ekki á milli
mála að þar var Eyjamaður á ferð.
Um móður hennar, Högnu, segir á
heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar
Íslands:
„Högna útskrifaðist sem arkitekt
frá École Nationale Supérieure des
Beaux-Arts í París árið 1960 og
hlaut sérstaka viðurkenningu
skólans fyrir lokaverkefni sitt,
Garðyrkjubýli í Hveragerði. Þá
þegar var áhugi hennar á sérkennum
landsins, íslenskrar náttúru og
veðurfars innblástur í frumlega og
sérstaka byggingarlist, sem hún
þróaði áfram í seinni verkum
sínum. Högna hefur búið og starfað
í Frakklandi allt frá námsárunum en
jafnframt því skapað mörg bestu
verka sinna hérlendis.
Henni hefur hlotnast fjöldi
alþjóðlegra viðurkenninga fyrir
verk sín, og tók meðal annars sæti í
hinni virtu Frönsku byggingar-
listarakademíu árið 1992, auk
innlendra viðurkenninga svo sem
menningarverðlauna DV í bygg-
ingarlist 1994 og heiðursorða
Sjónlistaverðlauna Listasafns
Akureyrar 2007. Íbúðarhús sem hún
teiknaði að Bakkaflöt í Garðabæ
hefur verið valið sem ein af 100
merkustu byggingum 20. aldarinnar
í Evrópu. Árið 2008 var Högna
Sigurðardóttir kosinn heiðursfélagi
Arkitektafélags Íslands”.
Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. ágúst 2015
ómar garðarSSon
omar@eyjafrettir.is
HRAUNBÚÐIR
VESTMANNAEYJUM
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Laust er til umsóknar 100% stöðugildi hjúkrunarfræðings á
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.
Á Hraunbúðum eru 28 hjúkrunarrými, 8 dvalarrými og 1 skamm-
tímarými auk annarrar þjónustu við eldri borgara. Nánari
upplýsingar um heimilið má sjá inni á www.hraunbudir.is
Helstu verkefni:
• Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við
hjúkrunarforstjóra og bera ábyrgð á meðferð.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt hjúkrunarleyfi.
• Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar:
• Umsóknarfrestur er til 10. september.
• Starfið er laust eftir samkomulagi.
• Laun skv. kjarasamningum Sambands sveitarfélaga og Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
• Umsókn fylgi afrit af hjúkrunarleyfi og prófskírteinum.
• Umsókn óskast send á leaodds@gmail.com eða hraunbudir@
vestmannaeyjar.is
• Nánari upplýsingar veitir Lea Oddsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Hraunbúða, í síma 488 2600 eða 893 1784
LEIGUíBÚÐ FYRIR
ELdRI BoRGARA
Laus er til umsóknar leiguíbúð fyrir eldri borgara í Sólhlíð 19, 1c,
53 fm.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhúss. Íbúðunum er
m.a. úthlutað út frá félagslegum, heilsufarslegum og tekjulegum
forsendum umsækjanda.
Staðfesta þarf eldri umsóknir með símtali eða komu í þjónustu-
ver Ráðhúss. Ef aðstæður eru breyttar frá fyrri umsókn er
æskilegt að láta vita um það. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst.
Nánari upplýsingar í þjónustuveri Ráðhúss eða í síma 488 2000
Vestmannaeyjabær
Ráðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159,
sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is
Sólveig Anspach leikstjóri látin:
Fæddist í Eyjum
og átti hér rætur
:: Högna móðir hennar með okkar
merkustu arkitektum
Framhaldskólinn í
Vestmannaeyjum
verður settur miðvikudaginn 19. ágúst 2015 kl. 13:00 í
sal skólans. Vinnustofur nýnema eru sama dag kl.
13:15-15:15.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 20. ágúst.
Stundatöflur verða opnaðar í Innu föstudaginn 14.
ágúst.
Athugið að sótt er um töflubreytingar á netinu (nánari
upplýsingar eru á heimasíðu skólans http://www.fiv.is )
en auk þess verður námsráðgjafi og töflugerðarfólk til
viðtals 17. og 18. ágúst, ef þið þurfið aðstoð.
Innritun í fjarnám er hafin, sótt er um á heimasíðu
skólans http://www.fiv.is.
Skólameistari
Starfsfólk óskast í almenn störf
hjá Krónunni.
Fullt starf og/eða hlutastörf
Uppl hjá Halldóri síma 662-5487
eða E-mail Halldorey@Kronan.is
Starfsfólk
óskast
Sólveig Aspach