Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Blaðsíða 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. ágúst 2015
Þann sjötta ágúst sl. voru 50 ár
frá því að Hjálparsveit skáta í
Vestmannaeyjum var stofnuð.
Sveitin sameinaðist svo Björg-
unarfélagi Vestmannaeyja þann
21. mars 1992. Sigurður Þórir
Jónsson, sem var einn af
stofnendunum, rekur sögu
sveitarinnar frá stofnun hennar
sjötta ágúst 1965 og fram fram
að 15 ára afmælinu 1980. Þar er
víða komið við en Sigurður er
enn viðloðandi starfið og hefur
lengst af verið gjaldkeri sveitar-
innar og síðar Björgunarfélags-
ins sem enn starfar af fullum
krafti undir stjórn Adólfs
Þórssonar formanns til margra
ára. Líka var Sigurður ritari og
sveitarforingi.
,,Það er margt sem kemur upp í
hugann þegar maður lítur yfir
þau 15 ár sem Hjálparsveit skáta
Vestmannaeyjum hefur starfað.
Best er að byrja á byrjuninni og
rekja sig fram til dagsins í dag,"
segir Sigurðar í upphafi greinar
sinnar um sögu Hjálparsveitar
skáta í Vestmannaeyjum.
Á skátamót í Svíþjóð
„Sumarið 1965 er á margan hátt
minnisstætt fyrir mig. Um vorið
ákváðum við fimm skátar héðan úr
Eyjum að taka þátt í landsmóti
sænskra skáta er halda átti í byrjun
ágústmánaðar. Nokkru fyrir
þjóðhátíð kvaddi þáverandi
félagsforingi Faxa, Jón Ögmunds-
son, hóp stráka úr félaginu saman
til fundar og kom með þá hugmynd
að stofna innan félagsins hjálpar-
sveit.
Á fundinum voru um tuttugu
manns, flestir á aldrinum 15 til 18
ára, og tóku þeir vel í hugmyndina.
Ástæðan fyrir þessum fundi var sú
að forráðamenn þjóðhátíðarnefndar
Týs höfðu rætt þessi mál við Jón og
farið fram á að skátar sæju um
fyrstu hjálp á hátíðinni. Á fundinum
var svo samþykkt að verða við
beiðni Týrara og lögð voru á ráð um
hvernig þjóðhátíðarstarfið skyldi
fara fram. Þegar var hafist handa og
byrjað að undirbúa starfið, reynt var
að fá lánaðan þann tækjakost og
búnað er til þurfti.
150 manns urðu fyrir
skakkaföllum
Þegar hér var komið sögu lögðum
við fimm, sem áður er um getið, af
stað til Svíþjóðar og tókum því ekki
þátt í lokaundirbúningi fyrir þjóðhá-
tíðina, né störfum á henni. Ég er því
ekki til frásagnar um störf sveitar-
innar á þessari þjóðhátíð er sveitin
var með skyndihjálparþjónustu í
fyrsta sinn. Til sveitarinnar leituðu
um 150 manns er höfðu orðið fyrir
ýmsum skakkaföllum.
Þegar við komum til baka frá
Svíþjóð hafði verið ákveðið að
halda starfi sveitarinnar áfram. Um
haustið var Örn Bjarnason læknir
með námskeið í skyndihjálp fyrir
sveitarmeðlimi. Farið var í göngu-
ferðir, haldnir fundir og fleira.
Í janúar 1966 var tekin ákvörðun
um að setja sveitinni stjórn og
ganga formlega frá stofnun hennar.
Þann 29. janúar var haldinn
aðalfundur og fyrsta stjórn
sveitarinnar kosin. Samþykkt voru
lög fyrir sveitina og kosið í nefndir.
Í fyrstu stjórn sveitarinnar voru:
Örn Bjarnason sveitarforingi,
Halldór Svavarsson aðstoðarsveitar-
foringi, Sigurður Þ. Jónsson ritari
og Sigurjón Einarsson gjaldkeri. Til
vara voru kosnir Hörður Hilmisson
og Gunnar Hinriksson.
Styrkur frá Eykyndli
Á fundinum var afhent bankabók
með tuttugu og fimm þúsund
krónum frá Slysavarnadeildinni
Eykyndli og síðan hafa sveitinni oft
borist góðar gjafir frá slysavarna-
konum og færi ég þeim alúðarþakk-
ir fyrir. Þessi fjárhæð var notuð til
kaupa á fjórum handtalstöðvum
sem oft hafa komið sér vel í starfi
sveitarinnar. Um veturinn 1966
voru æfingar í hjálp í viðlögum,
leitaræfingar og farið var í fjöll og
bjargsig æft. Sveitin var kölluð út
einu sinni til leitar þennan vetur.
Þjóðhátíðina 1966 var sveitin aftur
með skyndihjálparþjónustu og fékk
þrjá menn frá Hjálparsveit skáta í
Reykjavík sér til aðstoðar eins og
árið áður. Á þessari þjóðhátíð
störfuðu á vegum sveitarinnar 22
félagar og um 90 manns leituðu
aðstoðar sveitarinnar.
Í október 1966 var haldinn
aðalfundur. Á fundinum var
ákveðið að fjölga í stjórn sveitar-
innar, þannig að foringjar hinna
ýmsu hópa er störfuðu í sveitinni
var bætt við stjórnina. Sömu menn
voru kosnir í aðalstjórn, en við
bættust: Bjarni Sighvatsson foringi
sjúkrahóps, Hörður Hilmisson
foringi fjallahóps og Jón Ögmunds-
son foringi almenns hóps. Á þessu
starfsári voru æfingar eins og árið
áður. Sveitin var kvödd út til leitar
þrisvar sinnum á þessu starfsári.
Á þjóðhátíðinni 1967 starfaði
sveitin í fyrsta skipti án aðstoðar
félaga úr HSSR. Tuttugu félagar úr
sveitinni störfuðu á þessari
þjóðhátíð og til þeirra leituðu um
187 aðilar aðstoðar.
Kölluð út til aðstoðar
Aðalfundur var svo haldinn 25.
nóvember og urðu þá breytingar á
stjórn sveitarinnar. Halldór
Svavarsson var kosinn sveitarfor-
ingi, aðstoðarsveitarforingi og
foringi almenns hóps var kosinn Jón
Ögmundsson, ritari Sigurður Þ.
Jónsson, gjaldkeri Sigurjón
Einarsson, foringi sjúkrahóps Bjarni
Sighvatsson og foringi fjallahóps
Hörður Hilmisson.
Ég hef nú gert fyrstu árum í sögu
sveitarinnar nokkur skil, og ætla því
að fara fljótar yfir sögu.
Á næstu árum var starf sveitarinnar
svipað, farið í göngu- og sigæfingar
og æfð var hjálp í viðlögum.
Meðlimir sveitarinnar fóru í
nokkrar ferðir til Surtseyjar og upp
á land. Sveitin starfaði á þjóðhá-
tíðum, fyrst í 50 fm tjaldi, en síðan
fékk hún afnot af gamla golfskál-
anum. Sveitin var kvödd út í leitir
að týndu fólki og til aðstoðar í
margs konar tilfellum. Á aðalfundi í
janúar 1970 var Bjarni Sighvatsson
kosinn sveitarforingi og Sigurður Þ.
Jónsson aðstoðarsveitarforingi.
Fyrsti báturinn
Mikil breyting varð á starfi
sveitarinnar árið 1971, en þá gaf
Sighvatur Bjarnason í Ási sveitinni
plastbát, 14 feta langan. Þarfnaðist
báturinn nokkurrar viðgerðar, var
hann lagfærður og reyndist vel.
Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi
styrkti svo sveitina til kaupa á
mótor fyrir bátinn. Báturinn var
mikið notaður, farnar voru æfinga-
ferðir í flestar úteyjar, einnig var
báturinn notaður við leitir og önnur
störf sveitarinnar. Síðan sveitin fékk
þennan bát hefur hún alltaf átt bát,
þó skipt hafi verið um tegundir báta
og mótora.
Þann 29. nóvember 1971 var
stofnað Landssamband hjálpar-
sveita skáta, og var HSV ein af níu
stofnsveitum sambandsins.
Rætist úr fjármálum
Frá byrjun hafði verið erfitt að afla
fjár til starfsemi sveitarinnar, og var
sveitin mjög févana fyrstu árin. Á
árinu 1971 fór að rætast úr
fjármálunum. Um sumarið tók
sveitin að sér innheimtu aðgangs-
eyris að leikjum ÍBV og fékk að
launum 10% af aðgangseyri. Gerði
þetta sveitinni kleift að kaupa ýmis
tæki til starfsemi sinnar. Um
áramótin 1971 - 72 var sveitin í
fyrsta skipti með flugeldasölu.
Flugeldasala hefur síðan verið um
hver áramót og verið helsta
tekjulind sveitarinnar.
Kennsla í fjallamennsku
Á aðalfundi í apríl 1972 var kosin
ný stjórn fyrir sveitina. Í henni
voru: Sigurður Þ. Jónsson sveitar-
foringi, Ólafur Einar Lárusson
aðstoðarsveitarforingi og aðrir í
stjórn voru Bjarni Sighvatsson,
Ólafur Magnússon, Kjartan
Eggertsson og Pétur Sigurðsson.
Starfið gekk svipað fyrir sig og
undanfarin ár. Seinni part ársins
kynntust meðlimir sveitarinnar
júgóslavneska fjallgöngumanninum
Nebojsa Hadzic. Farið var þess á
leit við hann að hann tæki að sér að
kenna sveitarmeðlimum fjalla-
mennsku. Haustið 1972 voru æfðar
af miklum krafti þær aðferðir við
klifur og fjallaferðir sem voru
meðlimum sveitarinnar framandi í
fyrstu, en þeir voru fljótir að
tileinka sér hinar nýju aðferðir undir
góðri og markvissri kennslu
Nebojsa.
Rétt fyrir áramót fékk sveitin afnot
af húsnæði að Skólavegi 13. Var
hafist handa um að innrétta það
húsnæði fyrir starfsemi sveitarinnar
og flugeldasölu. Ákveðið var að
festa kaup á húsnæðinu þegar
fjárhagur sveitarinnar leyfði.
Eftir áramót 1973 var unnið af
krafti við að klára innréttingar að
Skólavegi 13 og síðasta kvöldið
sem sveitin vann þar var mánudag-
inn 22. janúar. Var lokið við að setja
upp milliveggi og negla þilplötur.
Hætt var að vinna um kl. 22.30 og
fóru þá menn hver til síns heima, en
ekki leið á löngu þar til meðlimir
sveitarinnar hittust á ný.
Brugðust strax við gosnóttina
Eins og öllum er kunnugt hófst
eldgos hér á Heimaey nokkuð eftir
miðnætti þann 23. janúar 1973. Rétt
upp úr kl. 02 hringdi aðstoðar-
sveitarforingi Ólafur E. Lárusson í
mig og sagði að eldgos væri hafið á
austurhluta eyjunnar. Hann varð að
segja mér þetta tvisvar áður en ég
tók hann trúanlegan. Við hófumst
þegar handa og byrjuðum að hringja
út meðlimi sveitarinnar. Gekk það
vel fyrst, en fljótlega var ómögulegt
að nota síma vegna ofhleðslu á
símakerfinu. Sveitin var komin um
kl. 02.30 niður í Skátaheimili er þá
var í kjallara Félagsheimilisins við
Heiðarveg. Gripum við útbúnað
sveitarinnar og hröðuðum okkur
niður á lögreglustöð.
Sigurður Þ. Jónsson
:: Ágrip af sögu Hjálparsveitar skáta :: Hefði orðið 50 ára þann sjötta ágúst sl.:
Stórhuga menn sem klifu
Mont Blanc, Kilimanjaro,
Matterhorn og Montenberg
:: Við gæslustörf á þjóðhátíð frá upphafi :: Sendu út 15 manns gosnóttina 1973
:: Sameinaðist Björgunarfélagi Vestmannaeyja 1992
Á Hellisheiði 1982. Fremst: Sigurður Þ. Jónsson, Eiríkur Þorsteinsson og Bjarni Sighvatsson.
Fyrir aftan: Katrín Stefánsdóttir, þekkist ekki, Sigþór Ingvarsson og Hrönn Jónsdóttir.
Greinarhöfundur, Sigurður Þ, í snjóhúsagerð.