Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Síða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. ágúst 2015
Íþróttir
u m S j ó n :
guðmundur TómaS
SigFúSSon
gudmundur@eyjafrettir.is
Framundan
Miðvikudagur 12. ágúst
Kl. 16:00 Keflavík - ÍBV
3. flokkur karla A, B og C-lið
Fimmtudagur 13. ágúst
Kl. 18:00 Grindavík - ÍBV
3. flokkur kvenna
Föstudagur 14. ágúst
Kl. 17:00 Afturelding/Fjölnir
- ÍBV
2. flokkur kvenna
Kl. 13:00 ÍBV - Valur
5. flokkur kvenna A, B, C og
D-lið
Laugardagur 15. ágúst
Kl. 15:30 Njarðvík - ÍBV
4. flokkur karla A-lið
Kl. 17:00 Breiðablik 3 - ÍBV
4. flokkur karla B-lið
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 14:00 ÍBV - ÍA
2. flokkur kvenna
Kl. 15:30 ÍBV - Haukar
3. flokkur karla A, B og C-lið
Kl. 13:00 Þór - ÍBV
4. flokkur karla A og B-lið
Mánudagur 17. ágúst
Kl. 17:00 ÍBV - Breiðablik 2
4. flokkur kvenna
Þriðjudagur 18. ágúst
Kl. 18:00 KR - ÍBV
Pepsi-deild kvenna
Kl. 15:00 Þróttur R. - ÍBV
3. flokkur kvenna
Kl. 15:00 KR - ÍBV
5. flokkur karla A, B, C og
D-lið
Kl. 15:00 Breiðablik - ÍBV
5. flokkur kvenna A, B, C og
D-lið
Fótbolti | Pepsídeild karla :: Leiknir 0:2 ÍBV:
töframaðurinn Sito kom
Eyjamönnum af fallsvæðinu
Króatíski miðjumaðurinn Mario
Brlecic hefur skrifað undir samning
við ÍBV. Hann er miðjumaður sem
kemur frá Concordia Chiajna í
Rúmeníu. Mario er 26 ára gamall
og er strax kominn með leikheimild
með liðinu, hann var í hópnum gegn
bæði Fylki og Leikni. Félagaskiptin
voru send á elleftu stundu frá ÍBV
en það munaði mjög litlu að Mario
fengi ekki leikheimild.
Mario
Brlecic
inn á
síðustu
stundu
ÍBV vann á mánudaginn var
stórsigur á botnliði Aftureldingar
og lyfti sér þar með upp í 3.
sætið. Leikurinn fór fram á
Hásteinsvelli í glampandi sól og
ÍBV gaf tóninn strax í byrjun
leiks.
Eftir einungis nokkurra mínútna
leik höfðu Eyjastúlkur skorað tvö
mörk en þar voru þær Cloe Lacasse
og Díana Dögg Magnúsdóttir að
verki. Kristín Erna Sigurlásdóttir
kom ÍBV í 3:0 áður en Cloe
Lacasse bætti við enn einu markinu
undir lok fyrri hálfleiks. Leiknum
var því nánast lokið eftir 45 mínútur
og einungis formsatriði að klára
hann.
Síðari hálfleikurinn var ekki sama
flugeldasýning og sá fyrri en
mörkin létu bíða eftir sér. Stefanía
Valdimarsdóttir náði að koma
boltanum í netið og minnka muninn
tveimur mínútum fyrir leikslok en
Guðrún Bára Magnúsdóttir jók aftur
forskotið í fjögur mörk þegar ein
mínúta var eftir af venjulegum
leiktíma.
Fótbolti | Pepsídeild kvenna :: ÍBV 5:1 Afturelding
Flugeldasýning í fyrri hálfleik
Fótbolti | Pepsídeild karla :: ÍBV 0:1 Fylkir:
tap gegn
lærisveinum
Hemma
ÍBV sigraði Leikni með tveimur
mörkum gegn engu á Leiknisvelli
síðasta sunnudag. Leikurinn var
afar mikilvægur þar sem bæði lið
eru að berjast fyrir lífi sínu í
deildinni.
ÍBV komst upp fyrir Leiknismenn
með sigrinum en útlitið hefði verið
nokkuð svart fyrir Eyjamenn ef
sigur hefði ekki unnist. Það var
töframaðurinn Sito sem kom ÍBV
yfir í fyrri hálfleik eftir sendingu frá
Gunnari Heiðari Þorvaldssyni.
Sito hafði lítinn tíma en renndi
boltanum þó með lakari fæti
framhjá markverði Leiknismanna. Í
síðari hálfleik fékk Sito boltann
aftur frá Gunnari Heiðari, lék á þrjá
Leiknismenn og bombaði boltanum
í fjærhornið. Frábært mark hjá Sito
sem er vonandi aftur kominn í form
eftir rólega leiki uppi á síðkastið.
Eins og áður segir var sigurinn
virkilega mikilvægur fyrir restina af
leiktíðinni en gleðin leyndi sér ekki
í leikslok.
Gegn Leikni var skipulag liðsins
miklu betra en gegn Stjörnunni, það
var miklu meiri baráttuandi,
sigurvilji, liðsheild og trú en gegn
KR og engin einstaklingsmistök
sem gáfu mark. Þessi sigur er því
klárlega eitthvað til að byggja á og í
framhaldinu þarf að vinna í því að
bæta leik liðsins sóknarlega.
Eyjamenn töpuðu fyrir Fylki á
Hásteinsvelli á miðvikudaginn
en Fylkismenn skoruðu eina
mark leiksins vegna mark-
mannsmistaka.
Mistökin gætu reynst dýrkeypt
þegar stigin verða talin í lok
tímabilsins. Jóhannes Karl Guð-
jónsson tók aukaspyrnu á kantinum
og virtist hún vera að fara beint á
Guðjón Orra Sigurjónsson í marki
heimamanna, hann missti þó
boltann inn í markið og stigin því
Fylkismanna.
Eyjafréttir
- vertu með á
nótunum!