Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 29.11.2017, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 29.11.2017, Blaðsíða 8
8 - Eyjafréttir Miðvikudagur 29. nóvember 2017 Það á enginn að lenda í að jarða börnin sín, er oft sagt og sem betur fer lenda fæstir í því. En það gerist og höggið er mikið fyrir foreldra, ættingja og vini. Það þekkja Oddný Þ. Garðarsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir sem allar hafa misst syni á voveiflegan hátt og Þóranna tvo. Reynslu sinni lýsa þær í bókinni Móðir Missir Máttur þar sem þær segja opinskátt frá því sem gerðist og áhrifunum sem þessi ógnar- upplifun hafði á þær og fjölskyldur þeirra. Leiðir þeirra lágu saman í gegnum trúna á Krist og í starfi innan kirkjunnar. Tilgangur með útgáfu bókarinnar er að deila reynslunni með öðrum og sýna fólki sem verður fyrir áföllum að til er leið til bata. Hún sé reyndar erfið og á þeirri vegferð séu torfær fjöll klifin og gengið um djúpa dali. En áfram skal haldið. Sjálfar leggja þær áherslu á mikilvægi trúarinnar og að leita styrks í fjölskyldu og vinum, tala opinskátt um missinn og að hika ekki við að leita sér sérfræðiaðstoðar. Vera Björk segir að prestar Landakirkju hafi skipt sig miklu. Fyrst Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir, síðan Þorvaldur Víðisson og Bára Friðriksdóttir. „Bára byrjaði með tólf spora starfið, Andlegt ferðalag í Landakirkju. Hún hvatti mig til að taka þátt og síðan þá hef ég ekki komist úr sporunum, segir Vera Björk. Það hjálpaði mér heilmikið, bæði í sorginni og að kynnast sjálfri mér. Ég held að Andlega ferðalagið sé gott fyrir alla sem hafa lent í einhverju og bara alla.“ „Við kynnumst í gegnum AG- LOW. Ég var þá ófrísk af Ragnheiði Perlu. Það var Svanhildur Gísla- dóttir sem bauð mér með sér þangað. Þar kynntist ég fullt af góðum konum, m.a. Þórönnu. Ég var sú fyrsta af okkur að missa drenginn minn. Svo gerist það hjá Þórönnu fjórum árum seinna. Þá fór ég strax til hennar af því að ég tengdi svo við það sem hún var að ganga í gegnum. Sama gerðist þegar Elli hennar Oddnýjar dó. Við þekktumst ekkert mikið. Vorum nágrannar, buðum góðan daginn og Kári hennar Oddnýjar og Tryggvi minn voru vinir. Þegar þetta gerist hjá þeim fann ég hjá mér að ég yrði að fara yfir til þeirra og tala við þau.“ Félagsskapur sem umvefur og nærir Oddný og Vera Björk urðu góðar vinkonur og Oddný fór að fara með Veru Björk á AGLOW fundi. „Þetta leiddi okkur svo saman, AGLOW og tólf spora starfið,“ segir Vera Björk sem er þakklát kirkjunni og hennar fólki fyrir að hafa staðið með sér. „Ég leitaði í trúna eftir styrk, það kom aldrei neitt annað til greina. AGLOWstarfið er mjög mikilvægur þáttur í mínu trúarlífi,“ segir Oddný. „AGLOW er kærleiksnet kristinna kvenna úr öllum kristnum trú- félögum. AGLOW hefur verið starfandi í Eyjum í rúm tuttugu og fimm ár. Yndislegur félagskapur sem umvefur og nærir. Ég og Vera Björk höfum leitt tólf sporastarf í Landakirkju, nú á annan áratug. Það er góð leið til að vinna í sorginni og læra að þekkja sjálfan sig. Tólf sporastarfið er mikil mannrækt og lærdómsríkt að fara í gegnum það með öðrum.“ Þóranna og hennar fjölskylda er í Hvítasunnusöfnuðinum. „Það hugsuðu örugglega margir úti í bæ að við ættum svo gott að vera í Hvítasunnusöfnuðinum en við þurftum að leita eftir því. Það var ekkert sjálfvirkt sem fór af stað. Þegar Sigurjón dó var mjög vinalegt þegar séra Bjarni, sem er góður vinur okkar, kom og bauð Stein- grími út að ganga. Þannig að þetta var fólk úr nágrenninu sem kom til okkar og Snorri og Hrefna Brynja voru til staðar.“ Var bannað að tala um þetta Og Þóranna heldur áfram: „Það var þessi vinanánd sem skipti máli en það var kannski ekki fyrr en seinna að maður áttaði sig á hvenær manni leið vel eða illa og hafa frelsi til að segja hvernig manni leið í það og það skiptið. Stundum þurfti maður að harka af sér en það er mjög gott að eiga góða fjölskyldu og vini og góða kirkju. En viðhorfið í Hvítasunnukirkjunni, var þetta landlæga fyrir tugum ára; nú er þetta búið og bara að halda áfram. Þegar við hittum fólk tveimur mánuðum eftir að Sigurjón fórst spurði það, eruð þið ekki búin að jafna ykkur? Það er bara ekki svoleiðis og það sem við vildum með bókinni er að opna umræðu í fjölskyldum ef einhver hafði dáið óvænt. Áður var bannað að tala um þetta. Við segjum frá því í bókinni að við vildum líka að börnin okkar og barnabörn vissu nákvæmlega hvað gerðist því öll eru þau hluti af þessu ferli,“ segir Þóranna. Löng og ströng „Og það yrði rétta sagan. Ég hélt að mín börn vissu allt en komst að því svo var ekki þó við höfum ekkert verið að fela þetta. Alltaf talað um þetta en þegar við fórum að fara nánar í það sem gerðist voru börnin ekki með þetta á hreinu. Eitt þeirra hafði upplifað þetta svona og hitt hinsegin, því er mjög gott að fá heildarmyndina,“ segir Vera Björk og nefnir erfiðleika og dauða í sinni fjölskyldu sem ekki mátti ræða. „Var ekki rætt nema að fólk væri drukkið. Þá kom sorgin upp á yfirborðið.“ „Það var oft erfitt að einbeita sér að því að skrifa um þessa erfiðu lífsreynslu en þetta hefur verið góð úrvinnsla fyrir mig,“ segir Oddný. „Þessi vinna hjá okkur þremur hefur verið nokkuð löng og ströng. Við þrjár höfum átt margar samveru- stundir undanfarin ár við bókar- skrif, Aglowstarf, Sporvinnu og annað kristilegt starf. Okkur þykir vænt hver um aðra, enda eigum við margt sameiginlegt. Það er sérstök tilfinning að vera búin að fá bókina í hendurnar eftir mikla vinnu. Ég vil þakka öllum sem hafa hvatt okkur við skrifin, lesið yfir og hjálpað, svo að þessi bók gæti orðið að veru- leika. Það er von mín að lestur þessarar bókar, vekji huggun og von þeim sem eiga um sárt að binda.“ Eins og móðir huggar barn sitt, eins mun ég hugga yður. :: Oddný Garðarsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Þóranna Sigurbergsdóttir segja frá reynslu sinni að missa börn og hvernig þær tókust á við sorgina Ómar Garðarsson omar@eyjafrett ir. is ” Það var þessi vinanánd sem skipti máli en það var kannski ekki fyrr en seinna að maður áttaði sig á hvenær manni leið vel eða illa og hafa frelsi til að segja hvernig manni leið í það og það skiptið. Stundum þurfti maður að harka af sér en það er mjög gott að eiga góða fjölskyldu og vini og góða kirkju.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.