Fréttir - Eyjafréttir - 29.11.2017, Side 10
10 - Eyjafréttir Miðvikudagur 29. nóvember 2017
Sunnudaginn 12. nóvember
bankaði blaðamaður upp á að
Kirkjuvegi 64 þar sem Ævar
Austfjörð og Ása Sif Tryggva-
dóttir búa með fölskyldu sinni.
Tilefnið er að þennan dag
hafði Ævar borðað eingöngu
kjöt í 90 daga og hann er
ánægður með þá breytingu
sem hann finnur á sjálfum sér.
Hann býður blaðamanni í
eldhúsið þar sem hann skellir
fjórum vænum nautabuffum
og tveimur myndarlegum
nautasteikum á pönnu. Skiptir
þessu á milli sín og blaða-
manns sem var bara ánægður
með þessa nýbreytni, að borða
eingöngu kjöt. Það smakkaðist
vel en skammturinn var of stór
þannig að hann leyfði hluta af
steikinni. Ævar er yfirmaður í
eldhúsi Sjúkrahússins en hann
er menntaður kjötiðnaðarmað-
ur og matartæknir sem í raun
ætti að heita Sérfæðiskokkur.
„Bryti“ er starfsheitið. Ása
starfar þar líka og er næst-
ráðandi eða aðstoðar mat-
ráður. Ævar er
formaður og
stofnandi Karate-
félags Vestmanna-
eyjar og aðalþjálf-
ari.
„Í janúar á þessu ári
var veganfæðið mikið
auglýst sem er hið
besta mál. Mér datt
þá í hug að taka hinn
pólinn á þetta og
borða engar plöntur.
Borða bara kjöt, fisk,
osta og egg sem ég
gerði frá áttunda eða níunda janúar
og út mánuðinn. Þrátt fyrir að ég sé
búinn að liggja yfir rannsóknum og
greinum um næringarfræði í fimm
eða sex ár var ég skíthræddur við
þetta. Af því að ef eitthvað er að
marka opinberar ráðleggingar er
þetta hættulegt,“ segir Ævar þegar
hann er spurður um aðdraganda
þess að hann fór út í að borða
eingöngu kjöt í 90 daga. „Ég hélt
þó að þrjár og hálf vika væri í lagi,“
bætir hann við og ekki er að sjá að
hann hafi hlotið skaða af.
Næstur kom núll-
kolvetnakúrinn
Þetta var þó ekki heilagra en svo að
ef hann var með fisk í sósu uppi á
Spítala borðaði hann fiskinn og
sósuna með. „Var ekki 100% í
þessu en þetta var svona 98% til
99% plöntufrítt fæði. Ég fór þá að
leita á netinu til að finna einhverja
sem voru að borða eitthvað þessu
líkt. Fann þá fleiri tugi þúsunda í
allskonar hópum t.d. á facebook
sem eru að borða það sem kallað er
núll-kolvetna
„zerocarb“ fæði
sem eru eingöngu
dýraafurðir. Ég
reyndi þetta og
líkaði vel. Fann
þó engan stóran
mun á einu eða
neinu og léttist
eitthvað, um tvö
kíló. Var svipaður
í orku á æfingum
en fann að
einbeitingin var
betri. Ég er
greindur með
athyglisbrest og er á lyfjum við því.
Var reyndar ekki kominn á lyf þá,
var í greiningunni þannig að ég var
ekki mikið að velta mér upp úr
þeirri hliðinni.“
Ákveður að slá til
Ævar hélt áfram að vafra um
netheima og rakst á Shawn Baker,
skurðlækni í Bandaríkjunum sem
honum fannst spennandi. „Hann var
nýorðinn fimmtugur. Keppti í
aflraunum hér áður fyrr. Lýsti því
yfir að hann hefði aldrei notað stera
sem honum finnst sem lækni ekki
eðlilegt að nota. Það var þó kannski
ástæðan fyrir því að hann var ekki
að keppa við þá allra bestu. Hann er
110 kíló, 195 á hæð og kraftalega
vaxinn. Hann vinnur mikið með
réttstöðulyftur, hnébeygjur og
ketilbjöllusveiflur, þunga bolta,
kassahopp og róðravélar. Hann er
búinn að setja fjölda heimsmeta á
róðravélinni síðan hann hætti að
borða allt annað en kjöt. Borðar
bara nautakjöt en segir að erfiðara
sé að nálgast nautakjötið þegar hann
er utan Bandaríkjanna og þá bætir
hann það upp með t.d. lambakjöti
og ostum. Það er hann sem stendur
fyrir þessari rannsókn,“ segir Ævar
um Shawn.
Í sumar opnaði Shawn vefsíðuna
nequalsmany.com þar sem hann
ætlaði að koma saman hóp sem
eingöngu borðaði kjöt með þessa
rannsókn í huga. Eftir smá
umhugsun ákvað Ævar að taka þátt
Ómar Garðarsson
omar@eyjafrett ir. is
MANNLÍF
” Ég fann eins og ég hafði fundið á lágkolvetnafæðinu að með því að borða eingöngu kjöt virkuðu lyfin betur. Hef ég því bæði minnkað og
breytt lyfjagjöfinni. Með því að borða
eingöngu kolvetni, er ég skýrari
í kollinum, flesta daga ef ekki er
mikið stress í gangi.
Ævar Austfjörð borðaði eingöngu kjöt í 90 daga og líkaði vel :
Sá sem borðar eins
og veiðimaður
verður veiðimaður
:: Einbeittur, gráðugur og grimmur :: Ef þú borðar eins og bráðin, verðurðu bráðin
:: Mjósleginn og utan við þig, síborðandi og það er auðvelt að ná þér, segir hann.