Fréttir - Eyjafréttir - 29.11.2017, Page 16
vetraráætlun herjólfs
*áætlun getur tekið breytingum – nánar á ferjur.is
vestmannaeyjar - landeyjar
fös. sun. 08:30 11:00 16:00 18:45 21:00
mán. fim. lau. 08:30 11:00 - 18:45 21:00
þri. mið. 08:30 11:00 - 18:45 -
landeyjar - vestmannaeyjar
fös. sun. 09:45 12:45 17:10 19:45 22:00
mán. fim. lau. 09:45 12:45 - 19:45 22:00
Þri. mið. 09:45 12:45 - 19:45 -
OPNUNARTÍMI / Mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / Um helgar kl . 10-21
GÓÐ VERSLUN Í ALFARALEIÐ
NÝ TILBOÐ VIKULEGA
Heimsendingarþjónusta.
PISTILLINN
SUSHI frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
Tökum niður pantanir!
s. 481-1300 | frettir@eyjafrettir.is | www.eyjafrettir.is
...systkin tvö
geta betur!
fylgir Eyjafréttum í næstu viku. Þeir auglýsendur
sem vilja nýta þetta tækifæri til að koma sinni vöru
eða þjónustu á framfæri hafi samband sem fyrst.
AÐVENTUBLAÐIÐ
Vinsældir þess að fasta hefur færst
í aukana síðustu árin og þykir það
ekkert tiltökumál að neita sér um
mat í lengri eða skemmri tíma.
Þetta er þó vandmeðfarið eins og
svo margt annað og að ýmsu þarf
að huga áður en lagt er af stað.
Föstur geta verið með ýmsu móti
og ástæðurnar fyrir þeim sömu-
leiðis ólíkar eftir því hver er að
framkvæma föstuna. Áður fyrr var
líklega um algjörar undantekningar
að ræða ef fólk fastaði ekki
trúarinnar vegna en eins og kannski
flestir vita fasta múslimar enn þann
dag í dag frá dögun til sólarlags í
Ramadan, níunda mánuði ársins í
tímatali Íslam. Fastan er ein af
fimm stoðum Íslam og skylda fyrir
alla heilsuhrausta múslima sem náð
hafa kynþroska.
Í dag er fastan orðin að eins konar
tískufyrirbrigði og óspart notuð
sem „einföld leið til að léttast og
öðlast heilbrigðara líf“ en það er
einmitt titill bókar Dr. Michael
Mosley um 5:2 föstuna. Gengur
hún út á það að borða venjulega í
fimm daga en skera niður kaloríu-
fjöldann umtalsvert næstu tvo daga
á eftir. 16/8 er sömuleiðis vinsæl
útfærsla á föstu en þá er fólk með
tiltekinn átta klukkustunda
tímaramma á dag sem það má
neyta matar. Utan þess ramma
neytir það einungis vatns eða
annarra kaloríusnauðra drykkja
eins og svart kaffi eða te. Aðrir
ganga enn lengra og fasta sleitu-
laust heilu sólarhringana en það er
tæplega skynsamlegt án viðeigandi
undirbúnings og þekkingu á
viðfangsefninu.
Án þess að fullyrða um neitt, enda
er undirritaður hvorki læknisfræði-
menntaður né vísindamaður af
neinni sort, ætti þó vera tiltölulega
meinlaust fyrir alla heilsuhrausta
einstaklinga að prófa að neita sér
um mat endrum og eins. Ekki nóg
með að vera meinlaust þá getur það
einnig einfaldað lífið örlítið að
hugsa minna um mat og hverjum
veitir ekki af að einfalda líf sitt?
Forfeður okkar fóru allavega oft í
gegnum tímabil þar sem lítinn mat
var að fá en í sögulegu samhengi er
í raun nokkuð stutt síðan maðurinn
fór að hafa jafn greiðan aðgang að
mat og hann hefur í dag. Við ættum
því að vera nokkuð vel í stakk búin
erfðafræðilega til að takast á við
föstu.
Fyrir utan hið augljósa, þ.e. að
grennast, hafa niðurstöður ýmissa
rannsókna leitt í ljós að föstur geti
haft heilsufarslega ávinninga í för
með sér, svo sem minnkað hættu á
hjarta- og æðasjúkdómum,
krabbameini, sykursýki og fleiru. Á
dögunum kom út ein slík rannsókn
á vegum Harvard háskólans í
Bandaríkjunum þar sem niður-
staðan gaf einmitt góð fyrirheit um
ágæti föstunnar, að hún gæti
stuðlað að langlífi og bættri heilsu.
Þetta eru í það minnsta áhugaverð-
ar pælingar og kannski eitthvað
sem gæti hentað þér, lesandi góður.
Hefur þú
prófað
að fasta?
Einar Kristinn
Helgason
einarkrist inn
@eyjafrett ir. is