Fréttir - Eyjafréttir - 01.09.2018, Blaðsíða 29
September 2018 | Eyjafréttir | 29
4 „Are Electric Cars Really Green“
Prager U
og verri en frá bensínbílum.
Svo langt hefur þessi viðsnúningur
gengið að menn ræða í alvöru í
stórborgum Evrópu að greiða fólki
fyrir að losa sig við díselbílana sem
það var áður hvatt til að kaupa!
Ástæðan er sú að NOx og sótmengun
frá díselbílunum er margföld á við
það sem stafar frá bensínbílunum.
brennisteinsfjöllin manngerðu
Frá og með 2020 verður bannað að
brenna olíu með yfir 0,5% brenni-
steinsinnihaldi um borð í skipum.
Reglur þessar eru alþjóðlegar og hafa
þær þegar verið innleiddar á stórum
hafsvæðum og árið 2020 í öllum
heimsins höfum. Tilgangurinn er að
draga úr myndun brennisteinsdíoxíðs
og ryks við brennslu olíunnar. Ryk
hefur neikvæð áhrif á heilsu manna
og nægir að horfa til stórborga í Kína
í því sambandi. Þessar reglur banna í
raun notkun svartolíu.
Ríkisútvarpið stökk á vagninn í
fyrra þegar Þjóðverji nokkur (í boði
Náttúruverndarsamtaka Íslands) gekk
um hafnarbakkann í Reykjavík og
mældi með litlu tæki rykmagn sem
átti að koma frá brennslu svartolíu
risaskemmtiferðarskips sem lá við
bakkann. Niðurstaða ráðgjafans var
kynnt landsmönnum, dómsdagstónn
fréttastofunnar var hækkaður í botn
og spáð var fyrir um hroðalega fram-
tíðarsýn landsmanna sem voru þarna
nýbyrjaðir að melta kvöldmatinn.
Þáverandi umhverfisráðherra boðaði
hertar reglur í fréttatímanum og
tók sérstaklega fram með skýrum
hætti að stoppa þyrfti þessi skip í að
brenna svartolíu í höfnum landsins.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri,
sá sér leik og hvatti í fréttatímanum
til þess að banna svartolíumengandi
skemmtiferðaskipum að leggjast að
leggjast að bryggju. Fljótlega eftir
þetta fréttamoldvirði kom í ljós að
brennsla svartolíu í hafnarlegu var
þegar bönnuð samkvæmt reglugerð
umhverfisráðuneytisins og skemmti-
ferðaskipið brenndi einmitt brenni-
steinslausri gasolíu. Mætti þá spyrja
sig 1) hvað var Þjóðverjinn þá að
mæla 2) hvað var ráðherrann að
pæla og 3) hvern ætlar RÚV næst að
spæla. Enn á eftir að koma afsök-
unarbeiðni frá fréttastofunni fyrir (í
besta falli) villandi fréttaflutning.
En aftur að reglunum. Nú þurfa
olíuhreinsunarstöðvar að bretta upp
ermar og hreinsa brennistein úr
hráolíu eins og enginn sé morgun-
dagurinn. Fjölmargar stöðvar hafa
ekki búnaðinn til þess og meiriháttar
fjárfestingar liggja í loftinu. Og rétt
eins og camembert kemur ekki úr
beljunum þá kemur brennisteinslaust
bensín ekki úr borholunum. Hráolían
er unnin í gas, bensín, létta gasolíu,
þunga gasolíu og tjörudrullu. Allt
þetta þarf að nýta. Og venjulegur
maður hlýtur að spyrja sig; hvað
verður þá um brennisteininn sem er
hreinsaður úr olíunni?
Það þarf að geyma hann í haugum
alla ævi Vinstri grænna.
............................................................
Höfundur er áhugamaður um að
skila Jörðinni í betra ástandi til
komandi kynslóða
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Vestmannaeyjar - 12. september
Vantar þig heyrnartæki?
Árni Hafstað heyrnarfræðingur verður í Vestmannaeyjum
við heyrnarmælingar, ráðgjöf og sölu heyrnartækja.
Mikið úrval af hágæða heyrnartækjum.
Bergur VE
Á skveiðunum
byggjum við!
Hilmisgötu 4 | s. 481-3333
V E R S L U N I N Þ Í N
GOTT
SKIPULAG
MEÐ
BOXUNUM
FRÁ