Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.1998, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 18.02.1998, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 18. febrúar 1998 Vikublaö á Vesturlandi Borgarbraut 57, 310 Borgarnes Sími: 437 2262 - Fax: 437 2263 Netfang: skessuh@aknet.is Útgefandi: Skessuhorn ehf. Ritstjóri og ábyrg&armabur: Gísli Einarsson S: 852 4098 Framkvæmdastjóri: Magnús Magnússon S: 852 8598 Auglýsingar: Magnús Valsson S. 437 2262 Hönnun og umbrot: Unnur Ágústsdóttir Prófarkalestur: Magnús Magnússon, Unnur Árnadóttir og fleiri Prentun: ísafoldarprentsmibja Skrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl.10:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 Blaöið er gefiö út í 5.400 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili á Vesturlandi. Aðilar utan Vesturlands geta gerst áskrifend- ur að blaðinu fyrir 800 krónur á mánuði. Gísli Einarsson, Magnús Magnússon, ritstjóri. framkvæmdastjóri. ÁGÆTU Vestlendingar! Við bjóðum ykkur velkomna að lestri nýs héraðs- fréttablaðs á Vesturlandi. Eins og flestum ætti að vera kunnugt hefur nú um nokkurt skeið skort hér- aðsfréttablað fyrir Vesturland í heild. Ur því skal nú bætt með útgáfú Skessu- homs sem ætlað er að vera í senn óháður fréttamiðill, öflugur auglýsingamið- ill, vettvangur fyrir skoðanaskipti manna á milli auk þess að innihalda fjöl- breytt efni til fróðleiks og skemmtunar. Skessuhorn er blað fyrir Vestlendinga, um Vestlendinga, stjómað af Vest- lendingum, í eigu Vestlendinga og skrifað af Vestlendingum. Með öðmm orð- um er ætlunin að birta í blaðinu hvaðeina sem lesendur kunna að hafa áhuga á, allt frá heimsviðburðum niður í „örfréttir“. Vesturland er víðfeðmt kjördæmi og fjölmennt. Samt sem áður er það ætl- unin að sinna eins vel og kostur er fréttaþjónustu fyrir allt kjördæmið. Fyrir- fram má þó búast við að einstök svæði, svo sem Akranes þar sem ríflega þriðj- ungur íbúa kjördæmisins býr, verði fyrirferðarmeiri en önnur á síðum blaðs- ins. Það gefur auga leið að ef blað sem þetta á að geta rækt sitt hlutverk sem fréttablað verður það að treysta á aðstoð sem flestra áhugasamra einstaklinga við öflun efnis. Þótt árvökulir starfsmenn blaðsins ætli sér að vera með augu og eyru opin sem víðast þá kemur það vart til með að duga. Við teljum það nauðsyn fyrir fyrirtæki, félög, stofnanir og jafnvel einstaklinga að koma á framfæri því sem þau/þeir eru að fást við hverju sinni. Þá ber að hafa í huga að ef menn vilja að eftir þeim sé tekið þá er nauðsynlegt að láta í sér heyra. Hægt verður að ná sambandi við einhvern af starfsmönnum blaðsins nánast hvenær sem er til að koma á framfæri ábendingum um fréttir eða annað efni í blaðið. Gott samstarf er því allra hagur. Eins og áður segir er Skessuhom óháður miðill sem þýðir að allir hafa jafn- an aðgang að þjónustu hans, óháð pólitískum -, efnahagslegum-, eða félags- legum hagsmunum. Við leggjum áherslu á jákvæða en þó gagnrýna umfjöllun því ekki geta allar fréttir talist góðar fréttir. Að okkar mati þarf blað af þessu tagi að taka bæði á neikvæðum og jákvæðum hliðum mannlífsins. Engu að síður verður þess gætt að öll umfjöllun verði sanngjöm og óvilhöll. Skessu- homi er ætlað að vera fréttablað, ekki æsifréttablað! Þegar hafist var handa við undirbúning útgáfunnar var ákveðið að blaðinu skyldi dreift endurgjaldslaust til allra íbúa Vesturlands í stað þess að selja það í áskrift. Sú ákvörðun kemur til af tvennu: Annars vegar í því skyni að allir íbúar Vesturlands hafi aðgang að fréttum og upplýsingum sér að kostnaðar- lausu og hinsvegar er verið að þjóna hagsmunum auglýsenda sem vissulega koma til með að fjármagna útgáfuna. Það er því ljóst að afkoma blaðsins og þar með lífslíkur helgast af því hvort fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar sjái sér hag í að nýta blað- ið sem auglýsingamiðil. Með því að auglýsa í Skessuhorni slá auglýsendur tvær flugur í einu höggi: Þeir ná til allra Vestlendinga á einfaldan og ódýran hátt og tryggja um leið útkomu fréttablaðs úr fjórðungnum. Sjálfsagt koma margir til með að spyrja þeirrar spumingar af hverju við, sem að þessari útgáfu stöndum, höldum að okkur geti tekist það sem öðmm hefur ekki lánast? Svarið er einfalt: Við höfum ekki hugmynd um það! Það sem hvetur okkur til að ráðast í áhættusaman rekstur af þessu tagi er fyrst og fremst áhugi og bjartsýni og þótt einhverjum kunni að þykja það rýr höfuðstóll erum við þess fullvissir að sé þetta tvennt ekki til staðar er lítil von um árang- ur, hvort sem er í blaðaútgáfu eða á öðrum sviðum. Frá því undirbúningur að útgáfu Skessuhoms hófst höfum við fundið fyrir miklurn stuðningi og áhuga fólks fyrir öflugum fréttamiðli. Við höfum sann- færst um að þörfin er fyrir hendi enda er það hverju landssvæði nauðsynlegt að hafa sitt málgagn. Við neitum að trúa því að héraðsfréttablað geti ekki þrif- ist á Vesturlandi á meðan a.m.k. eitt slíkt blað er til í öllum öðmm kjördæm- um landsins. Við bendum t.d. á að óvíða er meira um að vera í atvinnu- og mannlífi en einmitt á Vesturlandi. f ljósi þess og með þá vissu í veganesti að Vestlendingar sýni áhuga sinn í verki límm við jákvætt fram á veginn. Gísli Einarsson og Magnús Magnússon. Skólamálin í endurskobun BÆJARSTJÓRN Snæfellsbæjar hefur fengið fyrirtækið VSÓ ráðgjöf til að gera heildarúttekt á skólamálum sveitarfélagsins. Snæfellsbær rekur þijá gmnnskóla; á Hellissandi, í Ólafsvík og á Lýsuhóli. Guðjón Pedersen bæjarstjóri Snæ- fellsbæjar, sagði í samtali við Skessu- hom að ekki væri ætlunin að leggja af skólahald á neinum af þessum stöðum. “Við erum að láta gera heildarúttekt á þessum málum frá a til ö. Það er fyrst og fremst stjómunarþátturinn sem ver- ið er að skoða og hvort ná megi fram betri nýtingu á vinnuafli með samþætt- ingu milli skólanna. Markmið okkar er að ná fram meiri gæðum í skólastarfinu og byggja upp öflugri skóla. Síðast en ekki síst viljum við ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri,” sagði Guðjón. Inn í úttektina koma málefni tón- listarskólanna tveggja og einnig er sam- hliða unnið að athugun á hugsanleg- um almenningssamgöngum. Að sögn Guðjóns er VSÓ ráðgjöf ætlað að leggja fram þrjá valkosti í Gubjón Pedersen bæjarstjóri Snæ- felisbæjar. stöðunni. Niðurstöður þeirra eiga að liggja fyrir í lok mars, þá verða þær kynntar og málið unnið áfram innan sveitarfélagsins. Hættur eftir 56 ára starf GUÐMUNDUR Ingimundarson, sem verið hefur forstöðumaður Hym- unnar frá því hún hóf rekstur, er nú hættur störfum fyrir aldurs sakir. Hann varð sjötugur á síðasta ári. Guð- mundur hefur lengstan starfsaldur Kaupfélagsstarfsmanna að baki en hann hóf störf hjá KB þann 1. október 1941 og hefur starfað hjá fyrirtækinu óslitið síðan, eða í 56 ár. Guðmundur lærði bakaraiðn í Borgamesi og starfaði fyrstu tuttugu árin í bakaríi KB. Um 1960 gerðist hann deildarstjóri nýstofnaðrar Essó- stöðvar við Borgarbraut. Þegar Hyrn- an var opnuð, og „gamla Esso” lagð- ist af, varð hann forstöðumaður þar. Við starfi Guðmundar í Hymunni tók Indriði Albertsson f.v. Mjólkur- samlagsstjóri og framkvæmdastjóri Engjaáss hf. Ljósmyndari Skessuhorns smellti þessari mynd af Gubmundi Ingi- mundarsyni á síðasta starfsdegi hans í Hyrnunni þann 31. janúar s.l. Daginn eftir var Gu&mundur flog- inn tii subrænna landa í afslöppun eftir langa starfsævi. Skýrsla Vinnumálastofnunar: Minnkandi atvinnuleysi SAMKVÆMT skýrslu Vinnu- málastofnunar minnkaði atvinnuleysi á Vesturlandi um 28% milli áranna 1996 og 1997. Atvinnuleysi t kjör- dæminu var 2,2% í desember 1997 en það er 41% minna en í desember 1996. Hvergi var minna atvinnuleysi á landinu í desember 1997, nema á Vestfjörðum. Þar var atvinnuleysi að- eins 1,2%. Atvinnuleysi á landinu t heild var 3,7%. Atvinnuleysið í kjördæminu skipt- ist þannig milli kynja að í desember- mánuði vom 3,5% atvinnufærra kven- na án atvinnu en aðeins 1,2% atvinnu- færra karla. Skipting atvinnuleysis milli þétt- býlisstaða á Vesturlandi í desember s.l. var þannig: Akranes: 57, Borgar- byggð: 28, Snæfellsbær: 25, Stykkis- hólmur: 0, Grundarfjörður: 11 og Dalabyggð: 18. Fjolgun og einu nýju atvinnuleyfi á Vestur- landi. Árið áður var aðeins úthlutað tuttugu og sex slíkum leyfum. Flest þessara leyfa voru vegna starfa við ftskvinnslu. Tuttugu og tjórum at- vinnuleyfum var úthlutað f Stykkis- hóhni. ISáAkranesi, ÍOíGrundar- ftrði og 9 á Hellissandi. Flug- brautá Akranes? KETILL M. Bjömsson og Guð- mundur Sigurbjömsson flugmenn á Akranesi sendu bæjaryfirvqldum á Akranesi bréf þann 6. febrúar s.l. varóandí flugbraut við Akranes. Eínhver titringur er vegna þessa máls meðal hestamanná á staðnum, settt telja væntanlegt flugvallar- stæði vera fullnálægt aðstöðuþeirra á Æðarodda. Bæjarráð tók erindið fyrir á fundi s.l. funmtudag og sam- þykkti að feia bygginga- og skipu- lagsfulltrúa að leita álits Flugmála- stjómttr á annarri mögulegri stað- setmngu flugbrautar en fram kemur í bréfi bréfritara. Róleq helgi AÐ sögn lögreglu á Akranesí og í Borgarnesi var sfðasta helgi tíð- indalítil eða „róleg og þægileg1' eins og komist var að orði. Aðeins yar vitað um eitt umferðaróhapp í umdærni lögreglunnar í Borgamesí. Bifreið valt á Ólafsvíkurvegi vestan Lyngbrekku á laugardagsmorgun. Engin slys urðu á fólki. Fljúgandi hálka var á vegum á Vesíurlandi í síðuslu viku þannig að ntíldi má telja að ekki urðu frekari óhöpp. U NG MENN A FÉLAG Rey k- dæla leggur nií iokahönd á uppsetn- ingu leikrits Jökuls Jakobssonar: Sjpleiðina tí! Bagdad. Sjóleíðin er eitt þekktasta verk Jökuls og er sett upp af Reykdælingum í lilefni 90 ára afmæiis Ungmennafélagsins nú í vor. Áætlað er að sýningar hefjist um aðra helgi í Félagsheimilinu Logalandi. Alls taka sjö leikarar þátt í sýningunnt og leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Leikstarf hefur aJla tfð skipað veigamikinn sess i starfsemi UMFR. Félagtð hefur staðið fyrir uppfærslum á leikverk- um af öllum stærðum og gerðum nær árlega frá árinu 1963. en sýn- ingar á vegum lélagsins hÓfust skömmu eftir stofnun þess sumar- daginn fyrsta árið 1908.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.