Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.1998, Side 3

Skessuhorn - 18.02.1998, Side 3
SgESSlgHfflp Miðvikudagur 18. febrúar 1998 3 Ruslíb fær .Jögheimili // Nú styttist FYRIR skömmu staðfesti umhveif- isráðherra úrskurð skipulagsstjóra rík- isins varðandi fyrirhugaða sorpurðun í • Fíflholtum. Sem kunnugt er hafa öll sveitarfélög á Vesturlandi stofnað sam- lag um urðun sorps af svæðinu. Undir- búningurinn hefur tekið langan tíma vegna andstöðu nokkurra aðila, m.a. landeigenda í nágrenni fyrirhugaðs urð- unarstaðar. Blaðamaður Skessuhoms ræddi ný- lega við Pétur Ottesen formann stjóm- ar SSV og stjómarformann Sorpurð- unar Vesturlands. Fiann sagði umhverf- ismatið vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda í Fíflholtum hafa verið sam- þykkt með tveimur skilyrðum, þ.e. að endurheimt votlendis verði tryggð og að umhverfisspjöllum vegna malartekju verði haldið í lágmarki. Hafist handa Pétur kvaðst að vonum ánægður með að sjá loksins fram á að sorpmál á Vesturlandi kæmust í viðunandi horf. „Næsta skref er að sækja um starfsleyfi fyrir sorpurðunarstöð og að því fengnu verður hægt að hefjast handa við fram- kvæmdir. Ef allt gengur að óskum get- ur urðun sorps í Fíflholtum hafist að áliðnu sumri,” sagði Pétur. Hann sagði undirbúning innan einstakra sveitarfé- laga vera vel á veg kominn. “Pökkun og flokkun sorps hófst í Gámu við Akranes í ab sorpurbun geti hafist í Fíflholtum Pétur Ottesen hallar sér upp ab hefð- bundnu sorpíláti. Hugsanlega á hann eftir a& senda innihald þess til urbun- ar í Fíflholtum í framtíbinni. í haust og hefur stöðin reynst mjög vel. Þessa dagana er unnið að gerð þjón- ustusamninga við hreppana hér í kring. Þá er mér kunnugt um að nú stendur yfir úttekt á því hvemig best verði stað- ið að þessum málum á hinum þéttbýl- isstöðunum í kjördæminu.” Fálkar á vaktlnni! Pétur fór ásamt Guðjóni Ingva Stef- ánssyni framkvæmdastjóra SSV í kynn- isferð til írlands og Danmerkur í s.l. mánuði. Þar sáu þeir hvemig staðið er að sorpurðun í þessum nágrannalöndum okkar. Pétur sagði vandamál á borð við fok og söfnun og meðferð á sigvatni vera leyst á aðdáunarverðan hátt á þess- um stöðum. Meðal þess sem vakti at- hygli þeirra var aðferð Iranna við að halda vargfugli frá urðunarstöðunum, en þeir voru með tamda fálka í því „starfi“. Pétur taldi hinsvegar hæpið að þessi lausn yrði leyfð hér á Jandi. Hreint Vesturland „Eftir þessa kynnisferð erum við sannfærðir um að hægt er að standa eðlilega að þessum máluin hjá okkur, þótt aðstæður séu á margan hátt ólíkar. Við sáum m.a. sorpurðunarstað í 300 metra fjarlægð frá bóndabýli og virtist satnbúðin ganga vel. Ég er ekkert hissa þó fólk sé tortryggið gagnvart sorpurð- unarstöðum en það er langur vegur frá gamaldags ruslahaug til þess sem við erum að fara að gera í Fíflholtum. Við leggjum mikinn metnað í þetta verkefni og ef gott samstarf næst meðal íbúa horfum við fram á hreint Vesturland,” sagði Pétur að lokum. OFLUCRI OG BETRI ÞJONUSTA HAGKVÆMARI TRYGGINGAR AUKIN TRYGGINGAVERND F-PLÚS FJÖLSKYLDUTRYGGINGIN VEITIR ALLTAÐ 35% AFSLÁTT, SEM GREIÐIST STRAX. Vátryggingafélag íslands hf. Svæbisskrifstofa Borgarbraut 38 310 Borgarnes. Símar 437 1010 og 437 1011 Þar sem tryggingar snúast um fólk Heimasíöa fyrír Stykkishólmsbœ Tilboð óskast í gerð heimasíðu fyrir Stykkishólmsbæ, á veraldarvefnum. Tilboð skal gert í forsíðu fyrir bæjarfélagið auk undirsíðna fyrir stofnanir bæjarins og fleira. Óskað er eftir föstu tilboði fyrir aðalsíðu og aðrar síður auk tímagjalds fyrir aðra vinnu og áætlun um hve mikil tímavinna er nauðsynleg. í tilboðum skal tekið fram hve margar mynd- ir gert er ráð fyrir að verði á síðunum og annað sem bjóðendur telja skipta máli. Æskilegt er að tilboðum fylgi sýnishorn af fyrri verkum eða upplýsingar um hvar þau er að finna. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Tilboðum skal skila til bæjarskrifstofu Stykkishólmsbæjar, Skólastíg 11, í síðasta lagi þriðjudaginn 3 mars 1998. Tilboð má einnig senda á netfang bæjarins: stykkish@isholf.is Bæjarstjórí. Tuttugu ár á Höfba DVALARHEIMILIÐ Höfði á Akra- nesi hélt upp á tuttugu ára afmæli sitt fyrir skömmu. Þann 31. janúar s.l. var boðið til hátíðarsamkomu á heimilinu. Þar mættu, auk heimilisfólks, starfs- menn, stjóm, þingmenn kjördæmisins, sveitarstjórnarmenn ofl., alls um 250 manns. Daginn eftir, sunnudag, kom álíka fjöldi gesta til afmælisfagnaðar en þá hófst opin afmælisvika í tilefni tímamótanna. Á afmælishátíðinni kynnti Ástnund- ur Olafsson framkvæmdastjóri Höfða útgáfu veglegs afmæhsrits og úrklippu- safn sem inniheldur allar blaða- og fréttagreinar sem varða þróun öldrun- arþjónustu á Akranesi s.l. þrjátíu ár. NemendurTónlistarskólans fluttu ýmis tónlistaratriði, Skagaleikflokkurinn flutti leikritið Frátekið borð og margt fleira var til skemmtunar. Á hátíðarsamkomunni á laugardeg- inum vom sjö aðiiar heiðraðir sérstak- lega með „Grettistaki". Þeir eru ló- hannes Ingibjartsson og Anton Ottesen núverandi og fyrrverandi stjómarmenn Höfða, Petra Jónsdóttir og Emih'a Áma- dóttir starfsmenn heimilisins frá upp- hafi og Helgi Guðmundsson sem dval- ið hefur á heimilinu frá stofnun þess. Þá voru Félagsmálaráð og Sjúkravinir Rauða krossins heiðruð fyrir langt og farsælt starf á Höfða. Ásmundur Ólafsson meb úrklippu- safnib sem hann hefur tekib saman um þróun öldrunarþjónustu á Akra- nesi. í afmælisvikunni sýndu feðgarnir Friðþjófur Helgason og Helgi Daníels- son ljósmyndir af öllum íbúum Höfða, 80 að tölu. Einnig má geta þess að í til- efni afmælisins hafa nemendur Fjöl- brautarskóla Vesturlands hannað heimasíðu dvalarheimilisins. Heimil- inu hefur borist fjöldi gjafa frá velunn- urum þess. Heimilismenn Höfba sitja ekki aubum höndum. Stór hluti heimilismanna leggur stund á margvíslegt handverk. Hér er einn íbúi Höfba ab flokka afklipp- ur frá sokkaverksmibjunni Trico, en þær enda sem glæsilegar gólfmottur. • • UTSOLULOK Síðustu dagar útsölunnar, útsölu lýkur kl. 14:00 laugardag. Notið tœkifœrið og gerið góð kaup! BETRI BUÐIN ^Jun " "V , W Bi ^ 300 Akranesi BETRI SK0R A BETRA VERÐI sími43i nss

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.