Skessuhorn - 18.02.1998, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 18. febrúar 1998
únciaiðutn/kw
OSTAURVAL
VEISLUÞJÓNUSTA
HEILSUVÖRUR
Föstudaginn 20. febrúar og laugardaginn 21.
febrúar veröur kynning á veisluþjónustu
í Ostahorninu.
Ef þið ætlið að halda veislu á næstunni þá lítið
við og sjáið hvort við getum hjálpað ykkur.
OSTAHORNIÐ
Sími 437-1640 og 437-1781
Calopinn
Akraneslisti
Nýtt bæjarmálafélag
AKRANESLISTINN, samstarf A
flokka á Akranesi ásamt Kvennalista,
sendi í síðustu viku út auglýsingu í hús
á Akranesi. Þar var óskað eftir hug-
myndum um fólk á framboðslista sam-
takanna. Bæjarbúum var gefinn kostur
á að tilnefna allt að fimm einstaklinga
sem þeir vilja sjá sem verðandi bæjar-
fulltrúa.
Gísli S. Einarsson þingmaður jafn-
aðarmanna, er einn af tíu meðlimum í
uppstillingarnefnd Akraneslistans.
Hann sagði í samtali við Skessuhom að
þær tillögur sem bæmst yrðu hafðar til
hliðsjónar við gerð listans. Uppstill-
ingamefnd hyggst ijúka niðurröðun í
sæti fyrir helgi og fer síðan tillaga
nefndarinnar til afgreiðslu í stjóm Akra-
neslistans.
Gísli sagði að með tilkomu Akra-
neslistans væru A flokkarnir ásamt
Kvennalista í raun hættir afskiptum af
bæjarmáium en hið nýja bæjarmálafé-
lag tekið við. Formaður Akraneslistans
er Guðbjartur Hannesson.
Fyrirtæki ársins
Frá stofnfundi Kornræktarfélags Vest-
uriands í Félagsbæ í Borgarnesi.
Leikib á alls oddi
Nemendur 1. - B. bekkjar sýndu atri&i úr Gullna hliðinu. Hér er skrattinn á
tali vi& kerlinguna.
ÞAÐ var leikið af innlifun og anda- skemmta áhorfendum sem fylltu húsið.
gift á árshátíð Kleppjámsreykjaskóla í Fjölmargir leikþættir vom færðir á fjal-
Borgarfirði, fimmtudaginn 29. janúar imar og í lokin sýndu nemendur dans-
s.l. Hátíðin var að venju haldin í fé- fimi sína en undangengnar tvær vikur
lagsheimilinu Logalandi í Reykholts- hafði staðið yfir dansnámskeið í skól-
dal. Nemendur skólans sáu um að anum.
ATVINNUMÁLANEFND Borgar-
byggðar hefur tekið upp þá nýbreytni
að standa fyrir vali á fyrirtæki ársins í
sveitarfélaginu. Úrslitin vom kynnt f
samsæti á Hótel Borgarnesi 5. febrúar
s.l. Fyrirtæki ársins 1997 varLoftorka
hf. sem hlaut að launum veglegan verð-
launagrip. Um hönnun og smíði verð-
launagrips sá Oddný Þórunn Braga-
dóttir í Borgarnesi.
I máli Gunnars Guðmundssonar for-
manns atvinnumálanefndar kom fram
að skoðaðir hafi verið þrír meginþætt-
ir í rekstri fyrirtækja þegar val á „fyrir-
myndarfyrirtækinu" fór fram. í fyrsta
lagi rekstrarumsvif, velta og starfs-
mannafjölgun. í öðm lagi nýsköpun í
framleiðslu, vöruþróun og markaðs-
setning og í þriðja lagi aðbúnaður
starfsfólks, umhverfismál og jákvæð
ímynd. Nefndin leitaði tilnefninga frá
almenningi, Verkalýðsfélagi Borgar-
ness, Atvinnuráðgjöf Vesturlands og
Markaðsráði Borgarfjarðar.
I úrskurði atvinnumálanefndar kom
m.a. fram að fjölgun starfsmanna hjá
Loftorku var um 40% á síðasta ári, velta
þess hafi tvöfaldast og fyrirtækið hafi
sótt fram á nýjum sviðum af krafti og
áræðni.
Einnig hlutu Eðalfiskur hf. og Vír-
net hf. sérstakar viðurkenningar. Eðal-
fiskur fyrir vöruþróun og sókn á er-
lenda markaði og Vímet fyrir jákvæða
ímynd og stöðugleika.
Komræktarfélag
stofnab á
Vésturlandi
STOFNFUNDUR Komræktarfé-
lags Vesturlands var haldinn í Borgar-
nesi 3. febrúar s.l. Mikil vöxtur er í
þessari búgrein í kjördætninu en ekki
em nema tvö ár síðan komrækt hófst
fyrir alvöm á Vesturlandi.
Tilgangur KV er að gæta hagsmuna
kom- og fóðurframleiðenda á Vestur-
landi, stuðla að fræðslu um kornrækt
og vera aðili að Landssambandi korn-
bænda.
f stjórn félagsins voru kjörnir:
Magnús Eggertsson Ásgarði formaður
og meðstjómendur þeir Ásgeir Krist-
insson Leirá og Þorkell Guðbrandsson
á Mel.
Á fundinum kynnti Jónatan Her-
mannsson frá RALA, niðurstöður úr
komræktartilraunum á Vesturlandi á
síðasta ári. Uppskera var í flestum til-
fellum góð en sáð var í um 70 hektara.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að komi
verði sáð í allt að 100 hektara lands.
Ver&launahafarnir þrír (talið frá hægri): Konrá& Andrésson frá Loftorku hf.,
Páll Gu&bjartsson frá Vírneti hf. og Ragnar Hjörleifsson frá E&alfiski hf.
Konráð Andrésson framkvæmdastjóri Loftorku (t.h) tekur við verðlauna-
gripnum úr hendi Gunnars Guðmundssonar formanns atvinnumálanefndar.
Auglýsendur ath!
Þjónustuauglýsing í Skessuhorni borgar sig.
Kynniö ykkur verbib í síma 437 2262.
i