Skessuhorn - 18.02.1998, Page 9
Miðvikudagur 18. febrúar 1998
9
-4-
Fyrst
áís-
landi
Elínborg Lárusdóttir í verslun sinni ab Esjubraut13.
ELINBORG Lárusdóttir á Akranesi
hefur nýverið koinið á fót verslun sem
selur hinar þekktu Arbonne snyrtivör-
ur. Þetta vörumerki hefur fram til þessa
einungis verið selt í svokölluðum
heimakynningum og að sögn Elínborg-
ar er verslun hennar sú fyrsta hér á landi
sem fær leyfi til að selja vörumar á al-
mennum markaði.
Elínborg hefur selt Arbonne snyrti-
vömrnar í heimahúsum s.l. þrjú ár og
verið söluhæst á landsvísu. Akumes-
ingar og nágrannar ættu því að vera
vömnum vel kunnugir. Þær em amer-
ísk framleiðsla eftir svissneskri formúlu
unnar úr náttúmlegum efnum eingöngu.
Að sögn Elínborgar em Arbonne vör-
umar framleiddar bæði fyrir konur og
karla. Sagðist hún ennfremur veita við-
skiptavinum persónulega ráðgjöf varð-
andi val á snyrtivörum.
Gróska í tónlðstinni
Hluti af lúbrasveit Tónlistarskólans sem fetar sig áfram öruggum skrefum í
átt til heimsfrægbar. Sveitin var stofnub fyrir ári síban og fer hún ört vax-
andi. Félagar eru í dag átján talsins. Stjórnandi lúbrasveitarinnar er Fribrik
Stefánsson, skólastjóri Tónlistarskólans.
í Gmndarfirði er mikill tónlistará-
hugi sem þó fer ört vaxandi. Sem dæmi
má nefna að í janúar voru biðlistar á
vorönn Tónlistarskólans. Að sögn
Bjargar Agústsdóttur sveitarstjóra,
þurfti að auka stöðuhlutfall við skólann
til að mæta aukinni eftirspum.
Tónlistarskólinn flutti í nýtt hús-
næði í desember s.l. í áður ónýttan
hluta áhaldahússins. Innangengt er
milli skólans og Grunnskólans. Þess
má geta að húsnæði Tónlistarskólans
var innréttað á mettíma, eða innan við
átta vikum, en er þó hið glæsilegasta.
I kjölfarið á hinum mikla tónlistar-
áhuga þeirra Grundfirðinga var stofn-
að félag til styrktarTónlistarskólanum
og nefnist það; Samtök áhugafólks um
tvíeflingu Tónlistarskólans. Félagið
hyggst halda styrktartónleika fyrir skól-
ann þann 28. mars n.k. Á tónleikunum
munu koma fram allir þeir sem við tón-
list fást í Eyrarsveit.
Heilsurækt á nesinu
Eigendur Sólarsport, Gylfi, jóhanna, Sigurbur og Kristín vib hin vinsælu
"spinning" hjól.
I Ólafsvík hefur verið komið á fót
fullkominni heilsuræktarstöð sem ber
nafnið Sólarsport. Stöðin er við Ólafs-
braut í nýinnréttuðu húsnæði fyrir ofan
Litabúðina.
Eigendur Sólarsports eru hjónin
Gylfi Scheving og Jóhanna Hjelm og
tvö bama þeirra, þau Kristín og Sig-
urður.
I Sólarspoiti er rúmgóður salur fyr-
ir pallaleikfimi og þreksalur þar sem
kennt er hið geysivinsæla „spinning”.
Þar verða einnig lyftingatæki og önnur
tól til að stæla vöðvana. Þá em í stöð-
inni þrír fullkomnir ljósabekkir, sauna-
bað og nuddaðstaða.
Jóhanna og Gylfi sögðu gífurlegan
kostnað liggja í nýju stöðinni enda
hefðu þau lagt áherslu á að vera með
tæki af fullkomnustu gerð. Þau sögðu
viðtökumar hafa verið mjög góðar og
áhuginn færi ört vaxandi.
Dramatískar
lokasekúndur
✓
lA-Skallagrímur: 66-64
ÞAÐ var gífurleg spenna í ná-
grannaslag Vesturlandsliðanna í DHL
deildinni í körfuknattleik. Leikurinn
fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu,
8. febrúar s.l. Segja má að leikurinn
hafi verið úrslitaleikur um hvort lið-
anna ætti möguleika á að ná inn í úr-
slitakeppnina.
Skagamenn náðu fljótlega undirtök-
um í leiknum og höfðu 12 stiga for-
ystu í leikhléi. Þeir voru mun frískari
framan af og hittu vel fyrir leikhlé.
I upphaft fyrri hálfleiks snerist dæm-
ið við. Skagamenn skoruðu aðeins sjö
stig fyrstu tólf mínútur hálfleiksins og
virtust alveg heillum horfnir. Þá náðu
Skallagrímsmenn að vinna upp forskot-
ið og komust yfir um miðjan hálfleik-
inn. Hnífjafnt var undir lokin. Liðin
skiptust á um að hafa forystu þangað til
18 sekúndur voru eftir. Staðan var jöfn
64 -64 og stefndi í framlengingu. Þá tók
Ermolinski málin í sínar hendur og
skoraði úrslitakörfuna og Skagamenn
eiga áfram möguleika á sæti í úrsiita-
keppninni en Skallagrímsmenn sitja
eftir.
Ennolinski og Brynjar vom bestu
menn Skagamanna en Bragi var bestur
gestanna.
Staban
í DHL
deild-
inni
Röð Félag Leikir stig
1. Grindavík 18 32
2. Haukar 18 26
3. Keflavík 18 22
4. KFÍ 18 22
5. KR 18 20
6. UMFN 18 20
7. Tindastóll 18 20
8. ÍA 18 18
9. Skallagrímur 18 14
10. Valur 18 10
11. Þór Ak. 18 6
12. ÍR 18 0
íþrótta-
dagur
Á morgun, fimmtudag, verður
íþróttadagur í Borgamesi undir kjör-
orðinu „Upp með fþróttir - niður með
vímuefni".
Meðal þess sem boðið verður upp á
er ókeypis aðgangur að sundlaug og
þreksal. Eftir hádegi hefst íþróttahátíð
Grunnskólans og seinni part dags
kynna yngri flokkar Skallagríms sínar
íþróttagreinar. Klukkan 17:00 verður
íþróttamaður ársins heiðraður.Ýmis-
legt fleira verður boðið upp á þennan
Iþróttadag sem hefst kl 7:00 og lýkur
með leik Skallagríms og Njarðvíkur í
DHL deildinni kl. 20:00.
Ný félagsaðstaða Skallagríms í
Skallagrímshúsinu verður kynnt gest-
um og gangandi þennan dag. í húsinu
eru deildir Skallagríms með skrifstof-
ur.
Þegar blabamann bar ab garbi var Liija Stefánsdóttir erobikk- og íþrótta-
kennari meb stóran hóp kvenna í pallaleikfimi og þar var ekkert gefib eft-
ir.
M
METRÓ
Tilbob á Quick Step plastparketi.
1.795 kr. pr. fm.