Skessuhorn - 16.07.1998, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ1998
S£lSSIjíiO£ia
SMÁ-AUGLÝSINGAR
LEIGUMARKAÐUR |
Einbýlishús í Snæfellsbæ
til sölu eða leigu. Húsið er st-
teinhús. Hæð og kjallari. 5-6
herbergja. 60 m2 bílskúr. Verð
4,9-5 milljónir. Mikið áhvílandi,
aðallega húsbréf. Uppl.í síma
562 6914. Kristín.
Vantar íbúð til leigu í sumar
eða haust. Þarf að vera sunnan
Skarðsheiðar. Uppl. í sfma 433
8766.
Ungt par óskar eftir fbúð til
leigu 2.-3. herbergja frá og með
1. sept. áAkranesi Uppl. í síma
897 4495 á daginn og 552
6737 á kvöldin.
Óska eftir að taka á ieigu
bílskúr, verður að hafa raf-
magn. Uppl. í síma 897 5184
og 431 2839.
Óska eftir að taka herbergi
á leigu í Borgarnesi frá og með
15. ágúst n.k. Uppl. í síma: 431
1031 Matthías Freyr. eða 845
3881 símboði.
Til leigu á Akranesi þriggja
herbergja íbúð. Laus strax.
Uppl. í síma 431 2110 og 431
2206 á kvöldin.
~ ÝMISLEGT
Lítill sumarbústaður f Ölver
til sölu. Selst ódýrt. Uppl . í
síma 431 2110 og 431 2206 á
kvöldin.
TIL SÖLU
Til sölu laxa- og silunga-
maðkar. Uppl. í síma 431 2509
eða 699 2509.
Til sölu Jötun súgþurkunar-
mótor 4,5 hestöfl. Nýlega upp-
gerður, eins fasa, 440 volt.
Uppl. í síma 437 1820 eftir kl.
20:00 á kvöldin (Jón).
Til sölu NMT Maxon farsfmi.
Uppl. í síma 435 1562.
FYRIR BÖRN
Óska eftir 13-14 ára stúlku
til að passa tveggja ára strák á
Akranesi. Óreglulegur vinnu-
tími. Uppl. í síma 431 3102.
Fjólublátt þríhjól með skúffu
verð 2.500,- kr. BMX hjól fyrir
ca. 5 ára, (gamalt), verð 1.000,-
kr. Uppl. í síma 431 3376.
HÚSBÚNAÐUR
Óska eftir skrifborði
m/skúffum og skáp. Helst með
tölvuborði. Uppl. í síma 431
2839 og 897 5184.
BÍLAR; HJÓL OG VAGNAR
Til sölu hjólhýsi uppl. í síma
436 1222.
Til sölu Nissan Sunny 4x4
'95. Ekin 103.000 km. Fæst
með yfirtöku á láni. Uppl. í síma
438 1747.
DÝRAHALD
Til sölu 40.000 lítra
greiðslumark í mjólk. Tilboðum
skal skilað til Búnaðarsamtaka
Vesturlands, Borgarbraut 61,
310 Borgarnes. Uppl. í síma:
437 1215.
FATNAÐUR
Skátaskyrta no. 36/37, verð
1.500 kr,- Gaddaskór fyrir
frjálsar íþróttir no. 8, lítið núm-
er, verð 3.000,- kr.
Harmþrungin
kveðjustund
Föstudaginn 10. júlí fór Akraborg-
in í sína síðustu ferð og lauk þar með
meira en 100 ára sögu samgangna á
sjó milli Akraness og Reykjavíkur.
Þegar „Boggan“ lét úr höfn á Akra-
nesi kl. 17:00 á föstudeginum voru
flautur þeyttar í togurum í höfninni
og bílum á hafnarbakkanum. Þegar á-
hafnarmeðlimir voru spurðir hvemig
þeim liði loks þegar stóra stundin
væri mnnin upp kváðust þeir vera
sáttir enda væri aðdragandinn orðinn
langur og nægur tími hefði gefist til
að sætta sig við orðinn hlut.
Einstaka tár
Akraborgin var kvödd með virkt-
um í Reykjavík og fylgdu henni hafn-
sögubátar úr höfn ásamt smábátum.
Þegar >Boggan“ kom síðan í síðasta
sinn á Skagann þá upphófst einn als-
heijar blástur úr togumm og >Bogg-
unni“ sjálfri sem sigldi tignarleg inn í
hinsta sinn troðfull af farþegum og
bílum. Á móti farþegum >Boggunn-
ar“ tók mikill mannfjöldi og haft var
á orði að elstu menn myndu ekki eft-
ir öðm eins! Er það til marks um hve
stóran þátt Akraborgin hefur spilað í
líft og starfi Skagamanna undanfarin
100 ár. Ekki var laust við að stöku tár
læddust niður kinnar þeirra við-
kvæmustu og loftið var þmngið trega
sem þó var blandinn tilhlökkun um
nýja tíma sem í vændum em með
opnun Hvalfjarðaganga. Mannfjöld-
inn fylgdist náið með því er bílar
tóku að streyma úr kvið >Boggunar“
og er sá síðasti kom í land klappaði
fólkið á bakkanum og þar með lauk
meira en aldarlangri sögu samgangna
á milli Akraness og Reykjavílcur.
„Góbir Akureyringar"
Á hafnarbakkanum röktu ræðu-
menn sögu Akraborgarinnar og Hall-
dór Blöndal flutti ávarp. Samgöngu-
ráðherra er trúr sínum heimaslóðum
því hann hóf ávarp sitt með eftirfar-
andi orðum: „Góðir Akureyringar".
Hvort ráðherrann var í anda staddur á
slóðum Helga magra skal ósagt látið
en eins og Skagamanna er siður þá
var ráðherra fyrirgefið með lófataki
og gríni enda vita Skagamenn vel
hvað það er að vera stoltur af heima-
byggð sinni!
Erfidrykkja
„Boggunnar"
Að loknum ræðuhöldum var við-
stöddum boðið upp á marsipantertur
frá Harðarbakaríi, gos og kaffi í boði
Skallgríms hf. Ekki hafði verið gert
ráð fyrir svo miklum mannfjölda sem
raun varð á enda gekk fljótt á birgð-
imar en því var snarlega bjargað.
Ýmis skemmtiatriði vom í boði sem
var vel tekið af viðstöddum þar á
meðal flutti Skagaleikflokkurinn
Akraborgarblús, fmmsamið leikverk
sem tengist sögu Akraborgarinnar og
verður sýnt áfr am á Akranesi í sumar.
Góður rómur var gerður að sýning-
unni sem er fjömg og skemmtileg.
Texti og myndir: A. Kúld
Akraborgin verbur Sæbjörg
Slysavarnaskóli sjómanna eflist verulega
Slysavarnafélag íslands stofnabi
Slysavarnaskóla sjómanna árið
1985. Me& því var stigi& stórt fram-
faraskref í öryggismálum sjómanna
því frá því að skólinn var stofnaður
hefur margoft komið í Ijós að þátt-
taka í námskeiðum hans hefur hjálp-
a& sjómönnum að bregðast rétt við
slysum og átt sinn þátt í björgun
mannslífa.
Markmið skólans eru að auka öryggi
sjómanna í starfi með markvissri
miðlun þekkingar á öryggismálum. í
nýlega samþykktri stefnumótun fyr-
ir SVFÍ kemur m.a. fram sem mark-
mið samtakanna að "efla öryggis-
fræðslu sjómanna með öflugum
skóla sem uppfyllir íslenskar og al-
þjó&legar kröfur um þjálfun sjó-
manna; að auka þjónustu við sjó-
menn og fleiri aðila í tengsium við
sjó og vötn; og að fækka og koma í
veg fyrir slys".
Rúmu ári eftir stofnun Slysavarna-
skólans var hann fluttur í gamla
varðskipið Þór sem fékk þá nafnið
Sæbjörg. Síðan
hefur Sæbjörgin
verið kennslu-
skip skólans.
Með því að færa
kennsluna á
skipsfjöl var
hægt að færa
hana til sjó-
manna á lands-
byggðinni.
Árið 1988 náðist
sögu
skólans sem
tryggði hann
mjög í sessi. Þá
var undirritað
samkomulag
milli SVFÍ og
samgönguráðu-
neytisins þar
sem félaginu var
falið að sjá um
öryggisfræðslu
fyrir starfandi
sjómenn með
starfrækslu
Slysavarnaskóla
sjómanna. Sér-
stök lög voru
sett um skólann
árið 1991. Þar
með var grund-
völlur skólans
trygg&ur með því a& ríkið greiðir
rekstrarkostnaðinn.
Nemendafjöldi við skólann hefur
vaxið jafnt og þétt enda hafa stjórn-
völd lagt áherslu á að allir sjómenn
sæki fræðslu um öryggismál með
því að gera hana að skyldu við lög-
skráningar. Fljótiega kom í Ijós að ef
skipið ætti að notast í mörg ár til
viðbótar yr&u að fara fram á því
miklar og kostnaðarsamar vi&ger&ir
og því var talið vænlegra að endur-
nýja það og fá stærra skip.
Á haustmánuðum í fyrra hóf Slysa-
varnafélagið að kanna hvort unnt
yrði að fá Akraborgina þegar henni
yrði lagt í kjölfar opnunar Hvalfjarð-
arganganna. Að beiðni samgöngu-
ráðherra, fór fram samanburður á
rekstri Akraborgar og Sæbjargar og
voru ni&urstöðurnar á þann veg að
um álitlegan kost væri að ræða fyrir
skólann, enda er "Boggan" 22 árum
yngri en gamla Sæbjörgin. Ef skipin
tvö eru borin saman kemur m.a. í
Ijós að í brúttólestum er Akraborgin
um þriðjungi stærri og í brúttó-
tonnum nær þrefalt. Flatarmál lok-
aðra rýma í Akraborginni er meira
en tvöfalt stærra en gömlu Sæbjarg-
arinnar. Akraborgin er enda um
tveimur metrum breiðari og tæp-
lega sex metrum lengri. Tveimur af
þremur sölum Akraborgarinnar
verður breytt í kennslustofur, en
Sæbjörgin var aðeins með eina
slíka.
Bílaþilfar Akraborgarinnar nær
stafna á milli og verður það notað
sem æfingasvæ&i þar sem meðal
annars verður æfð reykköfun auk
þess sem þar verður a&staða fyrir
búnað og viðhald hans. Einnig verð-
ur komið fyrir búningsaðstöðu
nemenda sem er til mikilla bóta því
áður þurftu nemendur að hafa bún-
ingaskipti á göngum skipsins. Auk
gömlu björgunarbáta Akraborgar-
innar verður bætt við þeim þriðja
sem er frífallandi björgunarbátur
sem gefinn var og ættaður er úr Vik-
artindi.
Með tilkomu Akraborgarinnar,sem
nú heitir Sæbjörg, er því Ijóst að
miklar breytingar verða til batnaðar
fyrir Slysavarnaskóla sjómanna. Um
leið aukast möguleikar skólans til að
auka fyrirbyggjandi fræðslustarf,
veita þjónustu og ráðgjöf, fjölga
námskeiðum og minnka þar með
biðlista. Það er gott til þess að vita
að Boggan kæra kemur áfram, sem
hingað til, a& góðum notum og
vafalaust á hún því oft eftir að sjást
á kunnuglegum slóðum á Skipa-
skaga.
i brúnni.
Samningurinn undirritaður.