Skessuhorn


Skessuhorn - 17.09.1998, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 17.09.1998, Blaðsíða 5
i»V i'LU t - « aSffiSSlíHOEEl ít'í'l' ,c)as Af P-JÐ/. IU1MMP. FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 5 Kristján Sæmundsson vi& fyrstu tilraunaholuna í landi Hofssta&a 1995. Þetta er allt liður í að skapa mögu- leika til húshitunar í framtíðinni og auka lífsgæði á þessu svæði. Það vita allir sem reynt hafa hvílík lífsgæða- aukning er fólgin í heita vatninu. Það er ljóst að rafmagnið mun aldrei keppa við jarðhitann. Um 90% lands- manna eru komnir með hitaveitu en þetta eru lífsgæði sem ég tel að allir eigi að njóta ef mögulegt er. Heitt vatn hefur gífurlega þýðingu fyrir byggðaþróun í landinu og jarðhitinn getur haft afgerandi áhrif á það hvar menn kjósa að búa. Okkar árangur hér hefur ýtt við mönnum að leita að jarðhita á köldum svæðum og það er mjög ánægjulegt. Það er greinileg viðhorfsbreyting að eiga sér stað og ég get til gamans nefnt sem dæmi að þegar við vorum að byrja hér þá hringdi vinur minn Kristján Haralds- son forstjóri Orkubús Vestfjarða í mig og skammaði mig fyrir þetta brölt. En nú er hann sjálfur kominn í jarðhitaleit. Ég vona að ríkisvaldið láti nú gott af sér leiða og styðji meir og betur við þá sem eru í jarðhitaleit og þá sérstaklega að það efli til mik- ila muna Jarðhitadeild Orkustofnun- ar. Það er mikilvægt að þeir stýri og ákveði hvar skal rannsaka og hvenær skal borað. Það er engum betur fært að meta það en okkar færu vísinda- mönnum. Þrátt fyrir að Kröfluvirkjun hafi verið gífurlega umdeild fram- kvæmd á sínum tíma þá hefur hún fært okkur geysilegan þekkingarauka á sviði jarðvísinda. Það mikinn að í dag eru íslenskir jarðvísindamenn eftirsóttir um allan heim. Þetta eru verðmæti sem við eigum að nýta okkur hér heima fyrir. Pólitíkin Erling Garðar situr í bæjarstjóm Stykkishólms á nýbyrjuðu kjörtíma- bili. Hann var efsti maður á S-lista sem stofnaður var fyrir síðustu kosn- ingar af stuðningsmönnum A flokk- anna í Stykkishólmi. Það eru hins- vegar ekki fyrstu afskipti hans af pólitík því hann var í bæjarstjóm á Egilsstöðum um árabil og tók einnig þátt í landsmálapólitíkinni meðan hann bjó fyrir austan. „Ég var alveg á bólakafi í pólitíkinni fyrir austan. Það byrjaði með því að við Sveinn Jónsson, hinn landskunni stórbóndi á Egilsstöðum, stofnuðum H-listann árið 1970. Ég sat síðan í bæjarstjóm Egilsstaða á árunum 1970 - 1982. Þá fór ég í framboð til Alþingiskosninga árið 1971 fyrir Alþýðuflokkinn og skipaði fyrsta sætið það ár og aftur 1974. Það var mjög skemmtileg reynsla og ég fékk ómetanlegan fróð- leik af því að taka þátt í fjölmörgum framboðsfundum með höfðingjum eins og Lúðvík Jósefssyni, Eysteini Jónssyni og fleimm, t.d hraustleika- manninum og vini mínum Sverri Hermannssyni. Það var ljóst að gengi Alþýðu- flokksins var ákaflega lítið í þessu kjördæmi. Flokkurinn var nokkuð sterkur á Seyðisftrði og Eskifirði en menn sögðu gjaman að það væm fjórir kratar fyrir sunnan Fáskrúðs- íjörð. Ég var oftar en ekkr ferðafélagi Lúðvíks á framboðsferðalögum um kjördæmið og þar lærði maður að meta þessa samferðamenn sína. Lúð- vík setti fram ýmsar reglur sem átti að fylgja á þessum ferðalögum og m.a. var í hvert skipti samþykkt að tala aldrei um pólitík á meðan við væmm á akstri. Það stóðst yfirleitt í fimm mínútur en þá var hann byrjað- ur. Hann var þvílíkur ákafamaður í pólitik að það var ekki viðlit að hann gæti staðið við þessi áheit sín. Fyrir kosningamar 1978 var ég í heiðurssætinu en þurfti samt að taka þátt t fundahöldum, bæði þá og árið eftir og síðast 1983. Yngri frambjóð- endumir treystu sér ekki einir og ó- studdir r þessar hakkavélar, þá Lúð- vík, Eystein og Sverri. Ég var þá hafður með til að opna munninn og segja eitthvað af viti, ..sem þó sjald- an var. Framboðsfundimir fyrir austan á þessum árum jöfnuðust á við þá svæsnustu á Vestfjörðum og fram- bjóðendumir gengu undir nafninu farandleikhúsið. Þama vora á ferð- inni skemmtilegir menn, skáld og hugsuðir sem maður metur mikils að hafa kynnst. Þau kynni komu mér einnig vel r mínu starfr og eins í sveitarstjómarmálunum. Ég gat leit- að til þessara manna ef þörf var á og mat þá mikils sama í hvaða flokki þeir vom. Þama lærði maður að bera virðingu fyrir andstæðingum í pólitík og að hefja ekki pólitíska kappleiki án þess að sjá fyrir endann á þeim. Það er nokkuð sem menn vilja gleyma í dag.“ Déskotans bakterían Erling þagnar ofurlitla stund þegar hann er spurður hvort honum hafi ekki dottið í hug að reyna aftur við landsmálapólitfkina eftir að hann var kominn í annað kjördæmi. „Ég fékk Mynd Erling Garðar. skemmtilega áminningu í kosningar- baráttunni héma í vor. Ég heyrði þann orðróm að maðurinn væri orð- inn svo gamall að hann ætti ekki að vera að standa í þessu. Það var afar þörf áminning. Annars er ég þeirrar skoðunar að aldur sé ekki allt. Ég var reyndar kominn með upp í háls af pólitíkinni þegar ég hætti í henni fyr- ir austan og búinn að heita því að ganga ekki í neitt félag framar annað en golfklúbb. Þegar ég fór að vinna í jarðhitaleitinni vaknaði déskotans bakterían aftur og ég lét til leiðast fyrir kosningamar í vor. Það liggja miklir straumar í átt til sameiningar vinstri manna og ég vildi leggja mitt af mörkum fyrir málstaðinn. Arang- urinn var alveg ásættanlegur. Okkur vantaði aðeins tæp 18 atkvæði til að fá þriðja manninn inn og fella þar með þann meirihluta sem hér hefur setið nánast frá því land byggðist," sagði Erling og hló við. Samstaöan fyrir öllu Aðspurður um framtíðarhorfur á Vesturlandi kveður Erling þær liggja í samstöðu íbúanna. „Landsbyggðin er í gífurlegri samkeppni við höfuð- borgarsvæðið og situr þar ekki við sama borð. Félagsleg staða Reykja- víkur er mun betri er annarra sveitar- félaga og um 90% starfa á vegum ríkisins em í Reykjavík sem er í hæsta máta óeðlilegt hlutfall. Landsbyggðin á í vök að verjast og við þurfum að hafa vit til að standa sameiginlega að málum í stað þess að sóa okkar tíma og orku í pólitíska kappleiki heima fyrir,“ sagði Erling Garðar að lokum. Texti og myndir: G.E. UmhJ -Snæfellsbær- C :J Spurningakeppni í V Röst 1998-1999 Nú líður senn að því að hin árvissa spurningakeppni í félagsheimilinu Röst hefjist á nýjan leik. Við auglýsum því eftir fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í keppninni í vetur. Eins og venjulega eru þetta þriggja manna lið og því fleiri og fjölbreyttari sem liðin eru þeim mun skemmtilegri verður keppnin. Skxáning er í síma 436-6900 Frestur er til 21. september og er fyrirhugað að halda fyrstu spumingakeppni vetrarins laugardaginn 3. október. Erling Gar&ar Jónasson umdæmisstjóri RARIK á Vesturlandi. BÁRAN bárugötu i5 - akranesi - sími 43i 44«o og skemmtistaður Hótelið ‘Fímmtucfagínn 17. seytemfaer Trúbadorinn Tóti frá kl. 10 til 01 Töstuáagínn 18. seytemfaer Skítamórall frá kl. 11 til 03. Þar sem innihaldið skiptir ekki máli! Laugarcfagínn 19. seytember „Diskó pöbb“ frá kl. 11 til 03. Óli „diskó“ geislar löginn BÁRU - SPORTklúbburinn. Gangið í SPORTklúbbinn á Bárunni og njótið þeirra hlunninda sem það gefur. Innritun alla daga á Bárunni. i Við minnum á síðasta heimaleik | mfl. karla í Landsímadeildinni í ár, I kl. 14 sunnudaginn 20.,sept. n.k. Af I því tilefni opnum við BÁRUNA kl. 12 * og bjóðum FRÍAR sætaferðir á " leikinn kl. 13.30. Áfram Skagamenn - til sigurs BÁRAN ^ Báran opnar sem N hér segir: Laugardaga/sunnu- daga kl. 13. Mánudaga til fimmtu- daga kl. 18. Spakmælið: Ber er hver að baki nema BÁRU sæki. Leikir framundan - sýndir á Bárunni 19.09. kl. 16 - Enski boltinn 19.09 kl. 18 - Spænski boltinn 20.09 kl. 14 -Landsímadeildin 20.09 kl. 16 -Enski boltinn 20.09 kl. 20 -Italski boltinn 20.09 kl. 22 -Islensku mörkin 21.09 kl. 19 -Enski boltinn 22.09 kl. 19 -Enski bikarinn 23.09 kl. 21 -Hnefaleikar 24.09 kl. 19 -Enski boltinn 26.09 kl. 14 -Landsímadeildin 26.09 kl. 16 V______________Enski boltinn J

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.