Skessuhorn


Skessuhorn - 17.09.1998, Page 8

Skessuhorn - 17.09.1998, Page 8
I ' I 8 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 MÚsuhuLi Sé& yfir réttarvegginn í Þverárrétt, fjárflestu rétt landsins. Alltaf fjör í réttunum þrátt fyrir endalausan samdrátt og niburskurð Réttað var í Þverárrétt í Borgar- byggð s.l. mánudag en hún er fjárflesta rétt landsins. Gangnamenn komu með féð af fjalli seinnipart sunnudags, slæptir eftir erfiðar göng- ur en þeir hrepptu vonskuveður í leit- inni. Síðan hófust réttarstörf í bítið morguninn eftir. Blaðamenn Skessu- homs litu við í réttinni á sunnudag og einnig í Fljótstungurétt en þar var réttað s.l. laugardag. Mikill fjöldi fólks var saman kom- inn í Þverárrétt á sunnudag til að fylgjast með því þegar féð kom af fjalli. Ahugasamir létu ekki rok og kulda á sig fá enda gátu menn tillt sér inn í notalegt félagsheimili Þverhlíð- inga þar sem konur úr sveitinni voru með kaffisölu. Við réttarvegginn hittum við Ás- mund Eysteinsson á Högnastöðum sem er óumdeilanlega fjárgleggsti maður landsins, þó víðar væri leitað. Hann hafði verið í Kirkjufellsrétt í Dölum sama dag en lét sig ekki vanta á sínar heimaslóðir. Eftir að hafa far- ið lauslega í gegnum fjárhópinn kvað Ásmundur upp þann úrskurð að féð kæmi þokkalega vænt af fjalli og í góðu meðallagi. Hann taldi að um sextán þúsund fjár væri í réttinni en mest sagði hann fjárfjöldann hafa farið í um 30 þús- und. Fljótstungurétt var s.l. sunnudag en féð var rekið til réttar seinnipart laugardags og um kvöldið var að mestu lokið við að draga í dilka. Sjálf réttin í Fljótstungu er um margt sér- stök því hún er talin vera elsta hlaðna hraunréttin sem enn er í notkun hér á landi. í Fljótstungurétt er réttað fé úr Hálsasveit og Reykholtsdalshreppi sem nú eru hluti af sveitarfélagi 3510, eins og sumir vilja nú kalla nafnlausa sveitarfélagið í Borgar- firði. Gangnamenn lentu í snjókomu og byl á Amarvatnsheiði á föstudegin- um og víst er að kuldalegt hefur ver- ið um að litast upp undir Eiriksjökli að þessu sinni. Kalsaveður setti einnig svip sinn á réttarstörfin og þrátt fyrir góðan vilja náðu menn vart að drekka úr sér hrollinn. Myndir: GE. og MM. Ármann á Kvalvararstö&um og Kolbeinn í Stóra-Ási bera saman bækur sínar á sí&asta spelinum til réttar. h wBŒxBk’i" 1 t T Þa& var handagangur í öskjunni og hrópað hátt þegar verið var a& reka féð inn í réttina. Kristján Axelsson fjallkóngur Tungnamanna var að koma úr sinni fertug- ustu leit. Kiddi í Örnólfsdal hefur einnig farið á fjallið lengur en lengstu menn muna. Jón Eyjólfsson bóndi og listamaður á Kópareykjum var klæddur samkvæmt nýjustu gangnatískunni. =4= 1

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.