Skessuhorn - 17.09.1998, Blaðsíða 14
14
FJMMTUDAGUB,17..9EPTEIV|3ER 1998
jataaunu^.
Vél heppnub afmælishátíb
Sundfélag Akraness og íþróttamiðstöðin héldu fagnað
Um sl. helgi hélt Sundfélag Akra-
ness upp á 50 ára afmæli sitt og í-
þróttamiðstöðin Jaðarsbökkum fagn-
aði um leið 10 ára starfsafmæli. Há-
tíðahöldin fóru vel fram og tóku
Skagamenn og nágrannar þeirra mik-
inn þátt í þeim og t.d. syntu ríflega
200 manns Akranessund frá einum
upp í þijá kflómetra á laugardeginum.
Á sunnudeginum var sprellað í laug-
inni og fór bæjarstjóm Akraness þar í
fararbroddi. Meirihlutinn og minni-
hlutinn þreyttu boðsund sem lyktaði
með „vafasömum“ sigri meirihlutans
þar sem síðasti þátttakandi þeirra
gerði sér lítið fyrir og hljóp síðasta
spottann. Síðan tókust á starfsmenn
bæjarins og stjóm Sundfélags Akra-
ness í reipitogi sem endaði með því
að allir þátttakendur blotnuðu enda
riddaramennskan í fyrirrúmi. For-
eldrafélag Sundfélags Akraness bauð
síðan uppá glæsilegt kaffihlaðborð og
veitti einar fjórar viðkenningar til að-
ila sem lagt hafa félaginu lið á óeig-
ingjaman hátt í gegnum árin en þeir
em: Einar Mýrdal fyrsti formaður
Sundfélags Akraness, Helgi Hannes-
son þjálfari sem lagði fram vinnu sína
endugjaldslaust í ein 14 ár. Ævar Sig-
urðsson þjálfari sem einnig hefur
starfað fyrir félagið endurgjaldslaust
og loks Rósa Halldórsdóttir sem að
sögn Jóhönnu Hallsdóttur formanns
Sundfélags Akraness er „óskafor-
eldri“ hvers íþróttafélags en hún hef-
ur starfað fyrir félagið á einstaklega
óeigingjaman hátt og gefið félaginu
ómældan tíma og fyrirhöfn. Akranes-
bær veitti félaginu viðurkenningu á
þessum tímamótum og hvatti Gísli
Gíslason bæjarstjóri félagið til að
halda áfram á sömu braut. Einnig
vom ýmsum aðilum þökkuð vel unn-
in störf. íþróttamiðstöðin heiðraði
sérstaklega Tryggva Bjömsson fyrir
einstaka ástundun þau tíu ár sem mið-
stöðin hefur verið starfrækt en í máli
Kristins Reimarssonar kom fram að
oft væri áður nefndur Tryggvi komin
á undan starfsfólki stöðvarinnar kl.
sjö á morgnana og hann stillti oft
klukku sína eftir honum!
A.Kúld
Bæjarfulltrúar og varamenn þeirra sáttir eftir boðsundib.
Lionsklúbbur Olafs-
víkur 25 ára
í janúar sl. átti Lionsklúbbur Ólafs-
víkur 25 ára afrnæli. Stjómin ákvað
þá að minnast þess að hausti komandi
og núna 19. september nk. verður
þess minnst með hátíðarfundi og um
leið tekur við sú stjóm sem starfar
1998 - 1999.
Árið 1993 á tuttugu ára afmæli
klúbbsins var gefið út myndarlegt af-
mælisblað og þar tíunduð öll þau
verkefni - gjafir - styrkir og lflaiar-
störf sem klúbburinn hafði á tutmgu
ámm lagt lið.
Nú fimm ámm síðar má nefna
nokkur verk og störf Lionsklúbbs Ó-
lafsvíkur.
Starfsárið 1993 - 1994: Bókagjafir
til bama og unglinga við skólaslit,
styrkur til Vinafélags eldri borgara,
styrkur til unglingaskipta, styrkur til
einstæðrar móður, sjónvemdarátak,
keypt sjónvemdarmerki og ýmsar
gjafir aðrar.
Starfsárið 1995 - 1996: Bókagjaftr,
áramótaljós, unglingaskipti, styrkur
til einstæðings, gjafir og blóm, sam-
hugur í verki (Flateyri ofl.) þrettánda-
gleði, Eldri borgarar o.fl.
Starfsárið 1996 - 1997: Bókagjafir,
áramótaljós, unglingaskipti, sjónvarp
í Krflakot, poolborð í gmnnskólann.
Þá hefur klúbburinn unnið að ýmsum
verkefnum sem of langt er upp að
telja, þó má geta þess að félagar í
klúbbnum gerðu hreint undir máln-
ingu á neðstu hæð rækjuverksmiðju
Snæfellings (HÓ) og í sumar mál-
uðu félagar bryggjukanta á öllum
bryggjum í Ólafsvíkurhöfn. Þá lásu
félagar upp úr passíusálmunum bæði
í fyrra og svo núna í vor. Þann 9.7.
1996 eignaðist Lionsklúbbur Ólafs-
víkur m/b Tind SH 179 og var bátn-
um komið fyrir undir Hrafnabjörgum
og reistur þar.
Samkomulag náðist milli þáver-
andi bæjarstjómar og Lionsklúbbsins
um að Snæfellsbær sæi um umhverf-
ið í kring um Tindinn en L.Ó. sæi um
útlit og málningu á bátnum. Nú í
haust er fyrirhugað að laga að hluta
lóðina við bátinn. Þá hefur klúbbur-
inn látið gera skilti sem sett verður
upp við bátinn. Skilti þetta sýnir hvar
bámrinn var smíðaður, hvaða ár og
stærð, hveijir hafa átt bátinn og hvað
hann hefur heitið á hverjum tíma. A
bakhlið skiltisins er mynd af helstu
heitum á hlutum í skipsskrokki.
„Sjón er sögu ríkari" Teikningin er
eftir Ólaf Guðmundsson skipasmíða-
meistara. Hönnuður er Jón Guð-
mundsson formaður L.Ó. Merking
hf. sá um útlit og prentvinnu. Verk-
efnið var styrkt af Sparisjóði Ólafs-
víkur, Landsbankanum í Ólafsvík og
Ferðamálaráði Snæfellsbæjar.
Þá hefur eins og öllum er kunnugt
um, Lions á íslandi og klúbbar á
landinu beitt sér fyrir því að námsefn-
Til sölu eða leigu,
Vesturgata 10 Akranesi
Húsið er allt nýstandsett,
hefur m.a. hlotið viður-
kenningu Akraneskaup-
staðar fyrir framúr-
skarandi gott viðhald
og fallegt útlit.
Til sýnis sunnudaginn
20. sept. frá 16-18
Gunnar Sigurbsson og Sigríbur Gróa Kristjánsdóttir renna sér fyrstu form-
legu ferbina í rennibrautinni. Myndir: A.Kúld
Lars Andersen blotnabi heldur betur í baráttunni vib Valdimar Axelsson ab-
albókara Akraneskaupstabar.
Tindur SH 179 undir Hrafnabjörgum.
ið (Að ná tökum á tilverunni) verði
kennt í skólum landsins, eins er það
hér í Snæfellsbæ og hefur Lions-
klúbbur Ólafsvíkur styrkt kennara til
að læra þetta námsefni svo hægt sé að
kenna það hér í skólanum, það hefur
verið kennt hér öðru hvoru til þessa.
Þá tók L.Ó. ásamt öðrum þátt í að
kaupa hljóðkerfi í félagsheimilið á
Klifi.
Lionsklúbbur Ólafsvíkur hefúr á-
samt öðrum félagasamtökum hér í bæ
lagt mörgu góðu málefni lið, og erum
við félagar stoltir af þvi að fá að vera
þátttakendur í mörgum menningar og
mannúðarmálum, bæði hér í bæ og út
um allan heim, því markmið okkar er
að leggja lið.
Kristján Helgason