Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.1999, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 08.07.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 8. JXJLÍ 1999 ^ai^aunui^ 3 VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI Akranes: Suðurgötu 65, 2. hæð. Sími: 431 4222. Fax: 431 2261. Netfang: skessa@aknet.is Borgames: Borgarbraut 57, 2. hæð. Sími: 437 2262. Fax: 437 2263. Netfang: skessuh@aknet.is Skrifstofur blaðsins eru opnar kl. 10-12 og 13-16 alla virka daga. Utgefandi: Skessuhorn ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098 Blaðamaður: Kristján Kristjánsson, sími 892 4098 Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir, Borgarnesi sími 437 2262 Silja Aliansdóttir, Akranesi, sími 697 4495 & 431 4222. Prófarkalestur: Ágústa Þorvaldsdóttir og fleiri. Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 16.00 á mánudögum. Auglýsendum er bent á að paiíta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 200 krónur með vsk. Áskriftar- og auglýsingasími er 437 2262. Eins og fjölmargir aðrir hef ég lengi velt Gís|j Einarsson, fyrir mér tilganginum með þessu jarðlífi. ritstjóri. Munurinn á mér og flestum hinum er sá að ég hef komist að afgerandi niðurstöðu. Tilgangurinn er einfaldlega sá að komast sem lengst upp metorðastigann og geta með stolti sagt á gam- als aldri að allt lífið hafi ég verið ungur maður á uppleið. Þar með er þó ekki sopið kálið því það er ekki áreynslulaust að vera ungur mað- ur á uppleið, sér í lagi þegar menn eru teknir að reskjast. Sé markmið- ið göfugt réttlætir það hins vegar umtalsvert magn svita og tára. Eftir að ég ákvað að gerast ungur maður á uppleið gerði ég verká- ætlun og byrjaði að vinna skipulega að verkeíninu. Mitt fyrsta verk var að fara í litgreiningu hjá Heiðari svo ég gæti ráðist í kaup á ein- kennisbúningi sannra Uppa. Til að útskýra hugtakið fletti ég upp í ónefndri orðabók, en þar kom orðið Uppi ekki fyrir í þessari merk- ingu. En það þýðir ungur maður á mikilli uppleið sem allsstaðar vek- ur aðdáun og eftirtekt og um leið mátulega mikla öfund lítilmagnans. Niðurstaða áðurnefndrar litgreiningar minnar er að ég er kalt vor og úrkomusamt og aðallitir mínir eru svart og hvítt. Þar með var það af- greitt fyrirhafnarlítið. Næsta skref voru nauðsynlegar útlitsbreytingar og forvarnarstarf. Meðal þess var fitusog, handsnyrting og hárígræðsla. Þar með er ekki öll sagan sögð því það er partur af ímyndinni að mæta síðdegis í lík- amsræktarstöð og djöflast á kyrrstæðum hjólhesti með GSM símann á eyranu og þykjast tala í hann. Þó ber að forðast að láta þessa líkams- rækt eyðileggja ístruna gjörsamlega því hæfilegur velmegunarbelgur er einnig nauðsynlegur hluti af umgjörðinni um ungan mann á upp- leið -Uppann. Bóklegi hluti ferlisins felst í að leggja á minnið nöfn valinkunnra þjóðskálda, nokkrar tilvitnanir úr heimsbókmenntunum og kvik- myndum á borð við Die hard og Naked Gun. Þá þarf að tileinka sér ofúrlitla þekkingu á óperutónlist, laginu efdr Bubba Morthens og nú- tíma málaralist. Síðan þarf að gera sér upp áhuga á þessu öllum sam- an. Kostnaðarasamasti hlutinn er upphækkaði laxveiðitúrajeppinn ffá einhverjum fjárfestingalánasjóðnum. Þó má bjarga sér á bílaleigubíl til að byrja með. Aðalatriðið er þó að í bílnum sé sem mest af tökk- um en hinsvegar er það aukatriði hvort þeir þjóna einhverjum praktískum tilgangi. Best er að hafa einkabílstjóra, allavega meðan ekið er á merktum vegum. Laxveiðitúrinn er hápunkturinn og undirbúning hans þarf að vanda gríðarlega vel. Höfuðatriðið er að áin sé nógu dýr. Minna máli skipt- ir hvort í henni sé lax, honum er hvort eð er sleppt aftur. Þá er það mildlsvert að verða sér út um allan þann útbúnað sem hægt er að hengja utan á einn laxveiðimann. Neophren vöðlur, veiðivesti, veiði- gleraugu, veiðihanska, veiðihatt með sautján flugum, veiðibuxur, veiðinærföt og svo mætti lengi telja. Drykkjarföngin þarf einnig að velja af kostgæfni. Whisky eða koníak með fallegum miða er nauð- synjavara. Ekki venjulegt kotbænda- eða verkamannaWhisky eins og fæst hjá Birgi í Borgarnesi. Vel heppnaður veiðitúr þekkist síðan á því að maður hefur fest fína jeppann í einhverju fúafeni og látið bóndagarm á gömlum Zetor draga hann upp, stigið ofan á handunnu veiðistöngina og ælt yfir rán- dýra veiðivestið. Einhverjum kann að þykja það mikið á sig lagt, en er ekki þess virði að geta talist með heldri, eldri og merkari mönnum, fremur en að ganga í gegnum lífið á gúmmískóm með hey í eyrunum? Gísli Einarsson, Uppi Þórarinn Ólafsson tekur viS styrknum úr hendi lngunnar M. Jónsdóttur Freeberg. Með þeim á myndinni er sjóSsstjómin en hana skipa: Ólafur Ólafsson, Gunnar Ólafsson, Elín Jónsdóttir, Gísli Gíslason bœjarstjóri og Guómundur Páll Jónsson, forseti bœjarstjómar. Mynd K.K A Þórarinn Olafsson fyrsti styrkþeginn Á sunnudaginn var úthlutað styrk úr Minningarsjóði Jóns Gunnlaugssonar og Guðlaugar Gunnlaugsdóttur í fyrsta skipti. Þórarni Olafsyni var veittur styrkur að upphæð kr. 100 þúsund. Var styrkurinn afhentur við málsverð sem niðjar Jóns og Guðlaugar snæddu saman að Hótel Barbró ásamt bæjarfulltrúum Akraness og mökum þeirra. Þórarinn hóf nám við sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri haustið 1998 og hefur hann fengið lofsamlega umsögn skólastjórnenda varðandi ástundun, áhuga og árangur. Sjóðurinn var stofnaður 26. júlí 1968 þegar 100 ár voru liðin ffá fæðingu Jóns Gunnlaugssonar. Stofnendur voru systkinin Olafúr Jónsson, Jón Kr. Jónsson og Ing- unn M. Jónsdóttir Freeberg. Stofn- fé sjóðsins var eignin Bræðrapartur sem er um þrír og hálfur hektari lands ofan við Breiðina á Akranesi. Tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk til náms í sjávarútvegs- fræðum og vinnslu sjávarafúrða. I skipulagsskrá sjóðsins er ákvæði þess efiiis að ef stofnaður verði sjávarútvegsskóli á Akranesi geti sjóðsstjórnin ákveðið að sjóðurinn renni til slíks skóla. K.K Kennara vantar í Brekkubæj arskóla Þrjá kennara vantar enn í Brekkubæjarskóla og að sögn Inga Steinars Gunnlaugssonar veldur kennaraskorturinn því að ekki er hægt að ganga frá skipu- lagi fyrir kennara og nemendur. Telur Ingi Steinar að ástand mála í grunnskólum í höfúð- borginni geti haft áhrif á ráðn- ingarmál kennara og þeir haldi að sér höndum þar til lausn finn- ist á þeirri deilu. „Þetta er frekar óvenjulegt ástand því hingað til höfum við ekki verið í vandræðum með að manna skólann. Við höfum alla tíð verið heppin með mannskap og haldist vel á fólki," sagði Ingi Steinar. Hann segir þá tíma sem ædast er tíl að nemendur fái miðist við einsetinn skóla og það skapi erfiðleika að koma þeim fyrir í stundatöflu. „f fyrra prófúðum við að taka hádegistíma inn í stunda- skrána en það gaf ekki góða raun og ætlum við okkur að leysa málin með meiri mannskap." Ingi Steinar segir kennaraskort- inn skiljanlega hafa áhrif á niður- röðun í bekki og til dæmis veldur það vandræðum fyrir sex ára börn- in. í fyrsta bekk næsta vetur verða 47 börn í þremur bekkjardeildum og ljóst að aðeins einn gemr verið fyrir hádegi. Boðað verður til fund- ar með foreldrum þessara barna í ágúst. Ingi Steinar segist gera sér vonir um að þessi mál leysist far- sællega áður en skólastarf hefst í haust. K.K Arekstur á Skaga Árekstur varð á mótum Skóla- brautar og Merkurteigs á miðviku- dag í síðustu viku. Bifreið sem ekið var norður Merkurteig ók í hliðina á bíl sem var á leið niður Skóla- brautina. Við áreksturinn var bif- reiðinni á Skólabrautinni gefið inn með þeim afleiðingum að hún snerist á götunni og staðnæmdist við gangstéttarkantinn fyrir framan Skólabraut 14. Ekki urðu meiðsli á fólki en töluverðar skemmdir urðu á öðrum bílnum og var hann óöku- fær eftir áreksturinn. Slegið Bændur á Vesturlandi hafa marg- ir nýtt veðurblíðu undanfarinna daga til sláttar. Spretta hefur verið lítil ffaman af sumri en gróður tók vel við sér þegar hlýnaði fyrir mán- aðamótin síðustu. Einkum eru það kúabændur sem ná þurfa kjarn- miklu fóðri og slá því tún sín tvisvar, ffemur en að láta sprettu grimmt ákvarða sláttutímann. Á einstaka bæ í Borgarfjarðarhéraði hafa bændur nú lokið fyrri slætti og margir eru langt komnir. Nútíma tækni til heyverkunar býður uppá stuttan þurrktíma og því hafa af- köst við heyskap aukist til muna síðari árin og bætt fóðrin af þeim sökum. -MM Búnaðarsamtökin á vefinn Búnaðarsamtök Vesturlands hafa opnað vef á Netinu og er slóðin^ www.vesturland.is/bu- vest Á vefnum er að finna upplýsingar um markmið og starfsemi samtakanna, stjóm þeirra ög starfslið. Þá era birt- ar niðurstöður úr skýrsluhaldi í nautgripa- : og sauðfjárrækt auk almennra upplýsinga um hrossa- og jarðrækt. Þegar er talsvert af gögnum komið á vefinn, sem eins og allir góðir vefir á Netinu, er í stöðugri vinnslu. Meðal þess sem lesa má um á vefiium eru afúrðahæstu búin á Vestur- landi, bestu lambhrútar og veturgamlír hrútar, afúrða- hæstu kýrnar, stóðhestar á Vesturlandi, niðurstöður heyefiiagreininga, og þannig mætti lengi telja. Vefúrinn er unninn af Vef- smiðju Vesturlands og Hall- grfmi Sveinssyni hjá Búnaðar- samtökunum, sem sér um við- hald og uppfærslur vefjarins. G.E. Skemmdarverk urniin á vmnuvél- um Skóflunnar Þegar starfsmenn Skóflunn- ar á Akranesi mættu til vinnu á mánudagsmorgun brá þeim heldur betur í brún því búið var að brjóta 12 rúður í þrem- ur vinnuvélum í eigu fyrirtæk- isins. Engu var stölið. Vinnu- vélarnar sem hér um ræðir eru beltagrafa, vörubíll og götu- sópari sem lagt var austan megin við skemmu Skóflunnr við Faxabraut. Áð sögn starfs- manna truflar þettá ekki fram- kvæmdir en bagalegt er að missa götusóparann úr um- ferð því hann er sá eini í eigu fyrirtækisins. Lögreglan á Akranesi auglýsir eftir vitnum að skemmdarverkunum og biðtu þá sem telja sig geta veitt upplýsingar um málið vinsamlegast að að hafa sam- band. KK Skemmtíferðaskip í Grundarfirði Skemmtiferðaskipið Ms Hamseatick kom til Grundar- fjarðar í síðustu viku. 120 far- þegar voru á skipinu og um 50 manna áhöfn. Flestir farþeg- anna notuðu tækifærið á með- an skipið stoppaði í Grundar- firði og fóru með rúm í skoð- unarferð um Snæfellsnesið. Hamseatick er annað skemm tiferðaskipið sem kera- ur til Grundarfjarar í sumar. Hið fyrra var Astra sem kom 27. júní og eru bæði skipin væntanleg aftur í Grundar- fjörð. Leikskólakrakkar í Grund- arfirði num góðs af ferðinni því þau fengu að fara ura borð í skipið og var boðið upp á kökurogdjús. g.e./r.e.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.