Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.1999, Side 8

Skessuhorn - 08.07.1999, Side 8
T FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 Gríðarleg umferðarhelgi Aukin umferð á Vesturlandi að sögn lögreglu í Borgarnesi Þorsteinn Eyþórsson bjá Gámaþjónustu Vesturlands var mcettur ásamt jjölskyldu sinni á Hzísafell á sunnudagskvöldið til aðforða rusli sem safnað hafði verið. Mynd:MM Fyrsta helgi júlímánaðar er af mörgum talin mesta ferðahelgi ársins. Þá fær skólafólk t.d. fyrstu útborgun sína og þeir full- orðnu stíla sumarfrí inn á þenn- an heitasta og veðursælasta mán- uð ársins. Umferð ferðafólks á Vesturlandi var gríðarleg um helgina, enda mikið um að vera í skipulagðri afþreyingu og við- burðum víða í kjördæminu og veðrið var eins og best verður á kosið. Að sögn Þórðar Sigurðssonar yf- irlögregluþjóns í Borgamesi gekk helgammferðin vel í lögsagnarum- dæmi hans. „Þetta gekk allt ágæt- lega miðað við mannafla, bæði á vakt hjá okkur og gestafjöldann í héraðinu. Þó skyggir á að sjö öku- menn vom teknir gmnaðir um ölv- un við akstur, bílvelta var í Skorra- dal og nokkur minniháttar óhöpp urðu. í Húsafelli var yfirfullt af fólki um helgina, Búnaðarbankamót var í Borgarnesi, dansleikur í Flugskýl- inu á laugardagskvöldið og mikil umferð á Snæfellsnes svo eitthvað sé nefnt. Samt gekk þetta alveg ótrúlega vel enda vora gestir já- kvæðir í góða veðrinu og allir virt- ust leggjast á eitt við að láta umferð og samkomuhald ganga vel fyrir sig“, sagði Þórður Sigurðsson. Aukið hlutfall á svæðið Að sögn Þórðar fóm um 6000 bílar um veginn fyrir Hafnarfjall sl. föstudag miðað við 9000 bíla yfir Hellisheiði á sama tíma. „Það er greinilegur vöxtur í umferð hingað á Vesturland samanborið við um- ferð á Suðurlandið. Undanfarin ár hefur hlutfallið verið um fjórðung- ur hingað miðað við talningu á Hellisheiði en nú hefur þetta hlut- fall aukist í að vera tveir þriðju hingað samanborið við Suðurlands- umferðina“, sagði Þórður Sigurðs- son yfirlögregluþjónn. Vitlaust að gera Mikil umferð kallar á aukna verslun og þjónustu. Víða mátti á sunnu- dagskvöldið sjá tómar hillur í versl- unum í Borgarnesi og víðar í hérað- inu, ásamt lúnu afgreiðslufólki með þreytta fæmr og stirðnuð bros. Verslunarmaður í Borgarnesi sem þó taldi sig hafa verið vel búinn undir helgina Iíkti henni við að- stæður þegar flóttamenn streymdu ffá Kosovo í þúsunda tali og vantaði allt. Það var bókstaflega vidaust að gera alla helgina ffá fimmmdegi og ffam á sunnudagskvöld. Otrúlega friðsælt Að sögn Hrefnu og Bergþórs stað- arhaldara á Húsafelli gekk helgin vel og slysalaust fyrir sig þrátt fyrir að þar hafi verið yfirfullt. „Líklega hafa verið hér á svæðinu um 4000 manns um helgina í blíðskapar- veðri. Þó var nokkur ölvtm sérstak- lega á föstudagskvöldið og alltaf er það svo að hagsmunir unga fólksins og fjölskyldufólks vilja stangast á“, sagði Bergþór Krisdeifsson. Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í Húsafelli sl. sunnu- dagskvöld vaktí það athygli að búið var að tína allt rasl eftir þann mikla mannfjölda sem þaðan var nýfarinn. „Við leggjum mikið upp úr því að gæta að umhverfinu og tína rusl sem sumir vilja gleyma eftir sig. Við sendum Bláa herinn, sem er mót- vægi okkar við þann græna, og vor- um búin að hreinsa svæðið tíman- lega á sunnudagskvöldið“, sagði Hrefha Sigmarsdóttir. Hún bætti því við að í sundlaugina á Húsafelli hafi farið um 2000 gestir á laugar- deginum og þar hafi verið maður við mann nánast alla helgina. Þau hjón, Hrefna og Bergþór vildu koma því á framfæri að lögreglan í Borgamesi eigi heiður skihnn fyrir sinn þátt í að halda ró og spekt á svæðinu þrátt fyrir mikinn fjölda á Húsafelli um helgina. -MM BORGARBRAUT14 Sími: 437 1208 AFGREIÐSLUTÍMI 9.15-16.00 VIRKA DAGA SíPARISJÓÐUR II /RASÝjLU HYRNUNNI Sími: 437 1208 AFGREIÐSLUTÍMI 9.15-16.00 VIRKA DAGA Sniglar í Dölum Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglamir, héldu árlegt landsmót sitt með pompi og prakt í Tjarnarlundi í Saurbæ um síðustu helgi. Veðrið lék við þá eins og aðra sem gistu Vesturland um helgina og sólin skein jafnt á gljá- fægða mótorfáka og tattóveraða búka. Myndir: GE

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.