Skessuhorn - 08.07.1999, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
j«í,sainui„
Fjölmennt og
íjölbreytilegt
A Færeyskum dögum í Olafsvík
Veðurguðimir héldu vemdar-
hendi yfir Snæfellsbæ meðan há-
tíðarhöld vegna færeyskra daga
stóðu yfir um síðustu helgi. Er
þetta í annað skipti sem Fær-
eyskir dagar em haldnir hátíð-
legir í Olafsvik en hugmyndin er
komin ffá nokkmm Færeyingum
sem búsettir em hér í bæ. Ekki
er nokkur vafi á að Færeyskir
dagar koma tíl með að verða ár-
viss atburður um ókomna fram-
tíð.
I ávarpi bæjarstjóra, Kristins Jón-
assonar við semingu hátíðarinnar
kom fram að. Færeyingar hafa skip-
að stóran Seás í sögu bæjarins frá
því um landnám. Ennfremur kom
fram að Færeyingar hafa ætíð stutt
vel við frændur sína Islendinga
þegar náttúruhamfarir hafa dunið
yfir byggðir Islands. Ekki þykir
tekið djúpt í árinni þegar talað er
um Islendinga og Færeyinga sem
vinaþjóðir en um árið 1954 kom
fyrsti Færeyingurinn til Olafsvíkur
og þremur árum seinna voru þeir
orðnir um eitt hundrað af ríflega
sexhundrað manna byggð á Snæ-
fellsnesi.
Ekki verður sagt að töluð sé fær-
eyska á sunnudögum í Olafsvík en
spariklæðnaður Færeyinga hefur
þó þótt til fyrirmyndar hér um
slóðir. Fjölmargt var í boði fyrir
alla sem komu á Færeyska daga hér
í Olafsvík. Má þar nefna markaðs-
torg sem sem opið var í húsnæði
Snæfellings og fjölmörg fyrirtæki
stóðu að kynningu og sölu muna
meðan á hátíðinni stóð. Þá fór
ffarn dorgkeppni á bryggjunni fyrir
yngri kynslóðina og grillveisla í
boði Sjósnæ á eftir.
Opið var í leiktæki fyrir börnin
og sá björgunarsveitin Sæbjörg um
gæslu meðan á því stóð. Bryggju-'
ball var síðan um kvöldið og hljóm-
sveitin Bít frá Hellissandi lék fyrir
gesti. Þá lék hljómsveitin Twilight
fyrir unglinga á dansleik á Klifi.
A laugardag bauð hestamannafé-
lagið Hringur börnum á hestbak og
vináttuleikur við Færeyinga í knatt-
spyrnu fór fram á knattspyrnuvell-
inum í Ólafsvík.
Þá var markaðurinn opinn og
skemmtidagskrá fór frarn á hafnar-
svæði þar sem ýmsir listamenn
komu ffarn bæði færeyskir og ís-
lenskir. Færeyska hljómsveitin
Twilight lék fyrir dansi fram eftir
nóttu á félagsheimilinu á Klifi.
A sunnudag var síðan messa í
Ólafsvíkurkirkju þar sem færeyskur
prestur, Heri Joansen messaði
ásamt færeyska kórnum, söngkór
Götu og Lorvík. Þorvaldur Hall-
dórsson söng og farin var skemmti-
sigling á þremur skipum og var há-
tíðinni slitið að henni lokinni.
-EMK-
Bæjantjómm sýndi þrek sitt ogþor.
Og klæónaóurinn var vió hœfi jafnvel þótt hann v<eri kannski ekki í takti vicI veóurj'ariíi.
Mikill matmfiöldi naut veóurblíðunnar.
Nýfæddir
Vestlendingar eru
bobnir velkomnir
í heiminn um leib
og nýbökubum
foreldrum eru
færbar
hamingjuóskir.
21. júní kl. 15.27 - Meybarn. -
Þyngd: 4375 - Lengd: 56 cm -
Foreldrar: Asta Sigurðardóttir og
Guðjón V. Hjaltalín Borgarlandi
Helgafellssveit Ljósmóðir: Mar-
grét Bára Jósefsdóttir.
24. júní kl. 13.00 - Sveinbarn. -
Þyngd: 3685 - Lengd: 51,5 cm -
Foreldrar Dagný Ósk Halldórs-
dóttir og Guðmundur R. Georgs-
son, Akranesi. Ljósmóðir: Helga
R. Höskuldsdóttir.
27 . júní kl. 12.49 - Meybarn. -
Þyngd: 3885 - Lengd: 55 cm -
Foreldrar: Anna G. Jónsdóttir og
Ólafur Magnússon, Gilsbakka 1.
Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir.
30. júní kl. 23.42 - Sveinbarn. -
Þyngd: 3358 - Lengd: 52 cm -
Móðir: María Sigríður Kjartans-
dóttir, Akranesi. Ljósmóðir: Helga
R. Höskuldsdóttir.