Skessuhorn - 08.07.1999, Blaðsíða 7
pop; T.tttt m ;I C s,
SKliSáUfióSM
|' ;•( , /.VTÍ
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
Jón í Jónshúsi
Jón Runólfsson ráðinn umsjónarmaður Jónshúss í Kaupmannahöfn
Jón Runólfsson, formaður
Iþróttabandalags Akraness, hef-
ur verið ráðinn umsjónarmaður
Jónshúss í Kaupmannahöfh til
næstu þriggja ára. Umsækjendur
um starfið voru óvenju margir
eða 73. Tekur Jón við starfinu 1.
september næst komandi. Jón er
kvæntur Ingu Harðardóttur
íþróttakennara og eiga þau þrjú
uppkomin börn.
I samtali við Skessuhorn sagðist
Jón ekki hafa átt von á því fá starfið
fyrst umsækjendahópurinn var
svona stór. „En ég leyni því ekki að
ég hafði gríðarlegan áhuga á starf-
inu og auðvitað gerði maður sér
ákveðnar væntingar,“ sagði Jón.
Starf umsjónarmanns við Jónshús
er nýtt starf en í kjölfar ýmissa
breytinga á starfsemi í húsinu var
ákveðið að ráða sérstakan starfs-
Jón Runólfsson. Mynd K.K
mann til að sjá um rekstur hússins.
„Margs konar starfsemi hefur farið
ffam í húsinu í gegnum tíðina, þar
hefur verið veitingarekstur sem nú
leggst af og eins hafa bæði náms-
menn og félagar í íslendingafélag-
inu í Kaupmannahöfn verið með
mikla starfsemi í húsinu.“
Jón er hagvanur í Höfn en hann
bjó þar ásamt fjölskyldu sinni í tæp
fimm ár á árunum upp úr 1970 og
aftur um árs skeið 1986 og segir
það verði gaman að búa aftur á
gömlum slóðum. Jón segir mörg
spennandi verkefni bíða sín. „Mitt
hlutverk verður að hlú að allri starf-
semi í húsinu sem er mjög fjöl-
breytt og markmiðið er að Jónshús
verði athvarf fyrir alla í hinni vax-
andi Islendingabyggð í Kaup-
mannahöfn. Einnig hef ég áhuga á
að auka tengslin milli Islendinga
þar og hér heima," sagði Jón Run-
ólfsson.
Skessuhorn óskar Jóni velfarnað-
ar á nýjum starfsvettvangi.
K.K
Nýr umferðaröryggisfulltrúi
Nýlega tók til starfa nýr umferð-
aröryggisfulltrúi á Vesturlandi, á
vegum Umferðaráðs og SVFI.
Sá heitir Kristján Gíslason í
Borgamesi. Starfar hann í tengslum
við alla þá aðila sem láta sig um-
ferðaröryggi einhverju skipta s.s.
lögreglu, Vegagerð, sveitarstjórnir,
umferðaröryggisnefhdir og slysa-
varnardeildir á Vesturlandi.
Að sögn Kristjáns er hans hlut-
verk m.a. að vekja athygli á ýmsu
því sem betur má fara í umferðinni
og leiðir til minni slysahættu eða
kemur í veg fyrir slys. Sérstaklega
mun sjónum nú beint að að hraðak-
stri, bílbeltanotkun, ölvunarakstri
og lausagöngu búfjár. „ því miður
er það nú svo að flest slys af völdum
búfjár verða hér á Vesturlandi.
Þessum sfysum, sem og öðrum,
verður að fækka. Einn maður kem-
ur ekki miklu í verk af eigin ramm-
leik í þessum efnum en hér verður
góð samvinna allra að koma tdl. Því
geta þeir sem vilja leggja þessu máli
lið eða hafa skoðanir á umferðarör-
yggismálum haff samband við ör-
yggisfulltrúann í síma 898 4569 eða
437 2269,“ sagði Kristján.
G.E.
Kristján Gíslason Mynd.OHR
Nýi bíllinn er til vinstri á tnyndinni. Líflínan gula er á uppleið sem er táknræntfyrirþad mikilvcega hlutverk sem btlamir og áhöfn
þeirra gegna. Mynd KK
skessuh@aknet.is
BORGARBYGGÐ
ATVINNA
Góður starfskraftur óskast sem
fyrst í heimaþjónustu í
Borgarbyggð.
Skipulagsstofnun
Ólafsvíkurvegur og Útnesvegur
á Snæfellsnesi.
Bjarnarfoss að Egilsskarði.
Mat á umhverfisáhrifum - frumathugun
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 7. júlí til 11. ágúst 1999
á eftirtöldum stöðum; á bæjarskrifstofu
Snæfellsbæjar á Hellissandi, sýsluskrifstofunni
í Ólafsvík og á Hóteí Búðum.
Ennfremur í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast
eigi síðar en 11. ágúst 1999 til
Skipulagsstofnunar,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins
s
Akranesdeild Rauða kross Islands
Ný sjúkrabifreið tekin
í notkun
Akranesdeild Rauða krossins
fékk afhenta nýja sjúkrabifreið í
vikunni sem leið. Eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd er útlit
hans töluvert firábrugðið útliti
eldri sjúkrabfla.
Að sögn Gísla Björnssonar
sjúkraflumingamanns er þetta nýja
údit hugsað til að gera sjúkrabílana
meira áberandi en í seinni tíð hefur
bflum sem líkjast sjúkrabílum fjölg-
að mjög í umferðinni. Hér er um
íslenska hönnun að ræða og hefur
verið sótt um einkaleyfi á henni.
Nýja biffeiðin, sem er af Fordgerð,
er mjög vel búin tækjum og kostar
milli 7 og 8 miljónir. Annar sjúkra-
bíllinn sem hefur verið notaður á
Akranesi síðusm tvö ár fer til Olafs-
víkur.
„Nýju bílarnir em teknir í notk-
un þar sem aksmr er mikill og not-
aðir í á að giska tvö ár en síðan
staðsettir þar sem minna er keyrt.
Er þetta gert til að lengja líftíma
bílanna. Við keyrum hér milli 40 til
50 þúsund kílómetra á ári, „sagði
Gísli Bjömsson. K.K
www.vesturland.is
ATVINNA-ATVINNA
Vegna aukinna verkefna óska
Borgarnes-kjötvörur eftir starfsmönnum
sem fyrst.