Skessuhorn


Skessuhorn - 15.07.1999, Side 1

Skessuhorn - 15.07.1999, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 27. tbl. 2. árg. 15. júlí 1999 Kr. 200 í lausasölu Hluti þeitra sem komu aí fornleifarannsóknum á Eiríksstöðum og hönnun tilgátuhússins við bæjarstæðið. I baksýn se'st toifog hrís sem búið er að safna saman til húsbyggingarinnar. Frá vinstri: Friðjón Þórðarson formaður Eiríksstaðanefiidar, Þorsteinn Bergsson verktaki, Guðjón Kristinsson hleðslumeistari, Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt, Stefán Om Stefánsson arkitekt og Gunnar St. Ólafsson verkfræðingur og verktaki. Mynd: G.E. Byggt yfir Eirík rauða Smíði tilgátuhúss á Eiríksstöðum hafin Nú styttist í að hinn harðskeytti vígamaður og landkönnuður, Ei- ríkur rauði, fái afitur þak yfir höf- uðið á Eiríksstöðmn í Haukadal. Að vísu er ekki búist við að hann nýti það mikið sjálfur enda mun hann hafa verið nokkuð til firiðs síðustu 1000 árin eða svo. Bær- inn á Eiríksstöðum er ætlaður ferðamönnum sem vilja berja augum fæðingarstað mannsins sem fann Ameríku, Leifs Eiríks- sonar, og sjá við hvaða kost hann bjó fyrstu æviárin. Bærinn sem nú er hafin smíði á í Haukadalnum er svokallað tilgátu- hús og er því ætlað að líkjast sem mest hinni upprunalegu byggingu Eiríks. Hönnun hússins er byggð á rannsóknum á rústum hins forna bæjarstæðis sem staðið hafa yfir undir stjórn Guðmundar Olafsson- ar fornleifafræðings. I samtali við Skessuhorn sagði Gunnar St. Olafsson verkfræðingur og verktaki við bygginguna að stefnt væri að því að loka húsinu í október næstkomandi. „Grind hússins er smíðuð í Reykjavík úr rekaviði af Ströndum en samhliða verða hlaðnir veggir hér á nýja bæj- arstæðinu og grindin síðan sett nið- ur í september,“ sagði Gunnar. „Það er lögð á það ofuráhersla að fylgja þeim upplýsingum sem liggja fyrir um gerð gamla bæjarins. Grunnurinn er þekktur og útlínum hans er fylgt upp á sentímeter en um það sem er ofan á hafa menn þurft að geta sér til um útfrá rann- sóknum hér og þekktum upplýsing- um um húsagerð á þessum tíma,“ sagði Gunnar. Tilgátuhúsið á Eiríksstöðum mun standa skammt frá rústum gamla bæjarins en ffamkvæmdir við bæjarhlaðið og bílastæði hafa staðið yfir frá því síðasta haust. Meðal annars er lögð áhersla á að aðgengi sé gott fyrir fadaða. Húsið verður opnað fyrir ferða- mönnum næsta sumar þegar landa- funda Leifs heppna Eiríkssonar verður formlega minnst. G.E. Mætxun afgangi hjá bæjaryfirvöldum Segir Oskar Magnússon stjórnarformaður Baugs Forsvarsmenn Baugs hf. eru óhressir með þá fyrirgreiðslu sem þeir hafa fengið hjá bæjaryf- irvöldtun í Borgarbyggð varð- andi lóð undir verslunarhús sem þeir vilja reisa í Borgamesi. Oskar Magnússon stjómarfor- maður Baugs hf. sagði í samtali við Skessuhom í vikunni að fyr- irtækið virtist mæta afgangi hjá bæjarstjóm Borgarbyggðar. Baugur var einn fimm aðila sem sóttu um lóð við Brúartorg. Bæjar- stjórn samþykkti þann 30. maí sl. að ganga til viðræðna við Kaupfé- lag Borgfirðinga um þá lóð. Sam- kvæmt heimildum Skessuhorns snúast þær viðræður nú um aðra lóð sem er við hlið Hyrnunnar. Baugur hefur einnig lýst áhuga á þeirri lóð en að sögn Oskars hafa ekki farið frarn neinar viðræður milli bæjaryfirvalda og Baugs um úrlausnir fyrir fyrirtækið. „Okkur mislíkar þegar tekin er pólitísk af- staða en ekki viðskiptaleg í málum sem þessu. Það er kannski best að bæjaryfirvöld ákveði hvað þau ætla að gera fyrir Kaupfélagið og snúi sér svo að öðrum með afganginn,“ sagði Oskar. Sjá nánari umfjóllun á bls 3. G.E. Hann borgaði sig ekki framúraksturinn hjá unga jeppamanninum sem ókfram úr hverjum bílnum áfætur öðrum undir Hafnarfialli á leið norður í land stðdegis áfóstu- dag. Ökumaðurinn missti stjóm á Willisjeppa sínum við framúrakstur ofan Gufuár í Borgarfirði. Engin slys urðu á mönnum, en bíllinn hefur vafalaust verið vel útvatnaður eftir veru sína í barmafullum læktmm sem hann hafnaði í. Aður höfðu nokkrir ökumenn kvartað undan aksturslagi bílstjórans við lögreglu. Sjáfrétt bls. 9. Mynd: MM Sóknar- nefiidir fá áfelfisdóm Sigursælar Bæjarstjóri flytur um set EmmEssSkafís2ltr. SportstangirtOstk. Hrísmjólk BorgarnesVínarpylsur Nektarinur1kg.box Plómur1kg.box Ferskiur1kg.box Opið 8 tii 23:30 aiia daga Sumarsvall 3pk.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.