Skessuhorn - 15.07.1999, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 15. JULI 1999
aoiðaunu..
Ensku húsin - veiðihúsið við Langá
Elsta veiðihús landsins
Veiðihúsið við Langá er elsta
veiðihús landsins, byggt 1884.
Nú í fyrsta sinn síðan það var
bvggt er það opið sem almennur
veitinga- og gististaður.
Húsið stendur við Langárósa á
Mýrum í um 7 kílómetra fjarlægð
frá Borgarnesi. Eigendur hússins,
Stefán Olafsson og Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, segja húsið tilvalið til
hvers konar veisluhalda, fyrir fundi
eða smærri ráðstefnur.
Fólk farið að taka við
sér
Stefán og Ragnheiður segjast í upp-
hafi ekki hafa verið bjartsýn á að
þessi rekstur myndi ganga en nú
segja þau að útlitið sé gott. „Fólk er
farið að taka við sér og greinilegt að
staðurinn spyrst vel út. Þetta er allt
að breytast til hins betra,“ segja
þau. „Við tökum eftir því að hingað
kemur fólk sem þekkir þá sem hafa
gist hjá okkur og betri meðmæli
getur maður tæpast fengið. Við
höfum orðið að vísa fólki ffá sem er
náttúrlega aldrei gaman en eftir
svartsýnina í byrjun má kannski
segja að það sé gaman að geta sagt
nei af því að allt er fullt.“
Ragnheiður og Stefán segja það
mest vera Islendinga sem sæki til
þeirra en einnig panti ferðaskrif-
stofurnar gistingu með morgun-
verði fyrir erlenda ferðamenn. „Það
er mjög vinsælt,“ segja þau. „Eins
Með afturgöngu og öllu tilheyrandi
Gamla veiðihúsið við Langá er elsta veiðihús landsins.
Stefán Ólafsson og Ragnheiður Jóhannesdóttir.
hentar aðstaðan hér ágædega fyrir
ýmsa hópa. Heill saumaklúbbur var
hérna hjá okkur í vor og fyrir
skemmstu gistu hjá okkur fimm
fjölskyldur sem hittast alltaf einu
sinni að sumri.“
Gamlir veiðimenn halda tryggð
við Ensku húsin og koma ár eftir ár.
„Einn var að koma hérna 27. sum-
arið í röð og nýir hópar veiðimanna
koma líka enda er Langá vinsæl lax-
veiðiá.“
Þau Stefán og Ragnheiður eru
hvergi bangin og æda að halda hús-
unum opnum árið um kring.
„Vissulega er veturinn dauður tími
og misjafnlega rólegt eins og sagt er
en það sýndi sig síðasta vetur að það
komu til dæmis góðar helgar þar
sem nóg var að gera.“
Saga hússins
Húsið hefur á undanförnum árum
verið endurbyggt í upprunalegum
stíl og á veggjum þess má lesa sög-
una í myndum sem Stefán gróf upp
á Þjóðminjasafni Islands. Húsið
byggði Pétur Pétursson, snikkari á
Langárfossi sem íbúðarhús fýrir sig
og fjölskylduna og var það á sínum
tíma talið eitt reisulegasta húsið í
héraðinu. Húsið komst í eigu sr.
Einars prófasts á Borg sem leigði
veiðina út til erlendra veiðimanna.
1902 seldi hann ána og veiðihúsið
til aðalsmanns af skoskri ætt, sá hét
Oran Campell og veiddi sá ána
fram að fyrri heimstyrjöld en hann
lést á stríðsárunum. Frú Kennard,
ensk hefðarfrú keypti veiðiréttinn
og veiðihúsið af dánarbúi Campells
árið 1923. Fólkið í héraðinu talaði
um frúna af mikilli lomingu og
nefndi veiðhúsið og viðbyggingar
þess Ensku húsin. Hafa margir talið
sig hafa orðið vara við frúna í hús-
inu, og einkum á dimmum vetrar-
kvöldum eins og gefur að skilja.
Hafa menn fyrir satt að hún vaki
yfir því húsi sem henni var kærara
en önnur hús. Hún dvaldi þarna við
ána á sumrin en þegar síðari heim-
styrjöldin skall á bjó hún sig undir
að þreyja stríðið hér á Fróni. Til
þess kom ekki því breski sendiherr-
ann lét sækja hana og flytja til Eng-
lands ásamt öðrum breskum þegn-
um. Sumarið 39 var síðasta sumar
frú Kennard á Islandi, hún seldi
Geir Zoega kaupmanni veiðihúsið
og veiðiréttinn í Langá árið 1944.
Jóhannes Guðmundsson á Ana-
brekku keypti veiðiréttindin og
veiðihúsið af Geir í áföngum á ár-
unuml943 - 1967. Jóhannes var á
meðal stofhenda Fiskiræktarfélags
Langár og fyrsti formaður þess. Jó-
hannes og síðar fjölskytida hans hef-
ur rekið veiðihúsið til dagsins í dag.
K.K
NY SIMANUME
YSKRIFSTOFA
Föstudaginn 16. júlí flytur Skessuhorn
starfsemi sína í Borgarnesi frá
Borgarbraut 57 í eigið húsnæði að
w
(Aður efnalaugin Múlakot)
Mánudaginn 19. júlí taka gildi
ný símanúmer hjá fyrirtækinu:
Sími: 430 2200
Fax: 430 2201