Skessuhorn


Skessuhorn - 15.07.1999, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 15.07.1999, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 15.JULI 1999 áttÍ^ÍÍÍÚAÍ Island - land forfeðranna s Vestur-Islendingar í leit að ættingjum Fv. Kristian Morton Sigurdsson, Cotteen Wilson, Heather Roed og Dale Axel Bjomsson. Um þessar mundir dvelja á ís- landi 19 Vestur-íslendingar firá Kanada og Bandaríkjumnn sem æda að kynna sér land og þjóð og Ieita uppi skyldmenni sín hér. Hið svokallaða Snorraverkefni eða „The Snorri Program" eins og það kallast upp á ensku stendur að baki komu þeirra til Islands og hef- ur það markmið að kynna ísland og menningu Islendinga fyrir Vesmr- Islendingum. Hugmyndin að Snorraverkefninu kom upp á sam- bandsþingi í Norræna félaginu fyr- ir tveimur árum. Fjögur úr hópnum þeirra komu í stutta heimsókn á Akranes og hitti blaðamaður Skessuhorns þau að máli á heimili Olínu Jónsdótmr formanns Nor- ræna félagsins á Akranesi við það tækifæri. / / A Islandi í fyrsta sinn Þau Kristian Morton Sigurdsson, Colleen Wilson, Heather Roed og Dale Axel Bjornsson eru öll af ís- lenskum ætmm þótt nöfnin séu ekki öll íslensk. Þetta er í fyrsta sinn sem þau koma til landsins. Þau segjast hafa rekið augin í Snorraverkefnið og áhugi vaknað á að kynnast því landi sem forfeður þeirra komu frá. „Með komunni hingað fáum við tækifæri til að læra íslensku, kynn- ast menningunni og landinu og eins að vinna með Islendingum. Við komum úr ýmsum átmm og þekkt- umst ekki áður en eigum það sam- eiginlegt að okkur langaði að heim- sækja ísland. Allt okkar líf höfum við heyrt talað um þetta land,“ seg- ir Kristian M. Sigurdsson. Þau segj- ast ætíð hafa verið stolt af uppmna sínum þótt þau hafi kannski ekki þekkt mikið til Islands eða sögu þjóðarinnar. „Við höfðum lesið ein- hverjar bækur og skoðað landabréf en þekkingin risti ekki djúpt,“ segir Dale Axel Bjornson. Nú á sem sagt a5 bœta úr því? „Svo sannarlega,“ segja þau ein- um rómi. „Uppruni manns skiptir miklu máli og verður alltaf hluti af lífinu. Með því að kynna sér bak- gmnn sinn kynnist maður sjálfum sér betur,“ segir Colleen Wilson. Hún segist þekkja mörg nöfh í sinni ætt en viti fátt um fólkið og hluti af ferðinni hingað snúist um að hafa upp á ættingjum á lífi. Vesmr-íslendingarnir dvelja hér í sex vikur og gefst m.a. tækifæri til að vinna. Þau sögðust ekki enn vita hvar þau fengju vinnu en það myndi skýrast á næstu dögum. Svo mikið vissu þau þó að flest fæm þau aust- ur á firði. K.K. Fjöruhúsið á Hellnum Rita í skerjum, selur í sjó Undirritaður er ekki firá því að Fjöruhúsið í flæðarmálinu á Hellnum sé eitt skemmtilegasta kaffihús landsins. Hjálpast þar allt til - ævintýraleg og falleg staðsetningin við klettótta ströndina, húsið sjálft sem býr yfir sterkum karakter, að ógleymdum veitingunum sem eru einstaklega ljúffengar. í Fjöruhúsinu ráða Sigríður Ein- arsdóttir og Kristján Gunnlaugs- son ríkjum og þótt konungsríkið sé ekki stórt em þau hæstánægð og segja reksturinn ganga vel. Hugmyndina að því að opna kaffihús á þessum óvenjulega stað fengu þau fyrir nokkmm ámm og ffamkvæmdir hófust í mars 1997. Þann 9. júlí sama ár var opnað með pomp og prakt. Efdr á að hyggja segja þau að staðsetningin hafi kannski ekki verið eins óvenjuleg og ætla mætti því Kristján er alinn upp á Okrum og Sigríður í Staðar- sveitinni. Fjörahúsið er gamalt salt- hús og veiðarfærageymsla en það Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi. Hvernig sem viðrar, hvað sem á dynur. Skþssuhorn æfíð í sumarsvtyhi en afdreí í sumarfríí. Sigríður Einarsdóttir og Kristján Gunn- laugsson rá5a ríkjum í Fjörubúsinu á Hellnum. var byggt árið 1937 og hefur lengst af verið í eigu afa Kristjáns, Krist- jáns Brandssonar í Bárðarbúð. „Við eram ánægð það sem af er,“ segja þau. „Síðustu tvö ár vom góð og þetta sumar leggst líka vel í okk- ur. Það er alltaf eitthvað um að vera. Tíðin það sem af er sumri hefur að vísu haft einhver áhrif hér eins og hjá öðmm en það var til dæmis mikið að gera núna um helgina eft- ir Jónsmessuna. Veðrið skiptir alltaf einhverju máli.“ Fjöruhúsið stendur við enda gönguleiðar frá Arnarstapa sem er á Húsiö býryfir sterkum karakter þótt ekki se' það stórt. að giska þrjátíu mínútna gangur og margt hægt að skoða í nágrenninu. Dýra- og fuglalíf er hreint út sagt einstakt á þessum slóðum, rita í skerjum, selur í sjó og æður með unga sína. Kristján og Sigríður era með árabátaleigu og bjóða fólki upp á veiðar með sjóstöng - og þarf ekki mörg áratog til að komast í fisk. Sumir hafa meira að segja aflað meira en þeir hafa treyst sér til að hafa með sér heim. Svo mikið er víst að engum ætti að leiðast sem leggur leið sína í Hellnafjöra. Texti og myndi: K.K Njju göngin Jyrir knattspymumenn sem sagt er að Skagamenn séu að koma sér upp. Mynd: K.K Iþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum Eru þetta nýju leikmannagöngin? Þeir sem fylgjast með knatt- spymu í sjónvarpi hafa kannski tekið eftir því að leikmenn stór- hðanna úti í hinum stóra heimi koma gjaman hlaupandi upp úr miklum undirgöngum inn á knattspymuvellina. Er það gert til að tryggja öryggi leikmanna enda almennt áHtið að knatt- spymubullur svokallaðar séu með hættulegustu mönnum. Þessa dagana gengur sú saga fjöllum hærra að Skagamenn ædi sér að verða fyrstir til að koma sér upp slíkum göngum og séu meira að segja langt komnir með fram- kvæmdina. Ekki er annað að sjá á meðfylgjandi mynd og sýnast göngin tvö frekar en ein og þá væntanlega til að koma í veg fyrir slagsmál á milli liða á leiðinni út á völlinn. Reyndar er hér aðeins um að ræða tvo geymslugáma fyrir sláttu- vélar og annað sem tilheyrir um- hirðu valla á svæðinu sem hefur verið komið svona snyrtilega fyrir viðbakkann. 1

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.