Skessuhorn - 19.08.1999, Síða 4
•4
FIMMTUDAGUR19. ÁGÚST 1999
Fíflast einu sinni á ári
segir Jónína Gestsdóttir um Höfðahátíðina
Utihátíðir af ýmsu tagi eru orðn-
ar áberandi þáttur í ferðaþjónustu á
Islandi og varla líður svo helgi yfir
sumartímann að ekki sé hægt að
finna eina slíka einhversstaðar á
landinu. Næstkomandi laugardag
verður hátíðin Halló Höfði haldin í
þriðja sinn en hún hefúr mikla sér-
stöðu að því leyti að hún er ekki
haldin af sveitarfélagi, félagasam-
tökum eða fyrirtækjum heldur ein-
um einstaklingi.
Jónína Gestsdóttir býr ein á
bænum Höfða í Eyrarsveit og hún
er ffamkvæmdastjóri Halló Höfða.
Hún er líka skemmtikraftur, gæslu-
maður, sjoppudama og allt annað
sem þarf á slíkri hátíð.
„Þetta byrjaði þegar malbikið
kom en þá fannst mér ástæða til að
fagna og síðan hef ég haldið þessu
áfram,“ sagði Jónína aðspurð um
upphaf hátíðahaldanna. „Ef þeir
verða duglegir í Búlandshöfðaveg-
inum og klára í haust er aldrei að
vita nema að það verði aukahátíð."
Jóm'na sér um allt sjálf á hátíð-
inni, semur og flytur skemmtiat-
riði, undirbýr keppni í ýmiskonar
þrautum og sel-
ur kaffi og
„meððí“ svo
eitthvað sé
nefnt. „Þetta er
nú ekkert
merkilegt hjá
mér en meðan
fólk getur hlegið
og skemmt sér
er tilganginum náð. Mér finnst
heldur ekkert mikið þótt maður
fi'flist svona einu sinni á ári.“
Nýtt kaffihús
Jónína varð fyrir því í vetur að
það brurmu hjá henni útihús en í
þeim hafði hún nýlega lokið við að
innrétta saumastofu. I eldsvoðan-
um missti hún ekki aðeins húsnæð-
ið heldur einnig tæki og lager sem
hún var búin að koma þar fyrir.
Jónína hefur ekki misst móðinn
þrátt fyrir þessar hremmingar og á
Halló Höfða ætlar hún að opna
kaffihús við þjóðveginn í litlu húsi
sem búið er að koma fyrir á rústum
gömlu útihúsanna. G.E.
BORGARBYGGÐ
Frá Grunnskóla
Borgarness
Kennarar, nemendur og forráðamenn
þeirra athugið.
Skólinn hefur starfsemi sína miðvikudaginn
1. september n.k. og eiga nemendur að
mæta í skólann þann dag sem hér segir:
Nemendur 5.-10. bekkja mæti kl. 10 f.h.
(skólabíll úr Bjargslandi kl. 09:50)
Nemendur 1A - 4A (fyrirhádegisbekkja) mæti kl. 11.
Nemendur 1B-4B (eftirhádegisbekkja) mæti kl. 13.
(skólabíll úr Bjargslandi kl. 12:50)
Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá daginn eftir,
fímmtudaginn 2. september kl. 8:10.
Kennarar eru boðaðir til fundar
þriðjudaginn 24. ágúst kl. 10 f.h.
Skólastjóri
Starfsfólk óskast.
Viðhald girðinga á færri hendur
Á síðasta fundi bæjarstjómar
Borgarbyggðar var samþykkt álykt-
un þess efnis að leyft verði að fela
einum aðila að annast viðhald girð-
inga með stofn- og tengivegum á
vissum svæðum.
„Samkvæmt vegalögum ber land-
eiganda að sjá um viðhald girðinga
meðfram vegum en Vegagerðin
greiðir kostnaðinn að hluta. Þetta
fyrirkomulag hefur gefist misjafn-
lega enda eru menn misvel í stakk
búnir til að sinna þessu verkefni,“
sagði Stefán Kalmansson bæjar-
stjóri Borgarbyggðar í samtali við
Skessuhorn.
Hann kvaðst þó ekki telja að
þessi mál væru í neitt verri farvegi
en annars staðar. „Það er mikilvægt
öryggisatriði að komið sé í veg fyr-
Hross á vegi
ir ágang búfjár með þjóðvegum í
sveitarfélaginu og þar em góðar
girðingar mikilvægur liður. Eins og
sakir standa bera mjög margir aðil-
ar ábyrgð á viðhaldi girðinga með-
fram vegum í sveitarfélaginu og það
er talið geta reynst árangursríkara
ef þau mál væm á hendi færri að-
ila;“ sagði Stefán.
G.E.
Rafmagn í jörð á nesinu
Oryggisatriði og umhverfismál segir Erling Garðar Jónasson umdæmisstjóri Rarik
í sumar hefur Rarik unnið að því
að leggja jarðstreng £ stað há-
spennulínu frá Arnarstapa að
Tlellnum. Raflínustaurar munu þó
ekki heyra alveg sögunni til á þessu
svæði því ákveðið hefur verið að
raska ekki hrauninu við Hellna
meir en nauðsynlegt er.
„Veðurálag er mikið á þessum
slóðum og truflanagjarnt. Þess
vegna er það mikið öryggisatriði að
koma rafmagninu í jörð,“ sagði Er-
ling Garðar Jónasson umdæmis-
stjóri Rarik á Vesturlandi. „Þetta er
einnig mikið umhverfismál í þessari
náttúruparadís en í framtíðinni
munu raflínustaurar ekki spilla
ásýnd svæðisins nema á stuttum
kafla. Með tilkomu nýja jarð-
strengsins gefst íbúum á utanverðu
nesinu í fyrsta sinn kostur á þriggja
fasa rafmagni.“
Að sögn Erlings hefur verið unn-
ið að því undanfarin ár að jarð-
strengjavæða sunnanvert nesið og
nú er rafmagnið komið í jörð frá
Syðra Lágafelli að Breiðuvík. I
sumar var rafmagnið einnig lagt í
jörð ffá Rifi að Gufuskálum. „Þess-
ar aðgerðir miða meðal annars að
því að koma háspennukerfinu í jörð
á mjög söltum svæðum. Það hefúr
verið bilanagjart á þessum slóðum
vegna þess að mikið salt er í lofrinu
þegar hvessir og rýkur upp á útnes-
inu,“ sagði Erling. G.E.
ATVINNA-ATVINNA
Vegna aukinna verkefna óska
Borgarnes-kjötyörur eftir
starfsmönnum í ýmis störf sem fyrst.
Allar upplýsingar gefa Ricardo og
Anna B|örk í síma 430 5600
Loftorka í Borgarnesi ehf. óskar
eftir að ráoa starfsfólk í
eftirtalin störf:
/ Trésmiði og verkamenn
vana byggingarvinnu.
Meiraprófsbílstjóra og
kranamann.
Allar nánari upplýsingar gefur
Konráð Andrésson
í síma 437 1113 og hs. 437 1155
EOPÍF
Engjaási 1
Borgarnesi - Sími 437 1113
'•Æ-'.'fiT#.
Akraneskaupstadur
Iþróttamidstödin Jaðarsbökkum
ATVINNA
Óskad er eftir starfsmanni vid
íþróttamiðstoðina að Jaðarsbökkum.
Um er að ræða 100% stöðugildi. Laun eru samkvæmt
kjarasamningum STAK og Akraneskaupstaðar.
Staríið er vaktavinna og felst í sundlaugargæslu, þrifiun
og gæslu í karlaklefum.
Viðkomandi þarf að hafa góða kunnáttu í skyndihjálp, sundi
og þarf að geta bytjað strax.
Nánari upplýsingar veitir íþróttafuHtrúi í síma 431 3560.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni Stillholti 16-18.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna fyrir 31. ágúst.
íþróttafiilltrúi
kraneskaupstaðar.