Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 5
^' FIMMTUDAGUR 19/ÁGÚST1999 '5 ónarmib Flosa Dreifbýli í Þéttbýii Ég hef voða mikið verið að hugsa um Laugar- dalinn í Reykjavík uppá síðkastið. Verið alveg und- irlagður. Og ekki bara ég heldur öll íslenska þjóðin ef marka má fjölmiðla. Mér er orðið nær að halda að gæfa og farsæld íslensku þjóðarinnar standi og falli með því hvort einhverhús verði byggð í Laugardalnum í Reykja- vík eða ekki. Allt að verða vitlaust í þéttbýlinu útaf því að það skuli ekki eiga að fá að vera dreifbýli. Það er nefnilega svo 'skrítið að ekkert virðast sveitamenn á íslandi þrá eins heitt einsog að verða borgarbúar og borgarbúar virðast eiga þann draum heitastan að verða sveitamenn. Dreifbýlinu halda menn svo að hægt sé að við- halda í Reykjavík með því að byggja ekki hús í Laugardalnum. Ég er fæddur í Reykjavík niðurvið Tjörn og bjó í sextíu ár í miðbænum þar sem aðalútivistarsvæð- ið er flugvöllur. Við þetta undi ég þar til ég fann að hugur minn stefndi til skemmtilegra útvistarsvæðis og flutti hingað í Borgarfjörðinn. Þetta var fyrir réttum tíu árum. Stundum hugsa ég sem svo: Mikill hamingjuauki yrði það nú fyrir íslendinga ef þeir sem búa í þéttbýli sættu sig við að vera borgarbúar og þeir sem búa í dreifbýli sættu sig við að vera dreifbýlingar. Öllum ætti að vera Ijóst að íslenska þjóðin skipt- ist í tvennt: -dreifbýlinga og þéttbýlinga. Tiltölulega stutt síðan allir landsmenn voru dreifbýlingar og vafalaust skammt undan að þjóðin öll verði þéttbýlingar. Dreifbýlingar og þéttbýlingar eiga fátt sameigin- legt, nema ef vera kynni uppruna sinn. Hagsmunir eru ólíkir og þá að sjálfsögðu skoðanir allar líka. Nú er það svo að allir eiga sér draum. Það á bæði við um dreifbýlinga og þéttbýlinga. Og hver er svo draumurinn? Dreifbýlinga dreymir um að fá að búa í þéttbýli og þéttbýlinga dreymir að fá að búa í dreifbýli. Á nokkrum áratugum hafa á íslandi orðið þjóð- flutningar, með því að sveitamenn hafa í hópum flust „á rnölina", til að láta þann draum rætast að vera þéttbýlingar. Við þetta hafa orðið til borg og bæir, en það er það kallað þegar hús rísa mörg í þyrpingu, stund- um aðskilin af götum ,strætum og jafnvel torgum og oftar en ekki eru í húsunum unaðslegir sveita- menn sem hafa látið drauminn, að komast í þétt- býlið, rætast svo þeir geti látið sig fara að dreyma um að komast aftur uppí sveit. Ég er einn af þeim sem lét þann draum rætast. Svo ég geri nú langt má stutt, þá er ég orðinn svo þreyttur á öllu útivistarsvæðaröflinu í Reykjavík að ég fæ velgju þegar ég heyri orðið „útivistar- svæði“ nefnt. Ég held einfaldlega að þeir sem hafa kosið sér að búa í þéttbýli verði að sætta sig við það að búa ekki í sveit. Og sveitamenn eiga að una glaðir við sitt í dreif- býlinu. Annars hef ég það fyrir satt að útivistarsvæði Reykjavíkur séu ekkert úr hófi vinsæl. Meira að segja Klambratúnið sem er orðið einn fegursti bletturinn í Reykjavík. Þangað virðist fólk lítið sækja, nema ef til vill einn og einn kynlegur kvistur sem á blíðum sumardegi bíður í skjóli runn- anna eftir því að fá tækifæri til að sýna á sér skömmina og hrella með því gamlar konur og börn, sem eru svo aldrei á túninu af því Reykvíkingar nota önnur útivistarsvæði en þau sem eru í miðbæ borgarinnar. Eg hugsa að varla sé til unaðslegra útivistar- svæði en Heiðmörkin. Þangað fara miklu færri en ætla mætti, samt er þangað fimm mínútna akstur úr borginni. Svo unaðslega vill nefnilega til að ísland er eitt allsherjar útivistarsvæði, vel að merkja, ef þéttbýl- iskjarnarnir eru frátaldir. Borgir og bæir eru eðli málsins samkvæmt, mest „innivistarsvæði". Einu útivistarsvæðin í Reykjavík, sem njóta vin- sælda er Austurstrætið þegar blessaðri sumarsól- inni loksins þóknast að verma götuna, já og Hall- ærisplanið, ef það er þá ekki komið úr tísku. Fyrir mér, sem bjó í sextíu ár í hjarta Reykjavík- urborgar er þvargið um Laugardalinn svo mikið víðáttukjaftæði að ég nenni ekki einusinni að hafa skoðun á því. Dásemdir íslenskrar náttúru verða ekki búnar til á „útivistarsvæðunT í Reykjavík. Þær guðsgjafir er aðeins að finna í sveitum landsins þar sem enginn vill búa nema sveitamenn og sérvitringar. Flosi Ólafsson Bergi Unnið við jarðboranir í Ólafsvík i síðustu viku. Mynd: G.E. Jarðhitaleit á Snæfellsnesi Leitað að hæsta hitastigi Jarðhitaleit á Snæfellsnesi er enn í fullum gangi en eins og flestum ætti að vera kunnugt er árangurs af henni þegar farið að gæta með hitaveitu í Stykkishólmi og víðar. Nú standa yfir ffekari boranir í Ólafsvík en þar er unnið við djúp- rannsóknarholu á svæði sem áður hefur verið rannsakað. „Það er ver- ið að leita að hæsta hitastigli en þetta er rannsóknarverkefni sem mun segja alfarið til um hvort virkj- un sé hagkvæm á þessum stað,“ sagði Erling Garðar Jónasson um- dæmisstjóri Rarik sem hefur yfir- umsjón með jarðhitaleitinni. „Ef við fáum nægjanlega háan hita- stigul á þessum stað verða ekki frekari rannsóknir í Snæfellsbæ en ef ekki þá verðum við að leita bet- ur,“ sagði Erling Garðar. Fyrir stuttu var boruð djúphola í Grundarfirði en rannsóknir standa enn yfir. Þeim líkur í þessari viku en niðurstöðu úr rannsóknunum í Ólafsvík er að vænta í næstu viku. Heitasta vatnið á Kóngsbakka Þegar borunum líkur í Ólafsvík fer borinn að Vegamótum í Eyja- og Miklaholtshreppi. „Þar verður borað á ákaflega heitu svæði en þar er hitastigullinn mjög hár og horf- ur eru mjög góðar á að þar sé hag- kvæmur kostur. Á næstunni verður einnig borað á bænum Kóngsbakka í Helgafellssveit en þar er hita- stigull um 450 - 470 gráður sem er það mesta sem fundist hefur á Snæ- fellsnesi til þessa,“ sagði Erling Garðar. RAFVIRKI - VÉLVIRKI íslenska járnblendifélagið hf. óskar eftir að ráða rafvirkja og vélvirkja til framtíðarstarfa í tæknideild fyrirtækisins. Störfin eru aðallega fólgin í viðhaldi og viðgerðum á búnaði verksmiðjunnar. Ath. Endurnýja þarf eldri umsóknir sem sendar hafa verið Islenska Járnblendifélaginu hf. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði hf. frá kl. 9-12 í síma 533 1800. Auk þess veita upplýsingar Adólf Ásgrímsson rafveitustjóri eða Sævar Ríkharðsson verkstjóri um starf rafvirkja og Björn Jónsson verkstjóri um starf vélvirkja í síma 430 0200. Vinsamlegast sendið umsóknirtil íslenska Járnblendifélagsins, Grundartanga, 301 Akranes eða Ráðgarðs fyrir 21. ágúst n.k. merktar: „íslenska járnblendifélagið“ og viðeigandi starfi. íslenska járnblendifélagið hf. GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.