Skessuhorn - 19.08.1999, Síða 15
áffilSSíHiöi2H
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
15
Sumrinu biargað á Skaganum
/
Skagamenn komnir í úrslit bikarsins eftir stórsigur á IBV
Skagamenn unnu glæsilegan sigur
á Islandsmeisturum IBV 3 -0 í und-
anúrslitum bikarkeppninnar sl.
miðvikudag og eru þar með búnir
að tryggja sér sæti í úrslitum. Þar
mæta þeir erkifjendunum KR og
fer leikurinn fram á Laugardalsvelli
í lok sept. Það má því segja að
sumrinu sé bjargað á Skaganum því
slakt gengi Skagaliðsins í sumar
hefur haft sín áhrif á bæjarsálina.
Sigur Skagamanna var sanngjarn
og voru þeir á köflum með algjöra
yfirburði á vellinum. Það má segja
að hin sanna Skagastemming hafi
lifnað á ný þegar leið á leikinn því
áhorfendur tóku vel við sér þegar
þeir sáu hvert stefhdi. Hinsvegar
voru áhorfendur frekar fáir miðað
við mikilvægi leiksins.
Fyrsta korterið var fremur rólegt.
Skagamenn voru meira með bolt-
Alexander Hognason og Kári Steinn Reytiisson fagna öðru marki Skagatnatma gegn
ÍBV
ann en náðu ekki að skapa nein
hættuleg færi fyrr en á 17. mínútu
þegar brotið var á Steráni Þórðar-
syni innan vítateigs Vestmanney-
inga og Gylfi Orrason dómari
leiksins dæmdi vítaspyrnu. Áhorf-
endur héldu niðri í sér andanum
þegar Sturlaugur Haraldsson tók
spyrnuna en Skagamenn hafa mis-
notað megnið af sínum vítaspyrn-
um í sumar. Það stóð líka heima að
vítaspyrnudraugur þeirra gulu var
mættur á svæðið og Birkir Kristins-
son markvörður IBV varði glæsi-
lega ágætt skot frá Sturlaugi. Kenn-
eth Matiane fylgdi vel á eftir en aft-
ur varði Kristján.
Skagamenn héldu áfram að sækja
og Stefán og Matiane sýndu góðan
samleik á köflum en náðu ekki að
klára dæmið. Fyrsta markið kom
ekki fyrr en á 31. mínútu þegar
Birkir Kristinsson varði gott skot
frá Pálma Haraldssyni sem fylgdi
sjálfur vel á eftir og kom boltanum
í netið. Áftam sóttu Skagamenn og
réðu lögum og lofum á vellinum.
Fleiri urðu þó mörkin ekki í fyrri
hálfleik.
I síðari hálfleik héldu Skagamenn
uppteknum hætti og sóttu af krafti
og á 60. mínútu uppskáru þeir ríku-
lega þegar þegar Jóhannes Harðar-
son þrumaði boltanum í netið frá
vítateigshorninu eftir sendingu frá
Alexander Högnasyni. Síðasta
markið kom síðan á 77. mínútu
þegar Kári Steinn Reynisson spilaði
sig inn í vítateiginn einn og óstudd-
ur og renndi boltanum framhjá
markverði Eyjamanna.
Mörk Skagamanna hefðu getað
orðið mun fleiri og Eyjamenn áttu
ekki nema eitt brúklegt færi í leikn-
um þegar Gunnlaugur Jónsson
bjargaði á línu á 80. mínútu. Ef lið-
ið spilar eins og það gerði á móti
IBV ætti liðið að eiga í fullu tré við
KR í úrslitunum og vel það.
AUir leikmenn Skagaliðsins voru
að spila vel á miðvikudagskvöldið
en maður Ieiksins var Jóhannes
Harðarson. Hann vann vel á miðj-
unni og skoraði glæsilegt mark.
Einnig voru þeir Stefán og Gunn-
laugur í essinu sínu.
G.E.
Hugarfarið
gerði útslagið
Sagði Jóhannes Harð-
arson eftir leikinn
„Þetta var ekki létt þótt segja
megi að við hefðum ákveðna
yfirburði í leiknum,“ sagði Jó-
hannes Harðarson í samtali við
Skessuhorn eftir bikarleikinn.
„Við vissum af biturri reynslu
að það þýddi ekki að gefa neitt
eftir og þar sem Eyjamenn eru
sterkastir í að koma hratt upp
völlinn vorum við ákveðnir í að
gefa þeim ekkert svigrúm. Enda
gekk það eftir og þeir voru ekki
að fá nein tækifæri sem hægt er
að tala um.
Það var fyrst og fremst hug-
arfarið sem gerði útslagið og
það var kominn tími til að við
sýndum hvað við gætum.“
Aðspurður um úrslitaleikinn
gegn KR í septemberlok sagði
Jóhannes: „Þetta leggst stórvel í
mig. Þetta verður leikur áratug-
arins í það minnsta og við kom-
um til með að Ieggja allt undir.“
GE
Skallamir á hraðri uppleið
Erum farnir að sýna okkar rétta andlit, segir Jakob Skúlason formaður
Bruni - Víkingur Ólafsvík 3-1
Oruggur sigur Bruna í
síðasta leik
Fyrstu deildarlið Skallagríms
virðist vera komið á beinu brautina
eftir dapurlegt gengi í sumar. Liðið
hefur unnið þrjá síðustu leiki og
hefur lyft sér úr fallsætinu. Eftir
glæsilegan sigur á Dalvík á útivelli
6-2, er Skallagrímur í 8. sæti deild-
arinnar með 16 stig en þess má geta
að liðin í 2. - 7. sæti eru með 17 til
20 stig og á því Skallagrímur góðan
möguleika á að fikra sig upp stiga-
töfluna.
Markaskorarinn mikli, Hjörtur
Hjartarson, fór á kostum í leiknum
á Dalvík og skoraði fjögur mörk.
Hann er nú lang markahæstur í
deildinni með 13 mörk en næstu
menn hafa skorað níu stykki. Har-
aldur Hinriksson, sem átti einnig
stórleik, skoraði eitt mark í leiknum
en sjötta mark Skallagríms var
sjálfsmark. Skallagrímsmenn voru
einkar ffískir í leiknum á Dalvík og
miðað við Ieik þeirra þar eru þeir á
röngum stað í stigatöflunni.
„Ætli sé ekki óhætt að segja að
menn séu farnir að sýna sitt rétta
andlit," sagði Jakob Skúlason for-
maður Knattspyrnudeildar Skalla-
gríms í samtali við Skessuhorn.
„Við vissum að við værum með
ágætis mannskap enda byrjuðum
við með glans en síðan fór eitthvað
úrskeiðis. Oheppnin elti okkur á
tímabili og við vorum að klúðra
unnum leikjum og tapa með eins
marks mun hvað eftir annað. Menn
hafa hinsvegar verið að spila vel að
undanförnu. Alexander Linta hefur
komið sterkur inn og Andrés einn-
ig. Það er líka aðdáunarvert að þrátt
fyrir erfiðleika hefur mórallinn ver-
ið sérlega góður og menn eru
ánægðir með þjálfarann. Við von-
um að þetta sé að koma en það er
ljóst að næsti leikur, gegn Þróttur-
um, verður erfiður. Það er alltaf
erfitt að koma í svona leiki þegar
vel hefur gengið um tíma. Ef áhorf-
endur mæta á völlinn og styðja við
bakið á strákunum þá eru þeir til
alls vísir,“ sagði Jakob að lokum.
Næsti leikur Skallagríms er í
kvöld (fimmtudagskvöld) kl. 19:00
á Borgarnesvelli gegn Þrótti úr
Reykjavík.
GE.
Firmakeppni Faxa
Verðlaunahafar í bamaflokki á Firttmkeppni Faxa. Mynd: Kristín Gunnarsdóttir
Firmakeppni Faxa fór fram 7.
ágúst á Faxaborg í blíðskapar
veðri. Söfhun firmaáheita gekk
mjög vel og þakkar firmakeppn-
isnefhd skjót og góð viðbrögð
einstaklinga og fyrirtækja og
allra sem stóðu að söfhunni.
Bamaflokkur:
1 sæti Jónas Ingólfsson á Orms-
tungu keppti fyrir Guðnýju og
Magnús í Krossnesi.
2 sæti Flosi Ólafsson á Jöru
keppti fýrir Tamningastöðina
Hamraendum.
3 sæti Guðni Benediktsson á
Geisla keppti fyrir Búnaðarsamtök
Vesturlands.
4 sæti Hrafn Norðdal á Reyk
keppti fyrir Kaðalstaðabúið.
5 sæti Finnbogi Eyjólfsson á
Pöndu keppti fyrir Beigaldabúið.
Unglingaflokkur:
1 sæti Berglind Rósa Guðmunds-
dóttir á Maístjörnu keppti fyrir Ás-
dísi Haraldsdóttir Álftanesi.
2 sæti Árni Þór Lárusson á Aski
keppti fyrir Skessuhorn ehf.
3 sæti Vilborg Bjarnadóttir á
Frey keppti fyrir Holtakjúkling.
4 sæti Sóley Birna Baldursdóttir á
Snerpu keppti fyrir Jarðlangsstaði.
5 sæti Elísabet Fjeldsted á Stjör-
nu keppti fyrir Hamraendabúið.
Kvennaflokkur
1 sæti Unnur Ólafsdóttir á Öldu
keppti fýrir Hótel Borgarnes.
2 sæti Rósa Björk Sveinsdóttir á
Ópal keppti fýrir Öldu og Reyni
Leirulækjarseli.
3 sæti Iris Ármannsdóttir á Erni
keppti fýrir Bílaþjónusta Ólafs,
Reykholti.
4 sæti Gýgja Dögg Einarsdóttir á
Hreim keppti fýrir Kristján Fred-
riksen, Varmalandi.
5 sæti Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir á Dröfn keppti fýrir Stefán
Eggertsson í Steðja.
Karlaflokkur:
1 sæti Pálmi Ríkharðsson á
Dropa keppti fýrir EIsu og Svein
Ulfsstöðum.
2 sæti Einar Reynisson á Högna
keppti fýrir Sigrúnu og Jóhann
Smiðjuhóli.
3 sæti Einar Karelsson á Hjörvari
keppti fýrir Þórhall Bjarnason,
Varmalandi.
4 sæti Daníel Ingi Smárason á
Óttari keppti fýrir Rauðanes II.
5sæti Bjarni Marinósson á Blika
keppti fýrir Rafn Ásgeirsson,
Varmalandi.
-HI
Bruni sigraði Víking Ólafsvík
með þremur mörkum gegn einu
á Akranesi á laugardag í síðasta
leik liðsins í riðlinum.
Öll mörkin voru skoruð í fýrri
hálfleik sem var ágætlega fjörugur.
Brunaliðið var sterkari aðilinn í
leiknum en það voru Ólsarar sem
skoruðu fýrsta mark leiksins á 20.
mínútu og var þar að verki Jónas
Gestsson. Guðmundur Claxton
jafnaði fýrir Bruna tíu mínútum
síðar þegar hann skoraði örugglega
úr vítaspyrnu. Sveinbjörn
Hlöðversson skoraði síðan tvívegis
með stuttu millibili undir lok hálf-
leiksins og gerði nánast út um leik-
inn. Seinni hálfleikurinn var heldur
litlaus og tilþrifalítill og þrátt fýrir
nokkur góð færi tókst Bruna ekki
að bæta við fleiri mörkum.
K.K.
SIP! O'- Ig'"'1
Mynd K.K
Akraneskaupstadur
íþróttanefnd
Gönguferð að
Melabökkum í Melasveit.
Laugardaginn 28. ágúst verður farið í
gönguferð að Melabökkum í Melasveit.
Lagt verður af stað með rútu kl. 10:00
frá íþróttamiðstöðinni Jáðarsbökkum.
Þátttökugjald er 500 kr.
Skráning fer fram í íþróttamiðstöðinni
Jaðarsbökkum í síma 431 2643.
Gangan sjálf tekur um það bil tvo tíma og
er því tilvalin fyrir alla JQölskylduna.
Fararstjóri verður Bjöm Finsen.
(]ip
J lií
Iþróttanefhd
kraneskaupstaðar.