Skessuhorn - 25.11.1999, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 25. NOVEMBER 1999
anUSUtlU^
Landað í Grundarfiiði
Það er oft mikið um að vera við höfiiina i Grundarfirði. Stundum fer fram löndun úrfimm eða sex stórum bátum og einum til tveim
togwrum á sama sólarhringnum. Þessi mynd var tekin þegar lokið hafði verið við lóndun úr Hring, Ofeigi, Sóley, Haukabergi, Farsæl,
Grundfirðingi og Gjafari. Mynd: GK
Eistnavöxtur og kynþroski
Bætt fóðrun og aðbúnaður lækkar kynþroskaaldur ungfola
í liðinni viku kynntu þeir Gunn-
ar Gauti Gunnarsson, Ingimar
Sveinsson og Olafur R. Dýrmunds-
son skýrslu um rannsóknir sínar á
kynþroska íslenskra hesta. í lögum
um búfjárhald, forðagæslu og fl. er
kveðið á um að graðhestar eða
laungraðir hestar, 16 mánaða eða
eldri, skuli vera í öruggri vörslu allt
árið.
Með bættri fóðrun og uppeldi
hrossa geta sumir veturgamlir folar
fýljað hryssur og dæmi eru um að
þeir nái kynþroskaaldri allt niður í
10 mánaða aldur.
Samkvæmt niðurstöðum skýrslu-
höfunda getur rúmlega þriðjungur
veturgamalla fola, eða 35,6%
þeirra, náð lífeðlisfræðilegum kyn-
þroska á aldrinum 12-14 mánaða.
Jafnframt segja þeir að miðað við
þær umbætur sem orðið hafa í fóðr-
un og meðferð geti allmargir vetur-
gamlir folar fyljað hryssur. Með
markvissara ræktunarstarfi í hrossa-
rækt hafa kröfur aukist um að dreg-
ið verði úr hættu á slysafangi.
Skýrsluhöfundar leggja því til á
grundvelli niðurstaðna athugana
sinna að lagaákvæði um vörslu
graðpenings verði tekin til endur-
skoðunar á þann veg að skylt verði
að hafa stóðhesta í öruggri vörslu
frá 12 mánaða aldri í stað 16 mán-
aða nú.
-MM
Það er ekki nóg aðþœr gati fiálfar að sonmn sínum...
frá Olafsvík, Björn Bjamason,
Vestlendingamir sem keppa uiti titilinn Herra Island í kvöld. Frá vinstri: Magnús Guðmundsson 21 árs,
II árs frá Akranesi, Gunnar Örn Pétursson 21 ársfrá Akranesi og Garðar Sigvaldasoti 2S árafrá Akranesi.
Herra ísland 1999 verður valinn í
kvöld á Hótel Islandi. Sextán piltar
taka þátt í keppninni í ár og þar af
eru fjórir Vestlendingar. Auk þess
má geta þess að Einar Karl Birgis-
son sem tók þátt í keppninni Herra
Vesturland á síðasta ári sér um að
þjálfa keppendur í framkomu ásamt
fyrirsætunni Yesmin.
Samið við Ingileif
Vegagerðin hefur samið við Ingi-
leif Jónsson á Svínavatni sem átti
lægsta boð í Borgarfjarðarbraut -
Vatnshamraleið. Verktakinn hyggst
hefja undirbúning framkvæmda í
vikunni.
Brúarflokkur Vegagerðarinnar er
vel á veg kominn með að steypa
stöpla fýrir nýja brú yfir Grímsá en
stálbitar sem bera uppi brúargólfið
verða ekki settir á sinn stað fyrr en
í apríl á næsta ári. Brúarsmíðinni á
síðan að vera lokið fyrir miðjan
júní. GE
Tuttugu þúsund
Tuttugu þúsund gestir hafa sótt búa með kólnandi veðri að undan-
sundlaug Stykkishólms frá því hún förnu eins og búast mátti við en
opnaði um miðjan júlí sl. Verulega þrátt fyrir það er aðsóknin framar
hefur dregið úr sundferðum bæjar- vonum. K.Ren
Atakið veitir viðurkenningar
Hvatningarverð-
laun á Akranesi
Átak Akranes hefur ákveðið að
verðlauna bestu gluggaútstilling-
una í verslunum í ár. Fenginn verð-
ur sérfræðingur í gluggaútstilling-
um sem metur þær og gerir á þeim
faglega úttekt.
Einnig hafa verið uppi hug-
myndir hjá Atvinnumálanefnd
Akraness um að veita því fyrirtæki á
Akranesi verðlaun sem skarað hef-
ur framúr á árinu í markaðsmálum
og/eða nýsköpun í atvinnumálum.
Bæði þessi verðlaun eru hugsuð
sem hvatning til fyrirtækja á Akra-
nesi til að gera betur en ekki síður
til að geta þeirra sem gera vel. Já-
kvæð umræða um það sem vel er
gert er nauðsynleg hvatning til
allra og það er kveikjan að verð-
laununum.
Gert er ráð fyrir að bæði þessi
verðlaun verði afhent á milli jóla og
nýárs.
('fréttatilkynningfrá form.
Atvinnumálanefndar og
framkvæmdastjóra Ataksins).
s
Obreytt útsvar
Á fundi bæjarstjórnar Akraness á það er hámarksútsvarsprósenta sem
þriðjudag var samþykkt að að út- lög leyfa.
svar Skagamanna á árinu 2000 K.K.
verði 12.04% eins og síðustu ár en
Hrútar á netið.
Búnaðarsamtök Vesturlands hafa
nú komið sér upp heimasíðu þar
sem hrútar sauð-
fjársæðingastöðv-
arinnar eru kynntir
og sæðingaplan
ársins 1999 kemur
fram. Á síðunni er
nafh hrúta, myndir
af þeim ásamt ná-
kvæmum upplýsingum sem við
eiga. Hér er um að ræða handhæga
upplýsingaveitu þar sem bændur
geta m.a. spáð og spekúlerað í
hvaða hrútar henta
þeirra ám áður en
sæðispantanir eru
gerðar. Það er
Hallgrímur Sveins-
son ráðunautur sem
annast hefur gerð
síðunnar. Slóðin er
www.vesturland/buvest.
-MM
Hörpuútgáfan
opnar heimasíðu
http://www.horpuutgafan.is
Hörpuútgáfan hefur opnað
heimasíðu þar sem viðskiptavinum
gefst kostur á að kynna sér og
kaupa nýjar sem gamlar bækur út-
gáfunnar. Hörpuútgáfan er stofnuð
á Akranesi 1. október 1960 og hef-
ur starfað þar samfellt frá upphafi.
Lögð er áhersla á útgáfu sígildra
bóka, ljóðabóka og ævisagna, bóka
um þjóðlegan fróðleik, héraðs-
sagna, þýddra skáldsagna o.fl Árið
1989 keypti útgáfan húsnæði að
Síðumúla 29 í Reykjavík og er þar
með skrifstofu og forlagsafgreiðslu
sem opin er í nóvember og desem-
ber. Slóð heimasíðunnar er:
http://www.horpuutgafan.is/
K.K.