Skessuhorn


Skessuhorn - 25.11.1999, Síða 18

Skessuhorn - 25.11.1999, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 25. NOVEMBER 1999 SKESSUHÖ6M Stórtónleikar félagsmiðstöðvarinnar Oðals Unglingamir til fyrirmyndar Sagði Indriði Jósafatsson æskulýðsfulltrúi “Þetta var frábær skemmtun og ánægjulegt að fylgjast með þrjúhundruð krökkum skemmta sér saman án vímuefna,” sagði Ind- riði Jósafatsson æskulýðsfulltrúi í Borgar- byggð eftir árlega stórtónleika félagsmið- stöðvarinnar Oðals og nemendafélags Grunn- skólans sem haldnir voru á Hótel Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag. Þetta er nítmda árið í röð sem félagsmið- stöðin og Nemendafélagið standa fyir skemmtun af þessu tagi fyrir elstu bekki grunnskólanna í Borgarbyggð og fleiri skóla á Vesturlandi. A skemmtuninni voru krakkar frá Grunnskóla Borgarness, Varma- landsskóla, Laugaskóla í Dölum, Laugagerði, Kleppjárnsreykjaskóla, Heiðarskóla, Lýsuhólsskóla, Búðar- dalsskóla og Reykhólaskóla. Auk þess komu gestir frá félagsmiðstöð- inni á Blönduósi sem voru í óvissuferð. Skemmtikraftamir vora ekki af lakara tag- inu. Ein vinsælasta hljómsveit landsins í dag, 200 þúsund naglbítar sá um fýrri hálfleikinn og á eftir kom síðan poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson. “Það var dúndrandi stuð allan tímann og liðið ærðist bókstaflega þegar Páll Oskar steig á sviðið,” sagði Indriði. “Krakk- arnir voru alveg til fyrirmyndar og kom ekki upp eitt einasta vandamál. Það er virkilega gaman að gera eitthvað fyrir unglingana þeg- ar þeir virða það og taka þátt í því af heilum hug.” Myndirnar hér við tala sínu máli. GE Ottó nashyrningur í Bíóhöllinni Skemmtileg sýning fytir böm á öllum aldri Skagaleikflokkurinn frumsýndi leikritið um Ottó nashyrning á föstudag í síðustu viku. Verkið er leikgerð eftir Hörð Sigurðarson sem byggð er á sögu Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri sýningarinn- ar er Elvar Logi Hannesson sem jafhframt hannaði leikmynd. Tón- listina við verkið samdi Þorgeir Tryggvason og tónlistarstjórn og flumingur er í höndum Birgis Óla Sigmundssonar. Margar skrautlegar persónur er að finna í þessari klassísku sögu Ole Lund Kirkegaard sem gengur ágæt- lega upp sem leikhúsverk. Lykilper- sónumar eru vinimir Toppur og Viggó sem Ingunn Dögg Eiríks- dóttir ogjón Ingi Þrastarson leika. Viggó er sonur herra Bjöms sem hefur nýlega keypt kaffihúsið á neðstu hæðinni í rauða húsinu, Viggó er stilltur strákur sem býr við aga og ástríki föður síns og nær Jón Ingi að gera honum góð skil. And- stæða hans er Toppur sem er uppá- tækjasamur lífsglaður strákur og verður hann einstaklega skemmti- legur í meðförum Ingunnar Daggar sem er greinilega efnileg leikkona. Hermann Guðmundsson fer á kostum í hlutverki herra Björns og sýnir svo ekki verður um villst að harm er með betri gamanleikurum sem stigið hafa á svið með Skaga- leikflokknum. Hann klikkar hvergi í túlkun sinni og er primus mótor í sprellinu. Þorsteinn Ragnarsson leikur húsvörðinn herra Hólm og gerir það af yfirvegun og greinilega með mikilli ánægju. Þorsteinn hef- ur þann hæfileika að geta hreyft sig á skemmtilegan máta og hefði að ósekju mátt gera meira úr þeim þætti í sýningunni. Herra Hólm er skotinn í hinni heyrnadaufu ungffú Flóru sem Olína Jónsdóttir leikur. Hlutverkið er ekki stórt en mikil- væg uppspretta húmors í verkinu sem Olínu tekst að koma vel til skila. Önnur hlutverk í sýningunni eru veigaminni og misjafnlega af hendi leyst eins og gerist - en aldrei til vansa. Þegar upp er staðið í leikslok er ekki annað hægt að segja en að hér sé um að ræða skemmtilega sýningu sem höfði til barna á öllum aldri. Sviðsmyndin er litrík og hugvits- samlega hönnuð en skapar fullmik- il þrengsl í nokkrum atriðum þar sem á að vera þröng á þingi vissu- lega en gerir leikuram erfitt um vik að skila sínu. Búningar era líka lit- ríkir eins og er við hæfi sem og Ottó nashyrningur. Yfirleitt er góð- ur hraði í sýningunni og ekki að sjá að bömum í salnum tæki nokkurn tíma að leiðast. Það er helst í sum- um söngatriðunum sem tempóið dettur dálítið niður og skrifast það trúlega til jafhs á músíkina sjálfa (sem býður ekki upp á mikil tilþrif) sem og söngflutninginn sem er veikasti hlekkurinn í sýningunni. Leikstjórinn hefur lagt áherslu á að persónurnar fengju að njóta sín sem best og gætt þess að sérkenni þeirra yrðu skýr. A sama tíma og verkið er nokkurs konar ævintýri sem tilheyrir ævintýralandinu með gulum nashymingi sem gengur út úr vegg og svo framvegis þá era persónurnar ákaflega jarðbundnar og “raunverulegar” og einstaklega trúverðugar. K.K. Eitt af atriiunum í uppfœrslu Skagaleikflokksms á Ottó nashymingi.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.