Skessuhorn - 25.11.1999, Side 19
gggggJJJJQjgU
I: fömiŒ'f&A M .öc>íM®>TMMí'í
FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1999
81
19
Knattspymu-
veisla á nesinu
Um síðustu helgi var mik-
il knattspyrnuveisla á Snæ-
fellsnesi en þá var haldið
fyrra mótið af tveimur fyrir
yngri flokka á vegum HSH.
Seinna mótið fer fram 4. og
5. mars á næsta ári.
I Grundarfirði léku knatt-
spyrnumenn og konur í 7.,
6, og 5. flokki listir sínar og
gekk það mjög vel. Met
þátttaka var í þessum flokk-
um en um 200 krakkar
mættú til leiks. Allir kepp-
endur í þessum flokkum
fengu verðlaunapening fyrir
þátttökuna en ekki var keppt
um sæti. Eitt lið frá UMFG
í 5. flokki var eingöngu Þámakendur á knattspymumóti í Grundarfirði.
skipað stúlkum og settu þær
skemmtilegan svip á mótið. Þær
komu t.d. alltaf syngjandi inn á
völlinn þegar þær áttu að leika og
gáfii strákunum ekkert effir í knatt-
spyrnunni.
A sunnudeginum var keppt í 3.
og 4. flokki í Stykkishólmi og var
harkan meiri þar, því að þar var
keppt um sæti. Mótið byrjaði kl
9:30 og var ekki búið fyrr en um
17:00. Fjöldi þátttakenda var einnig
mikijl á þessu móti eða um 150
krakkar, bæði strákar og stelpur.
Urslitin urðu þau effir fyrsta mótið
Myndir: Sigrún Ólafsdóttir
að í 4. fl. urðu í fyrsta sæti UMFG
gulur, í 2. sæti UMFG rauður og
því þriðja Snæfell gulur. I 3. flokki
sigraði Reynir gulur, í öðru sæti
Reynir rauður og í því þriðja
UMFG.
SÓ/GE
Hressir golfarar útr Mostra.
Mynd; Omarjóh.
Golfklúbburinn Mostri hélt
upp á 15 ára afinæli sitt sl.
föstudagskvöld. Jafnframt var
uppskeruhátíð og verðlaunaaf-
hending fyrir árangur á innan-
félagsmótum.
Stigameistari Mostra í ár var
Sigtryggur Jónatansson. Sá ung-
lingur sem besmm persónulegum
árangri náði á árinu var Kristinn
Bjarni Heimisson. Þá stóð
kvennalið Mostra sig frábærlega
þegar þær unnu Vesturlands-
keppni kvenna sem í ár var haldin
í Grundarfirði. K.Ben.
Aðalfundur Leynis
Hannes Þorsteinsson kosinn formaður
Aðalfundur golfklúbbsins Leynis
á Akranesi var haldinn á mánu-
dag og var ný stjóm kjörin á
fundinum. Hafsteinn Baldursson
Iét af formennsku og var Hannes
Þorsteinsson kosinn nýr formað-
ur í hans stað. Ur stjóm gengu
einnig Halldór Hallgrímsson og
Guðrún S. Ólafsdóttir. Áffam
sitja Svanhildur Thorstensen og
Ólafur Grétar Ólafsson. Nýir
menn í stjóm vom kosnir Hlyn-
ur Sigvaldason, Þorbergur Guð-
jónsson og Þorsteinn Þorvalds-
son. Þess má geta að Þorsteinn
sat í fyrstu stjóm klúbbsins og
var formaður hans í 13 ár.
Leynir verður 35 ára á næsta ári
og verður þetta því mikilvægt ár í
sögu félagsins en á árinu verður
tekinn í notkun 18 holu golfvöllur.
Stjórnendur GL búa sig undir
aukinn rekstrarkostnað á næstu
árum og telja að umferð um völlinn
þurfi að auka verulega. Tæplega
tveggja milljóna króna tap varð á
ársreikningi klúbbsins árið 1999 og
gerir fjárhagsáætlun fyrir næsta ár
ráð fyrir um 360.000 króna tapi á
almennum rekstri. Félagsgjald var
ákveðið 30.000 krónur og greiða
félagsmenn yngri en 20 ára ffá kr.
9.600 til 21.000 effir aldri. Félags-
mönnum hefur fjölgað ört síðustu
tvö ár og eru þeri nú 230 en voru
116 í upphafi árs 1997.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér
stað á Garðavelli í sumar. Unnið
var að framkvæmdum við 7 nýjar
brautir og gengu þær vel þrátt fyrir
erfitt tíðafar. Fleildarkostnaður við
framkvæmdirnar á nýja svæðinu
nemur nú rúmlega 26 milljónum
króna og þar af hefur Akranesbær
lagt fram um rúmar 16 milljónir
samkvæmt sérstökum samningi þar
um.
K.K.
Ný stjóm Leynis. Frá vinstri: Svánhildur Thórsténsen, Hannes Þorsteinsson formaður,
Þorbergur Guðjónsson, Olafur Grétar Olafsson og Þorsteinn Þorvaldsson. A myndina
vantar Hlyn Sigvaldason. Mynd: K.K.
r Bikarkeppni SSÍ
ÍA féll í aðra deild
Bikarkeppni SSÍ fór fram í Sund-
hölf Reykjavíkúr um helgina og
hafnaði IA í næstneðsta sæti með
22.324 stig og féll þar með í aðra
cleilcl. Sundfélag Hafnarfjarðar
sigráði með yfirburðum og hlaut
samtals 30.476 stig. Ægir kom
næstur með 28.267 stig og Keflavík
í þriðja með 26.932 stig. Armann
fylgdi þar á eftir með 24.141 stig og
Njarðvík rak lestina með 21.720
stig. Þrjú Islandsmet voru sett á
mótinu og þrjú unglingamet: Jakob
Jóhann Sveinsson úr Ægi setti
glæsilegt Islandsmet í 200 metra
bringusundi og bætti eldra met um
rúmlega tvær sekúndur. Lára
Hrund Bjargardóttir úr SH setti
síðan Islandsmet í 200 metra skrið-
sundi. Stig eru gefin eftir árangri
og ræður því tími sundfólksins
stigafjölda fyrir hvert sund, en ekki
sætið sem það lendir í.
Bestum árangri Skagasundfólks-
ina náðu þær Kolbrún Yr Krist-
jánsdóttir og Anna L. Armanns-
dóttir. Kolbrún Yr sigraði í 100
metra baksundi kvenna og lenti í
öðru sæti í 200 metra fjórsundi og
Í00 metra skriðsundi. Anna varð í
öðru sæti í 200 metra flugsundi
kvenna og þriðja í 100 metra flug-
sundi. Sveit IA hafnaði í þriðja
sæti í 4x100 m fjórsundi kvenna og
4x 100 m skriðsundi. Guðgeir
Guðmundsson náði þriðja sætinu í
100 metra flugsundi karla. I stiga-
keppni kvenna endaði IA í fjórða
sætinu en karlarnir í sjötta og
neðsta sæti. K.K.
Keilufélag Akraness
í 16 liða úrslit
Keilufélag Akraness vann sann-
færandi sigur á 1. deildarliðinu HK
í bikarkeppni Keilusambandsins
með 125 pinna mun og er þar með
komið í 16 liða úrslitin. Leikurinn
endaði með 2140 gegn 2015 ÍA í
vil. Dregið hefur verið í 16 liða úr-
slitum og þar mætir Keilufélagið
Keiluböðltmum sem keppa í ann-
arri deild. Leikurinn fer fram þann
11. desember í keilusalnum í
Mjódd sem telst vera heimavöllur
Keilufélags Akraness. IA er enn í
efsta sæti þriðju deildar með fjög-
urra stiga forystu eftir sjö umferðir.
K.K.
®KncittspYrnufélog
Ifi
Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn
30. nóv n.k. kl. 20.00, í félagsaðstöðu
íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar eru hvattir til að masta.
Uppskeruhátíð félagsins verður haldin laugardaginn
4. des, hátíðin verður haldin í félagsheimilinu Miðgarði
Innri - Akraneshrepp, húsið opnað kl. 19.00
Þátttaka tilkunnist til skrifstofu félagsins eða
ísíma 431 3311
Allir velkomnir. Miðaverð kr. 3.500