Skessuhorn - 19.04.2000, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2000
^Kt99UIIU>~
Opnun Upplýsinga- og
kynningarmiðstödvar Vesturlands
Samgönguráðherra, Sturla
Böðvarsson, opnaði sl. fimmtu-
dag formlega nýja skrifstofu
UKV við Brúartorg í Borgamesi.
Fjölmenni var við vígsluna þar
sem flutt vom skemmtíatriði í
formi dans og hljómlistar.
Tilgangur skrifstofii UKV er að
starfrækja þar móðurstöð upplýs-
ingasöfnunar og -miðlunar um
ferðaþjónustu í landshlutanum með
það að markmiði að beina ferða-
mannastraumi inn á svæðið. Þannig
er gert ráð fýrir að UKV verði sam-
starfsvettvangur sameiginlegra
markaðsmála ferðaþjónustuaðila á
Vesturlandi.
Það var Gunnar Sigurðsson for-
maður stjórnar UKV sem stýrði
samkomunni. I ræðu sinni hvatti
hann m.a. vestlenska ferðaþjónustu-
aðila til nýta þetta tækifæri og sam-
einast um markaðssetningu svæðis-
ins í heild því það væri hagur grein-
arinnar. Við athöfhina var undirrit-
aður samningur milli Ferðamálaráðs
og Tæknivals um tölvukaup til upp-
lýsingamiðstöðva á landsbyggðinni
en fýrsta tölvan var einmitt afhent
UKV til afhota. Smrla Böðvarsson
ávarpaði samkomuna og klippti loks
á borði eins og samgönguráðherra
sæmir við slík tækifæri. Þar með er
skrifstofa UKV formlega tekin í
gagnið. MM
Til vinstri: Sturla Böðvarssm samgöngU-
ráðhetra vígir skrifstofuna og klippir á
borða við það ttekifieri.
Að neðan: Nemendur úr Tónlistarskól-
anum í Stykkishólmi þenja nikkumar við
flutning nokkurra gamalla og góðra
danslaga. Hér eru þau ásamt kennara sín-
um. Myndir MM.
Verið velkomin
Nýtt söluumboð HEKLU í Borgarnesi opnar miðvikudaginn 19. apríl kl. 9-18 að Sólbakka 2 við Þjóðveg 1.
Til sýnis verða glæsilegar bifeiðar frá Volkswagen, Mitsubishi, Audi, Skoda og Galloper.
Opið laugardaginn 22. apríl kl. 10-16. Verið velkomin!
HEKLA
- íforystu á nýrri öld!
HEKLA, Söluumboð í Borgarnesi • Sólbakka 2 • Sími 437 2100 • Fax 437 2101 Söluumboð
Gunnar Sigurðsson formaður stjómar UKVfærði við þetta tœkifari Sigríði Hrönn
Theodórsdóttur atvmnuráðgjafa hlómvönd frá fyrirtækinu en Sigriður hefur haft veg og
vanda að undirbúningi að stofiiun UKV.
Jón Gunnarsson við eitt verka sinna á sýningunni. MyndMM
Sýning í Reykholti
Jón Gunnarsson frá Hafnarfirði
opnaði málverkasýningu í Hótel
Reykholti um síðustu helgi. A sýn-
ingunni eru vatnslitamyndir sem
málaðar eru víðsvegar á landinu.
Myndirnar eru að mati undirritaðs
allar mjög eigulegar.
Jón stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskólann í Reykjavík árin
1947-1949 og hefur síðan farið
margar náms- og kynnisferðir er-
lendis. Jón er þekktastur fýrir mál-
verk sín frá sjávarsíðunni en hann
var sjómaður á sínum yngri árum.
Fyrstu málverkasýningu sína hélt
Jón árið 1961 og hefur síðan haldið
fjöldan allann af einkasýningum.
Sýning Jóns mun verða opin í sum-
ar.
MM
Vesturlandsmót
í tvímenningi
Vesturlandsmótið í tvímenningi
verður spilað í samkomuhúsinu í
Grundarfirði laugardaginn 6. maí
nk. og hefst spilamennska kl 10:00.
Skráningu þátttakenda skal lokið
fimmtudagskvöldið 4. maí. Hægt
er að skrá sig hjá Guðna Hall-
grímssyni í síma 438 6788, Páli Að-
alsteinssyni í síma 438 1408 og
Sveinbirni Eyjólfssyni í síma 437
0029 eða í tölvupósti
sveinbj orn. eyj olfsson@lan.stj r. is.
MM