Skessuhorn - 19.04.2000, Qupperneq 11
S2ESSiftÍv»íh‘i
MIÐVTKUDAGUR 19. APRIL 2000
11
Fjölmenni við opnun
Það ríkti sannkölluð eftirvænting
og spenna þegar boðsgestir, vinir
og vandamenn sem og fyrirmenni
streymdu inn í nýjan og glæsilegan
veitingasal Hótels Höfða í Olafsvík,
hlaðnir gjöfum til að samfagna
hjónunum, Eyglóu Egilsdóttur
hótelstjóra og Sigurði Elinbergs-
syni, byggingameistara. Tilefni
þessarar miklu gestakomu var vígsla
viðbyggingar við Hótel og Gisti-
heimilið Höfða sem heitir frá og
með deginum í dag Hótel Höfði.
Það var fyrir tæpu ári síðan sem
foreldrar Eyglóar, Guðlaug Sveins-
dóttir og Egill Guðmundsson, tóku
fyrstu skóflustunguna að viðbygg-
ingunni. Þau voru þó fjarverandi
vígsludaginn sjálfan, þar sem þau
höfðu brugðið sér utan. Síðan gerð-
ust hlutirnir hratt og um mánaða-
mótin nóv-des 1999 hófust fram-
kvæmdir við viðbygginguna. Nú,
fjórum og hálfum mánuði síðar er
risin glæsileg hótelbygging. Það var
Istak sem sá um bygginguna og
arkitekt var Magnús H. Olafsson.
Sem fyrr segir var margt góðra
manna til að samfagna og þar á
meðal var Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra. Sturla, sem sjálfur
er ættaður úr Olafsvík lét þess getið
í ræðu sinni að þegar hann var yngri
hefði hann borið margan strigapok-
ann fullan af sagi inn á gólfið í
kaupfélaginu svo Elinbergur gæti
skúrað gólfm, en kaupfélagið var þá
til staðar í gömlu hótelbyggingunni
sem í dag er orðin að glæsihóteli.
Sturla kvaðst hafa orðið glaður við
að sjá skjöld utan á nýju viðbygg-
ingunni sem heiðrar minningu El-
inbergs. I stuttu spjalli við blaða-
mann Skessuhorns, á milli heilla-
óska, sagðist Eygló ætíð hafa verið
ákveðin í því að gera þetta að fyrsta
flokks hóteli. Þann 1. febrúar 1993
tók hún við rekstri Gistiheimilisins
Höfða og þá var eingöngu lítill sal-
ur og 12 herbergi, sem urðu reynd-
ar 13 efrir að þvottaherbergi var
breytt í herbergi og þvottar þvegn-
ir á jarðhæð. Eygló sagði að slíkum
rekstri fylgdi geysimikil vinna fyrir
einn einstakling, en fjölskyldan
hefði staðið samhent í rekstri hót-
elsins. Ef telja ætti allar vinnu-
stundir sem færu í slíkan rekstur þá
nálguðust þær 500. Hvað varðar
viðbótina, þá kvaðst Eygló þegar
farin að finna meðbyr, þar sem hún
byði uppá meiri möguleika. Þegar
væri orðið upppantað í fermingar
og brúðkaupsveislur. Hvað varðaði
afþreyingu fyrir hinn almenna
ferðamann, þá væri aðalaðdráttarafl
Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra flutti ávarp við opnimina. Myndir: EE
Ólafsvíkinga hvalaskoð-
unin sem færi vaxandi
með hverju árinu. Með
tilkomu viðbyggingarinn-
ar væri verið að taka stórt
skref hvað varðaði úrslita-
kosti þess að bjóða upp á
betri gistingu. Vissulega
væri ennþá markaður fyr-
ir svefnpokagistingu, en
kröfurnar um betri gist-
ingu hefðu aukist hin síð-
ari ár. Þegar hefur orðið
aukning í gistinóttum,
sumar sem vetur og því
væri nauðsynlegt að
bregðast við þessarri
aukningu.
Eygló er ekki með öllu
ókunnug hótelrekstri, því
hún hefur unnið töluvert
við hótelstörf í Stykkis-
hólmi, á Akranesi og á
Húsavík. Hún kvaðst hafa
kynnst regluseminni þeg-
ar hún vann í apóteki í
mörg ár og bókhalds-
rekstrinum hafi hún
kynnst þegar hún vann á bókhalds-
stofu. Þessir þættir hafi hjálpað sér
mjög mikið við reksturinn, þar sem
hún sér sjálf um bókhald hótelsins.
Sem fyrr segir vinnur öll fjölskyld-
Eygló og
hótelinu.
Sigurður Jýrir framan skjöld utan á nýja
Skjóldurinn er tileinkaður Elintusi Jónssyni.
an við hótelið, þó að vísu með und-
antekningu þar sem eiginmaður
Eyglóar fæst við húsasmíðar, en
segist þó koma öðru hvoru í upp-
vaskið efrir vinnu. EE
Hótels Höfða
Eyrbyggjasaga í Grundarfirði
Það var þéttsetinn bekkurinn í
Grunnskólanum í Grundarfirði,
laugardaginn 15. apríl s.l. Þangað var
mættur að sunnan, Jón Böðvarsson,
cand ,mag í bókmenntafræðum, fyrr-
verandi kennari og rektor. Jón hefur
frá árínu 1996 haldið námskeið í Is-
lendingasögum á vegum Endur-
menntunarstofhunar Háskóla Is-
lands. Þegar Jón hóf fyrsm fyrirlestra
sína vom eingöngu 11 skráðir. Fyrir
skemmstu var Jón með fyrirlestur um
Egilssögu og þá vom skráðir þátttak-
endur 202. Um síðusm helgi var Jón
svo á ferð með hóp nemenda að
sunnan á söguslóðum Eíríks rauða í
Dölum. Farið var að Eíríksstöðum
og Rifi og siglt var út í Brokey og Ox-
ney. Þó ekld hafi verið svo margt um
manninn á fyrirlestri Jóns Böðvars-
sonar þetta sinnið, þá var áhuginn
mikill hjá þeim sem sám fyrirlestur-
inn. Þess má geta að fyrir tveimur
ámm var Jón á ferð um söguslóðir
Eyrbyggju með hópa að sunnan. Þá
fór Jón fyrir 4 rúmm og með nútíma
tækni gat hann notað sama hljóð-
nemann fyrir allar rútumar. Jón er
hingað kominn nú fyrir tilsmðlan
Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands
og Sunnu Njálsdóttur forstöðukonu
Bókasafnsins í Grundarfirði. I vemr
fór af stað leshringur um Eyrbyggja-
sögu með 8 manns innanborðs og
þótti tilvalið að fá Jón til að fjalla um
Eyrbyggjasögu. Sunna Njálsdóttir
var hópstjóri leshringsins. Jón hóf
mál sitt á því að tilkynna þátttakend-
um að hánn hygðist lesa um raun-
vemlegan þátt Eyrbyggja í sögunni
sjálffi. íslendingasögur em flokkaðar
eftír landshlutum og í Eyrbyggja-
sögu, Heiðavígu og Laxdælu bregður
fyrir sömu sögupersónunum. Síðasti
þátmr Laxdælu gerist á Snæfellsnesi.
Margar Islendingasögur em skáld-
sögur sem fjalla um einstaka einstak-
linga, en engin slík saga gerist á Snæ-
fellsnesi. Eyrbyggjasaga gerist á
norðanverðu Snæfellsnesi og á sér
stað eftír 1250. Rauði þráðurinn í Is-
lendingasögum fjallar um ástæður,
átök og sættír og minnst er á það fólk
sem eftir lifir í sögulok. Margt ffóð-
legt kom ffam og augljóst er að Jón
er hafsjór af ffóðleik um þetta efhi.
Vonir standa til að áffamhald geti
orðið á fyrirlestrum sem þessum,
enda áhuginn mikill.
EE
Nokkrir gesta jýrirlestrarins.
Gospel sönghópur Akraness
Á nýliðnum æskulýðsdegi Þjóð-
kirkjunnar, 5. mars s.l., kom ffam ný-
stofnaður Gospel sönghópur Akra-
ness. Fluttí hann, ásamt sóknarpresti,
poppmessu í Akraneskirkju. Á kvöld-
vöku æskulýðsdagsins í Vmaminni
kom þessi hópur einnig fram með
söng- og tónlistaratriði. Poppmessan
var svo endurflutt sunnudaginn 12.
mars og var húsfyllir í bæði skiptin.
Þess ber að geta sem vel er gert og
því eru þessi orð fest hér á blað. Það
er vægt til orða tekið þegar sagt er að
Gospel hópurinn hafi hrifið hug og
hjarta áheyrendanna sem voru á öll-
um aldri þótt flestir væru á æsku-
skeiði.
Hinir ungu flytjendur túlkuðu tón-
list sína af fágætri innlifun og sterkri
tílfinningu fyrir hinum heilaga sem
þau höfðu tekist á hendur að þjóna
og flytja. Slíkir strengir mega ekki
hljóðna. Þessi stórefhilegi sönghópur
verður að heyrast oftar og víðar.
Eg veit að ég mæli fyrir munn
margra sem hlýddu á söng og tónlist-
arflutning Gospel sönghóps Akra-
ness þegar ég óska þeim til hamingju
með glæsilega byrjun, þakka þeim af
alhug og læt í ljós þá einlægu ósk að
þau haldi áffam á þeirri braut sem
þau hafa markað sér, stefni hátt og
lofi Drottín í ljóði og söng.
Umsjón önnuðust þau Hannes
Baldursson og Heiðrún Hámundar-
dóttir kennarar við Tónlistarskóla
Akraness.
BjömJánsson
Frá vinstri: Olöf Vigdís Guðnadóttir, Heiðrún Hámundardóttir, Þórunn Kjartans-
dóttir, Bjamey Guðbjörnsdóttir, Svanhvít Pétursdóttir, Sigríður Heiða Hallsdóttir,
Jónína B Magnúsdóttir, Hanna Þóra Guðrandsdóttir.; Daði Már Hervarsson, Viðar
Guðmundsson.
Þær voru tnyndarlegar í íslenska þjóðbúningnum, stúlkunmr þtjdr sem fenndust í
Lundarkirkju á pálmasunnudag. Frá vinstri: Hrönn Jónsdóttir, Lundi, Jónína Sigurð-
ardóttir, Gullberastöðum ogjórunn Guðmundsdóttir Amþórsholti. A bak við þær er
sóknarpresturinn sr. Geir Waage. Mynd: GE