Skessuhorn - 28.04.2000, Page 3
^&usvnu^. i
FOSTUDAGUR 28. APRIL 2000
3
L„ - fr,0ut>4-r_ ~r'z I_J
/>> . i •
jostuaagmn
JiHranesi
Borgarnesi
29. aprilfrá 10:00 - 12:30
29. april frá 13:30 - 15:00
29. april frá 16:00 - 18:30
30. april frá 10:00 - 1000
StvkkisS^K
SAMVINNUHÁSKÓLINN
Á B I F R Ö S T
www.bifrost.is
Opið hús
laugardaginn 29. apríl
Háskólanám á Bifröst
Samvinnuháskólinn á Bifröst er alhliða viðskiptaháskóli. Við
leggjum áherslu á hagnýta menntun í rekstri og viðskiptum,
raunhæf verkefni og náin tengsl við innlent og erlent atvinnulíf.
Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórnunar eru kennd á
tveimur árum. Flestir nemendur Ijúka einnig þriðja árinu með
B.S. gráðu í rekstrarfræðum sem einnig er hægt að taka í fjarnámi.
Háskólinn leggur sérstaka áherslu á að nýta upplýsingatækni í
námi. Þráðlaust tölvukerfi stenst samanburð við það sem best
gerist í erlendum háskólum. Fartölvur allra nemenda og kennara
tengjast Netinu og innra neti skólans hvar sem er í byggingum
háskólans, nemendagörðum, kennarabústöðum og jafnvel
utanhúss.
í háskólaþorpinu á Bifröst búa á þriðja hundrað manns við nám
og störf í einstöku umhverfi. Bókasafn, vinnuherbergi og tölvukerfi
eru opin allan sólarhringinn. Yngstu íbúarnir ganga í leikskóla
við hlið háskólans en eldri börnin í einsetinn grunnskóla á
Varmalandi. í háskólaþorpinu er kaffihús og líkamsræktarstöð
með baðsvæði.
Við leggjum áherslu á nemenda- og kennaraskipti við erlenda
háskóla og náin tengsl við alþjóðlegt viðskiptaumhverfi. Nemendur
geta stundað hluta námsins við erlendan háskóla og á hverju
ári kemur hópur erlendra nemenda til að stunda nám á Bifröst.
Hluti náms á síðasta ári fer fram á ensku. Við störfum með
evrópskum háskólum innan SOCRATES-ERASMUS og tökum
þátt í NORDPLUS-samstarfi Norðurlandanna. Alþjóðavæðingin
á Bifröst mun halda áfram með frekari samningum við háskóla
í Evrópu og Ameríku.
Atvinnurekstur og viðskipti eru drifkraftar velferðarþjóðfélagsins.
Samvinnuháskólinn á Bifröst vill styrkja samfélagið í heild með
eflingu íslensks atvinnulífs. Betri menntun eykur hæfni þess og
arðsemi og færir þjóðarbúinu efnahagslegan ávinning.
A laugardaginn veröur opið hús á Bifröst frá kl. 13-17. Námsframboð og
upplýsingakerfi háskólans verða kynnt, leikskólinn opinn almenningi og
íbúðarhúsnæði í Nemendagörðum til sýnis. Væntanlegum umsækjendum
gefst kostur á viðtali við rektor eða aðstoðarrektor.
Allir eru velkomnir á opiö hús og eru
, Vestlendingar sérstaklega hvattir til aö láta sjá sig.
Utskriftarfélag nemenda sér um veitingar á Kaffi Bifröst.
Umsóknir
Við leitum að sköpunargleði, frumkvæði og samskiptahæfni hjá þeim
sem fá inngöngu í Samvinnuháskólann á Bifröst. Við viljum veita fólki
tækifæri til að beina sköpunargleðinni á svið viðskipta og rekstrar og
nýta athafnafrelsi sitt til að skapa sér framtíð að námi loknu.
Við inntöku nemenda er tekið mið af námsárangri, starfsreynslu,
meðmælum og viðtölum við umsækjendur. Háskólinn leitast við að veita
jöfn tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri, efnahag eða búsetu.
Afgreiðsla umsókna fyrir næsta skólaár er hafin. Allar nánari upplýsingar
um umsóknir og meðferð þeirra er að finna á www.bifrost.is.
SAMVINNUHÁSKÓLINN
Á B I F R Ö S T
www.bifrost.is