Skessuhorn - 28.04.2000, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
SKiSSUii©yM
Hestamiðstöð að Þórdísarstöðum
f Gísla síig'u Súrssonar er getið
Þórdísarstaða, þar sem Þórdís Súrs-
dóttir, systir Gísla bjó til foma.
Þórdís þessi var móðir Snorra goða,
sem var goði yfir Snæfellsnesi að
hluta. Ekki er ólíklegt að Snorri goði
hafi haff yfir góðum stofni af gæðin-
gakyni að ráða, miðað við val-
dastöðu hans. Þó sagan geti þess ekki
þá er enn á ný verið að skrá söguna,
því að Þórdísarstöðum er búið að
setja á stofh hestamiðstöð, undir
forsjá Illuga G. Pálssonar, reiðken-
nara. Dlugi er bróðir Ingi- bjargar
Pálsdóttur, hótelstýra á Hótel Fram-
nesi. Ingibjörg og maður hennar,
Eiður Öm Eiðsson, keyptu bújörði-
na á sínum tíma. Þar hafði verið
rekin ferðaþjónusta og þar á undan
kúabú. Þegar Illugi hafði lokið
reiðkennaranámi sínu frá Hólum í
Hjaltadal, kom upp sú hugmynd að
setja upp tamningamiðstöð að
Þórdísarstöðum í umsjá Hluga. Þar
yrði boðið upp á tamningar,
reiðkennslu og hestaferðir á sumrin.
Þann 11. mars síðastliðinn var
hestamiðstöðin opnuð með ísmóti,
en langt er síðan ísmót hefur verið
haldið í Grundarfirði. Keppt var í
Grímutölti, besta ganginum og
búningakeppni. Urslit urðu þau að
Jón Bjarni Þorvarðarson, bóndi,
vann töltið í gervi bónda.
Grímubúningakeppnina vann Lárus
Hannesson sem Bleiki Pardusinn.
Ur húsakynnum Hestamiðstöðvarinnar.
Myndir: EE
Illugi G. Pálsson forstöðumaður Hestamiðstöðvarinnar á gœðingnum Oddi.
Mótið var fjölsótt. Sem fyrr segir
verður boðið upp á hestaferðir og
er það í samstarfi við Hótel Framnes.
Þar sem um er að ræða ferðir lengri
en eirm dag verður boðið upp á
gistingu á Hótel Framnesi og
kokkurinn á hótelinu sér um að
útbúa nesti í ferðimar. Gert er ráð
fýrir hámark 10 manns í ferðimar og
mun fjöldi leiðsögumanna fara eftir
þátttöku. Lagt verður af stað ffá
Þórdísarstöðum og riðið í náttstað
sem er mismunandi hverju sinni. I
þessum ferðum er fólk keyrt til og frá
Þórdísarstöðum. Mjög margar
skemmtilegar reiðleiðir eru í allar
áttir eftir vegum og gömlum slóðum.
I einni reiðleiðinni er hægt að fara að
rústum Öndverðareyrar, sem er
gamall landnámsbær í Eyrarplássinu.
Sjálfur er Dlugi frá Naustum, sem er
framarlega í sveitinni og er hluti af
Eyrarplássi. Þegar leigður er út
hestur þá fer leiðsögumaður með. Þó
fer þetta allt eftir getu hvers og eins.
Eins og íyrr segir verður boðið upp á
reiðkennslu og verður hún starffækt
á tímabilinu október til apríl og er
nauðsynlegt að bóka fýrirffam, þar
sem reiðskólinn tekur 5-10 manns. I
reiðskólanum verður kennd tamning
og þjálfun, fóðrun hrossa, undirstaða
í jámingum og boðið verður upp á
fýrirlestra um bæði sár og umhirðu
hesta. Hugsunin á bakvið skólann er
sú að áhugahestamaðurinn geti nýtt
frítímann sinn í ffæðslu um
undirstöðuatriði hestamennskunnar.
Tamningamiðstöðin hefur þegar
komið sér upp heimasíðu og er
slóðin þessi: www.simnet.is/framnes.
Um þessar mundir er unnið að
kynningu á hestamiðstöðinni í
samvinnu við ferðaskrifstofur. Til
stendur að brydda upp á skemmti-
legum nýjungum sem verður ekki
uppljóstrað hér til að spilla síður fýrir
gleðinni. Þegar Illugi tók við
bújörðinni þurfti að lagfæra húsin og
innrétta allt eftir stöðlum ffá EES.
Stefht er að því að ljúka breytingum
og frágangi utanhúss í sumar.
EE
Sameinast um boltann
Knattspymu-
bandabg
HSH verður tfl
Knattspyrnufélögin Snæfell,
Víkingur, Reynir og UMFG hafa
ákveðið á tímum hagræðingar og
sameininga að sameina krafta súia og
liðsheild undir einum fána, þ.e
Knattspymubandalagi HSH.
Með þessari sameiningu næst
fram meiri breidd í félagsliðunum og
um leið er stefiit að þátttöku á
Islandsmóti KSI í sumar.
Gengið var ffá samstarfssamningi
félaganna þann 14. mars. Viðræður
hafa staðið yfir síðan í febrúar og var
þegar komið gott hljóð í strokkinn í
upphafi viðræðna.
Þessa dagana er verið að ganga frá
þjálfaramálum. Akveðið hefur verið
að byrja með 2 flokka, þ.e. 3 flokka
með ellefu manna liði og
meistaraflokki karla.
Forsvarsmenn félagsliðanna
viðurkenna að gengið hafi ekki verið
gott en með þessarri sameiningu er
það von manna að meiri breidd náist
fram með sterkari liðsmönnum og
um leið betri árangur.
Þess má geta að Pollamót KSI
verður haldið 15. - 16. júlí í
Grundarfirði. Er það í fýrsta sinn
sem slíkt mót er haldið í þar og jafh-
ffamt í fýrsta sinn með þáttöku 9 -
10 ára bama frá Grundarfirði.
EE
Nokkrir verðlaunahafamia
Páskamót Hesteigenda-
félags Grundarfjarðar
Frekar kalt var í veðri þegar hið árlega Páskamót Hesteig-
endafélags Grundarfjarðar var haldið á keppnissvæði félagsins á
skírdag. Til leiks voru mættir 16 keppendur og var keppt í eft-
irfarandi flokkum:
Barnaflokkur, unglingaflokkur, A og B flokkur, tölt barna og
tmglinga og tölt. Urslit urðu þessi:
Barnaflokkur: 1 sæti:
Unglingaflokkur: 1 sæti:
Tölt bama og unglinga: 1 s.:
Tölt: 1. sæti:
Skeið: 1 sæti:
A-flokkur: 1. sæti:
B-flokkur: 1. sæti:
Skeið: 1. sæti:
Vilborg H. Sæmundsdóttir á Bergdísi.
Hörður Oli Sæmundarson á Smyrli.
Eva Kristín Kristjánsdóttir á Pjakki.
Kolbrún Grétarsdóttir á Sóleyju.
Bjami Jónasson á Gáska.
Bjami Jónasson á Gáska.
Kolbrún Grétarsdóttir á Sóleyju.
Bjami Jónasson á Gáska.
Sjóvá-Almennar gáfu verðlaunin og matvöruverslunin Tangi
gaf páskaegg fýrir böm og unglinga.
Keppt var íýmsum flokkum og veitt verðlaun fyrir.
Mynd: EE