Skessuhorn - 28.04.2000, Blaðsíða 15
15
§2ESSIMÍSÖEM
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
Fyrsti heimasigurinn í fjóra mánuði
Halifaxhreppur 2 Skrúfubyrgi 1
Halifaxmenn eru fljótir að læra.
Fyrst gamall Faxi varð þeim að falli
á laugardag, hvað skyldi þá betur til
þess fallið en gamall Skrýfill til að
skjóta niður Skrúfubyrgi (Shrews-
bury Town)?
Forystunni náði Halifax andar-
taki fyrir hlé með sjálfsmarki
Skrýfla, en þá höfðu Faxar þjarmað
fast að þeim og ógurlega um eigi
allskamma hríð.
Orti þá Markús Liljuson (Mark
Lillis) Halifaxstjóri:
Oft sækja okkar hingað heim gestir
og hafa af oss stigin flestir
en Skrýflanna lestir
skoðast hér bestir
I sjálfsmörkum eru þeir mestir.
Við þetta magnaðist mjög hamur
Skrýfla enda eru þeir í skelfilegri
fallhættu. Arlega fellur eitt lið úr
þriðju deild niður í Ráðstefnuna
svokölluðu (The Conference). Þau
örlög eru verri en dauðinn.
Örlagaslagur á ögurstund
Þegar 90. mínúta rann upp þótti
sýnt að enn hefðu Faxar látið taka
sig.... stela af sér sigri á heimavelli
þegar Lárus Stálbrjótur (Lee
Steele) skaut bylmingsskoti í mark
Faxa.
En Stefán Vagnsson (Steve
Kerrigan), nýkeyptur frá Skrúfu-
byrgi, þekkti sitt heimafólk. Þannig
er að Skrýflum hættir til værukærð-
ar fyrstu mínútuna eftir að hafa
skorað, og nú var einmitt ekki
nema tæp mínúta til stefnu.
Kristinn Villidýr (Chris Wilder)
tók miðju og gaf á Stefán. Stefán
sendi fram á Kristinn. Kristinn
sendi samstundis háan bolta inn að
vítateig. Var þá Stefán kominn
þangað á ógurlegum spretti frá
miðju. Fleygði hann sér á knöttinn
sem small við það í marki Skrýfla.
Þetta hefði frændi minn, Gunnar á
Hlíðarenda, ekki gert betur. Reyn-
ist þetta síðasta snerting leiksins.
Skrýflum gafst ekki einusinni tími
til að byrja á miðju.
Kristni og Stefáni var vel fagnað
eftír leikinn. I brjáluðu partíi sem
stendur yfir heima hjá Stefáni þeg-
ar þetta er ritað, hélt Kristinn þar
magnaða glasaræðu og sagði m.a.:
Ferlega við sakna vorum famir fagns
Það var oss til gæfii gagns
að gripið hafa Stebba Vagns.
Stebbi mbm ergkestur eim og ggískur guS
þá er birtist Stebbi stuð
stigin reyndust lausbeisltið.
Hrindingar og stympingar kann
Stebbi að stífla
keyriryfir knetti Skrýfla
konur þeirra mun hannfífla.
Einnig fór Kristinn með nokkrar
blautlegar kviður undir afdráttar-
hætti, og verða þær ekki eftir hafð-
ar hér.
BMK/JF
Dugnaðardrengir
í leit að ævintýrum
Hjálparstarf hefur verið í mikilli
sókn undanfarin ár og hafa skaga-
menn ekki setið eftír í þeim efnurn.
Sveitarstarf hefur verið í miklum
vexti undanfarin ár, húsa og tækja-
kostur batnað og mannskapur aukist.
Þegar blaðamaður Skessuhoms leit
við í Jónsbúð um daginn sátu þar
nokkrir hressir strákar nýkomnir
heim úr Páskaferð, brúnir og lúnir
en þó kátir og að sjálfsögðu með
húmorinn í lagi. Það voru þeir
Hjörtur, Gunnar, Ami, Sigurður og
Snorri sem sátu fyrir svörum.
Árleg páskaferð
Nokkrir af félögunum lögðu upp
síðasdiðinn fimmtudag í hina árlegu
páskaferð sveitarinnar. I þetta skipti
var ferðinni heitið í Skaftafell og ná-
grenni. Þeir félagar lögðu af stað ffá
rótum Svínafellsjökuls og héldu sem
leið lá uppá suðurtind Hrútfellstinda
og niður aftur. Strákamir segja þetta
hafa verið eina erfiðustu ferð sem
þeir hafa farið, þvf á leiðinni þurftu
þeir að takast á við ýmis verkefni sem
oft gátu tekið rækilega á. Þeir komu
niður á laugardagsnótt eftír að hafa
gist tvær nætur í tjaldi upp við
tindana. A sunnudeginum léku þeir
sér í klettaklifri inná Flnappavöllum.
gerir menn hæfa sem
björgunarmenn. En það er
ekki eina ástæðan sem
strákamir gefa upp. Þeir
nefna frelsið sem þeir
ftnna úti í náttúrunni, og
það að kynnast sjálfum sér.
Allt verður svo miklu betra
og fallegra og svo er það
auðvitað viljinn til að gera
alltaf betur og betur sem
hvetur menn áffam.
Stórhuga menn
Ekki em það allir sem
láta staðar numið við
fjallamennskuna hér á
Fróni. Þeir Hjörtur og
Gunni ásamt þremur öðr-
um félögum sínum setja
stefimna á að klífa tvo rúmlega 6000
metra háa tinda í haust. Þessa tinda
æda þeir að finna í Nepal og í leið-
inni æda þeir að kynnast landi og
þjóð. Þetta er heljarinnar reisa sem
þeir félagar æda að leggja í og jafnast
á við marga stóra leiðangra sem
þrautþjálfaðir fjallamenn fara. Þessir
tilteknu tindar em í nánd við fjallið
ffæga Everest, og er fyrri hluti leið-
arinnar sá sami að báðum hólunum.
Gott mál
Þessir menn era fullir af áhuga og
metnaði enda skiljanlegt. Þetta starf
sem þeir era í er bæði hollt félagslega
og líkamlega fyrir hvem þann ein-
stalding sem vill komast út í náttúr-
una í góðra vina hópi. Að njóta nátt-
úrunnar á sem dramatískastan hátt,
læra um allt það sem hún og veðrið
hafa uppá að bjóða og svo auðvitað
að læra á sjálfan sig og getu sína.
BG
Hjörtur með þrennu
ÍA-Skallagrímur: 3-0
Nýliðastarf er öflugt
Öflugt nýliðastarf er lífið og æðin
í hverri sveit. Strákamir segja að vel
sé passað uppá það, því nýliðarnir
eru jú ffamtíðin. Þess er gætt að
nógu margar ferðir séu farnar fyrir
nýliðana til lærdóms og reynslu og
að kennslu á helst öllum sviðum sé
fullnægt. Þrátt fyrir að mikil orka og
tími fari í allt það sem tengist öðram
verkefnum innan sveitarinnar er
passað vel uppá að nýliðamir fái alla
þá þjálfun sem þeir þurfa til þess að
þeir nái prófi sem þeir þurfa að taka
í lok tveggja nýliðavetra.
Viljinn til að halda áfram
En hvað ædi það sé sem dregur
menn svona útí óvissu, kulda og á-
reynslu? Það sem manni dettur fyrst
í hug er að sjálfsögðu þjálfunin og
reynslan sem fæst í svona ferðum og
Skagamenn fengu Skallagrím í
heimsókn í síðasta leiknum í riðla-
keppni Deildarbikarsins miðviku-
daginn fyrir páska. Leikurinn var
ekki mikið fyrir augað og voru
Skagamenn betri aðilinn eins og
Næstkomandi sunnudag, 30.
apríl, ædar kynbótanefnd Dreyra
að halda stóðhestasýningu í Æðar-
odda. Þar verða sýndir ungfolar í
taumi og tamdir folar í reið. Einnig
er hægt að sjá þar sambandshesta
sem verða í notkun í sumar. Þessi
sýning hefur verið árlegur viðburð-
við var búist en sýndu þó ekki sér-
lega sannfærandi leik. Það var
Hjörtur Hjartarson sem skoraði öll
mörkin gegn sínum gömlu félögum
en hann gekk til liðs við Skaga-
menn eftir síðasta keppnistímabil.
ur hjá félaginu en henni er svo fýlgt
eftir með firmakeppni þann l.maí
sem haldin er í tilefni af afmælis-
degi félagsins. Þessar sýningar hafa
verið hin mesta skemmtum og gefa
fleira fólki en hestamönnum tilefni
til þess að kíkja upp í Æðarodda.
BG
Gæðingasýning
Heilsugæslustöðin býður ókeypis þjónustu
Iaugardaginn 29. apríl kl 13-16.
Læknar og hjúkrunarfræðingar meta
heilsufar og áhættuþætti og ráðleggja
bættan lífsstíl.
AUir velkomnir
jóðlir
svíkur
Menningarsjóðjr
Sparisjóðs Ólafsvíkur veitir
styrki til hverskonar menningar- og
framfaramála á starfssvæd
sparisjó&ins.
Styrkir eru veittir til
einstaklinga, félaga ech stofnana að
jafnad einu sinni á ári, fyrir
a&lfund Sparisjócfeins.
Skriflegum umsóknum um styrki úr
Menningarsjóðium fyrir árið2000
skal skilaotil sparisjócfestjóra
Sparisjóðfe Ólafsvíkur fyrir 8. maí nk.
I umsókn skal tilgreina þá ijárhæð
sem sótt er um svo og hvernig
rácfctöfun hennar er fyrirhuguð
SPARISJÓ0JR ÓLAFSVÍKUR
-bakhjarl í byggð
Ólafsbraut 19, 355 Snæfellsbær sími 436 1180