Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 10.08.2001, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 10.08.2001, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 ðitissunu^ WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040 Fax: 431 5041 Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is Blaðamenn: Sigrún Kristjánsd., Akranesi 862 1310 sigrun@skessuhorn.is Sigurður Már, Snæfellsn. 865 9589 smh@skessuhorn.is Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is Prófarkalestur: Umbrot: Prentun: Sigrún Kristjánsdóttír Guðrún Björk Friðriksdóttir ísafoldarprentsmiðja hf augl@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaöiö er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverö er 850 krónur meö vsk. á mánuöi en krónur 750 sé greitt meö greiöslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr. 431 5040 Beðist afsökunar Gísli Einarsson, ritstjóri. Undirritaður biður alla lesendur sína nær og fjær afsökunar á ósannindum sem hann varð uppvís að í blaðinu í síðustu viku. Þar lýsir undirritaður því yfir að hann hyggist dvelja innan dyra á eigin heimili alla helgina. Þessi fyrirheit voru ítrekað þverbrotin og þegar upp var staðið stóð ekki steinn yfir steini í yfirlýsingum undirritaðs. Nú kunna máske einhverjir að halda að undirritaður hafi ekki verið sjálffáður gerða sinna og kann hann þeim bestu þakkir fyrir þá hugsun. Því miður hefur undirritaður, í þessu tilfelli, ekki einu sinni það sér til málsbóta að honum hafi verið meinaður aðgangur að sínu eigin heimili vegna eigin leiðinda. Sá möguleiki var vissulega ekki óhugsandi en ekki ástæðan í þessu tilfelli að minnsta kosti. Undirritaður stóðst einfaldlega ekki álagið, þrýstinginn og pressuna og fór ásamt öðrum unglingum á Kaldármela. Þrátt fyrir að undirritaður hafi þar gengið þvert á sínar eigin yfirlýsingar þá var það þó ekki það versta. Eftir að Eldborgarhátíðinni lauk sendu forsvarsmenn hennar ffá sér yfirlýsingu þar sem þeir sögðu fréttaflutning af hátíðinni hafa verið óvæginn þar sem þarna hefði í raun verið allt í góðum gír. Þar sem undirritaður ber að hluta til ábyrgð á umræddum fréttaflutningi er ekki um annað að ræða en að biðjast afsök- unar enn og aftur. I barnaskap sínum og fullkomnu dóm- greindarleysi leit undirritaður þannig á að nauðganir, ofbeldi og meðferð fíkniefna væri eitthvað fréttnæmt. Þar hefur undirrituðum því miður skjöplast illilega og þarf að setja sitt fféttamat í gagngera endurskoðun. I fávisku sinni hélt undirritaður að þetta ætti ekki að vera svona. Vissulega er misjafn sauður í mörgu fé og vitað að vilji menn búa til vandræði og valda skaða þá tekst það yfirleitt. Það er hins- vegar ekki þar með sagt að það sé bara eðlilegt ástand. Það sem stendur eftir þessa hátíð á Kaldármelum er að þar voru framin alvarleg afbrot og ffam hjá því verður ekki horff, þótt þorri gesta hafi hegðað sér eðlilega. Gæsla á hátíðinni, hvort sem var af hálfu lögreglu, björgunarsveitarmanna eða annara aðila, var öflug og þar voru á ferðinni ábyrgir aðilar sem gerðu örugglega allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir misyndisverk. Það tókst ekki fullkomlega og ekki við neinn að sakast nema misyndismennina sjálfa. Þar með er ekki sagt að allt sé í góðum gír. Ef svo er, hinsvegar, þá er ekki um annað að ræða fyrir undirritaðan en að reyna að skammast sín. Gísli Einarsson, undimtaður Ps. Fyrst ofanritaður er á annan borð fallinn í þá gryfju að viðurkenna mistök sín þá er honum ljúft og skylt að taka affur þau orð sem hann lét falla í garð skókaupmanna á Akureyri fyrir skemmstu. Lesandi blaðsins á Akureyri gekk fram fyrir skjöldu og sendi ofanrituðum forláta strigaskó í stærðinni 47, sem sannanlega eru keyptir á Akureyri. Ofanritaður vill færa þesum ágæta lesanda bestu þakkir og biður kaupmenn á Akureyri afsökunar á ómaklegum aðdróttunum um að þeir mismuni fólki eftir fótstærð. Metumferð um Hvalfj arðargöngin Rúmlega níu þúsund bílar í gegn á fóstudag Starfsmenn í gjaldskýli Hval- fjarðarganganna höfðu í nógu að snúast um verslunarmannahelgina, því þar fóru fleiri bílar í gegn en nokkru sinni áður. Á föstudag fóru flestir bílar í gegn, eða 9.085. Gamla metið var um 8.100 bflar en það var sett síðasta föstudaginn í júní síðastliðnum. Á laugardag voru bílarnir 5.032 og á sunnudag 5.940. Á mánudag var töluverð umferð því þá fóru 7.784 bflar í gegn. Samkvæmt upp- lýsingum frá Speli > er þetta einnig methelgi og metverslunarmanna- helgi því árið 1999 fóru 24.200 bíl- ar í gegnum göngin og á síðasta ári voru þeir 22.700. Heildarfjöldi bfla nú um helgina var 27.841 og var því gamla metið bætt um rúmlega Annasöm helgi hjá lögreglu Lögreglan í Borgarnesi hafði töluverðan viðbúnað um verslunar- mannahelgina að þessu sinni. Vakt var staðin allan sólarhringinn og voru 12 lögreglumenn að störfum og haldið úti 3 lögreglubílum. Þá var lögreglan á Akranesi með lög- gæslu sunnan Skarðsheiðar og suð- ur á Kjalarnes. Einnig voru bflar frá Ríkislögreglustjóra á svæðinu til aðstoðar. Segja má að aldrei hafi verið jafh mikil löggæsla á Vestur- landi um verslunarmannahelgi og að þessu sinni. Eru lögreglumenn á því að þetta hafi skilað sér í færri umferðaróhöppum og slysum og minni ölvunarakstri en oftast áður. Segja má að Eldborgarhátíðin hafi brunnið nokkuð á lögreglunni í Borgarnesi þó svo að hún hafi ekki komið með beinum hætti að löggæslu á mótssvæðinu á Kaldár- melum enda eru melarnir utan lögsagnarumdæmis hennar. Leiðin vestur á hátíðina lá í gegnum Borg- arnes og töluvert var um að gestir hátíðarinnara kæmu til Borgarness í ýmsum erindagjörðum og þurfti þá að hafa afskipti af sumum þeirra. Samvinna við lögregluna á Snæ- fellsnesi var mikil um helgina og voru fangageymslur hjá lögregl- unni í Borgarnesi t.d. nýttar í þágu Eldborgarhátíðarinnar og var nýt- ingin of góð að sumra mati. 50 of hratt Rúmlega 50 voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögregl- unnar í Borgamesi um verslunar- mannahelgina. Alls urðu 8 um- ferðaróhöpp um helgina en öll án teljandi meiðsla og engin óhöpp urðu á sunnudeginum eða á mánu- deginum sem er ánægjuleg til- breyting frá fyrri verslunarmanna- helgum. Þá verða 8 ökumenn kærðir fyrir ölvun við akstur. Auk þeirra hafði lögreglan afskipti af mörgum ökumönnum sem höfðu verið að drekka áfengi og vom sumir þeirra teknir undan stýri þó ekki þætti tilefni til að kæra þá. Ólæti í Húsafelli Aðfaranótt sunnudagsins urðu nokkur ólæti á tjaldsvæðinu í Húsa- felli sem enduðu með því að einn piltur var fluttur nefbrotinn á sjúkrahúsið á Akranesi. Vitað er hver veitti honum áverkana en ekki hefur verið lögð fram kæra enn sem komið er. Kvartaði fjölskyldufólk sem var á tjaldsvæðinu undan há- vaða og ónæði og varð sumum ekki svefnsamt í Húsafelli þessa nótt. GE Aðgerðir Goða brot á samkeppnislögum Dalabyggð hefur falið Andra Árnasyni hæstaréttarlögmanni að skoða hvort stjórnendur Goða hafi hugsanlega brotið samkeppnislög með því að loka sláturhúsum og setja bændum afarkosti með tilboði um greiðslur fyrir sláturfénað. Andri hefur átt fund með starfs- mönnum Samkeppnisstofnunar og líklegt er að stofnunin fái formlegt erindi frá Dalamönnum á næstu dögum. Málið snýst meðal annars um það Golfdagur Golfdagur Æskulínunnar verður haldinn í Borgarnesi sunnudaginn 12. ágúst. Leiknar verða 8 þrautir og fá allir þátt- takendur óvæntan glaðning. All- ir Æskulínufélagar á aldrinum 3 -11 ára geta tekið þátt. Keppt verður í tveimur hollum. Þátt- takendur geta valið um að mæta kl. 9.00 eða kl. 13.00. Leiðbeinendur verða á staðn- um. Skráning fer fram í golfskál- anum á keppnisdag. (Fréttatilkynning) hvort Goði ráði yfir sláturmarkaðin- um á ákveðnum svæðum og bændur geti ekki leitað annað. Fyrirtækið hefur boðið sauðfjárbændum um átta prósenmm lægra verð fyrir slát- urfénað heldur en í fyrra og að þeir fái ekki greitt fyrr en á næsta ári. Á sama tíma hefur fyrirtækið neitað að leigja einstökum sveitarfélögum eða bændum sláturhús, til dæmis í Dala- byggð. Fyrirtæki í ráðandi markaðs- stöðu mega ekki misnota hana sam- kvæmt samkeppnislögum. Helgi Þorgils sýn- ir í Borgamesi Laugardaginn 11. ágúst kl. 17 verður opnuð myndlistarsýning Helga Þorgils í Listasafhi Borg- arness sem ber yfirskriftina Landslag. Þar sýnir listamaður- inn í fyrsta skipti á sínum ferli landslagsmyndir einvörðungu og er myndefnið einkum sótt til náttúrufegurðar Borgarfjarðar og Dala. Elsta myndin á sýning- unni er af Baulu í Borgarfirði frá árinu 1988 en nýjustu verkin eru frá þessu ári. (Fréttatilkynning) Tónlist frá Hörðafylld i Noregi íRevk- W J holtskirkju Eöstudaginn 10. ágúst n.L kl. 21.00 heldur hópur tónlistar- tnanna frá Hörðaíandi í Noregi tónieika í Reykholtskirkju. Þjóð- laga- og kvæðasöngkonan Reid- un Horvei syngur, FrankHenrik Rolland leikur á Harðangurs- fiðlu og Sigbjörn Apeland á org- el. Þau hafa öll starfað lengi að því verkefní að halda við þjóð- Iagahefð Hörðalands með því að iðka hana og kynna innan Iands sem utan. Markmiðið er að vekja áhuga á þjóðlagatónlist og gera hana að- gengilega sem flestum. Hópur- inn hefur haldið fjölda tónleika ffá árinu 1991 m.a. á íslandi. Hann mun að þessu sínni einnig halda tónleika á Hólahátíð. Á tónleikunum í Reykholti verður flutt dagskrá sem lista- mennirnir kalla „Naring“. Einnig verða fslensk lög og kvæði á dagskránni. (Fréttatilkynni)ig) Tónleikar í Borgames- ldrlqu Söngtónleikar verða í Borgar- neskirkju þann 12. ágúst kl. 16.00. Fram koma sópran-söng- konan Guðrún Ingimarsdóttir frá Hvannevri og Heike Matthiesen gítarleikari frá Þýska- landi. Á efnisskránni eru m.a. sönglög eftir John Dowland, Joaquin Rodrigo, Fredrico Garcia Lorca, Jaime Ovalle, Paurillo Barroso, Heitor \filla- Lobos. Guðrún Ingimarsdóttir stund- aði nám í Söngskólanum í Reykjavík, í Lundúnum og í Tón- hstarháskólanum í Stuttgart und- ir leiðsögn próf. Sylvíu Geszty og lauk þaðan námi 1998. Guðrún hefur tekið þátt í fjölda óperu- uppfærslna og tónleika í Bret- landi, Þýskalandi Ítalíu og íslandi. Nú í haust tekur hún þátt í uppfærslu Islensku óperunnar á Töfraflautu Mozarts í hlutverki Næturdrottingarinna r. Heike Matthiesen er frá Frank- furt í Þýskalandi og stundaði nám við tónlistarskólann þar f borg. Að námi loknu varð hún nemandi hins heimsfræga gítarleikara Pepe Romero og kom fram á tónleik- rnn með gítarkvartettinum „Los Romeros". Heike Matthiesen hefur komið fram á tónleikum víða um heim og starfar hún einnig sem einleikari í óperuhús- um í Dramastadt og Frankfurt. Árið 1998 kom út fyrsti geisla- diskurinn hennar. Nýlega kom á markaðinn diskur með leik henn- ar á verkum eftir Roland Devers. (Fréttatilkynning)

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.