Skessuhorn

Issue

Skessuhorn - 10.08.2001, Page 5

Skessuhorn - 10.08.2001, Page 5
ggESSIíHÖBKI FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 5 Sumarsins 2001 verður löngum minnst fyrir það að ógurlegt hneyksli skók þjóðfélagið. Eg mun seint gleyma því hvað mér brá þegar konan mín færði mér frétt- irnar: "Ungfrú Island er kasólétt. Hún var kornin tvo mánuði á leið þegar hún var kjörin". Hræðilegt, hugsaði ég. Nú verður hún örugg- lega að segja af sér og afsala sér titlinum með skömm. En svo runnu á mig tvær grím- ur. "Er hún ennþá ólétt?" Konan staðfesti það. "Það þykir mér und- arlegt. Það er komið ár síðan hún Ella okkar var kjörin og ef hún hefur verið komin tvo mánuði á leið þá, nú þá er hún gengin með á fimmtánda mánuð núna! Það getur verið að fílar gangi með svo lengi en það get ég sagt þér að hún Ella okkar er sko enginn fíll!" Konan lét ekki slá sig út af lag- inu og svaraði mér stuttlega að Ella væri ekki lengur ungfrú ís- land. "Nú ég veit það þú varst að segja mér áðan að hún væri ólétt og þyrfti að segja af sér". Þá skýrði hún út fyrir mér, hægt og ákveðið, en með mikilli þolinmæði, að það hefði verið kjörin ný ungfrú ísland um daginn og að þetta mál hefði ekkert með Ellu að gera. "Hvaða svívirða er þetta? Tap- aði Ella titlinum? Hvaða rök höfðu mennirnir til þess að endur- kjósa hana ekki? Hún er sko ekk- ert minna falleg núna en í fyrra nema síður væri!" Konan skýrði út fyrir mér að endurkjör tíðkist ekki í ungfrúarbransanum. Ég var ekki tilbúinn að kyngja því. "Hefur ekki Mansteftir júnætid haldið sínum titli lengur en elstu menn kæra sig um að muna? Og úr því jafnvel hallærislið eins og KR get- ur varið sinn titil, gjörsamlega að óverðskulduðu, þá sé ég ekkert að því að Ella haldi sínum titli enda miklu betur að því komin". Eftir ítarlegar útskýringar áttaði ég mig þó á því að endurkjörs- bannið þýðir ekki að fegurðar- drottningin sé rúin nafnbót sinni. Þvert á móti sé hún Ungfrú ísland um aldur og ævi með ártal keppn- innar fyrir aftan. Ég var þó á því að þessi nýja gæti tæplega komist í hálfkvisti við Ellu, stúlkan er ekki einu sinni af Vesturlandi. Konan sótti þá blaðið og sýndi mér mynd af þessari nýju. "Þetta er nú bara ljómandi falleg stúlka" varð ég að viður- kenna. Enda kom á daginn að hún var ekki aðeins kjörin Ungfrú ís- land, heldur líka Ungfrú Reykja- vík og nágrenni, Ungfrú ljós- myndafyrirsæta, Ungfrú heima- sæta, vinsælasta stúlkan og best greidda stúlkan. Auk þess nældu einstakir partar hennar í allar þær vörumerkjatengdu nafnbætur sem í boði eru, s.s. Oroblu stúlkan, Colgate krúttið, Sloggi sprundið, Tampax tátan og margt fleira. En nú er þetta allt farið á versta veg. Stúlkan hefur orðið uppvís að skelfilega ósiðlegu athæfi. Þau okkar sem innvígð eru í leyndar- dóminn um það hvernig börnin verða til vita nú hvað Ungfrú ís- land hefur aðhafst í sínum örfáu, en þó nokkuð góðu frístundum. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort það væri virkilega skilyrði fyrir þátttöku í keppninni að stúlkurnar séu hreinar meyjar. Líklega hefur það þótt við hæfi í árdaga þessara íslandsmóta yndis- þokkans. Þá þóttu bólfarir fyrir hjónaband hin argasta svívirða og skömm. Aum var sú ungfrú sem ekki var jómfrú. Þess vegna verður að rannsaka þetta hneyksli til hlítar. Setja Rík- isendurskoðun í málið og kanna ýmislegt sem ekki hefur verið upplýst. Var faðir barnsins kannski í dómnefndinni? Eða vinnur hann hjá Byko eða ístaki? Voru Hófí og Linda með óhreint mél í meydómnum? Til að fyrirbyggja frekara hneyksli í framtíðinni er nauðsyn- legt að láta alla væntanlega kepp- endur gangast undir meydóms- próf. í löndum íslams hefur verið byggð upp mikil og haldgóð þekk- ing á þessu sviði. Forsvarsmönn- um keppninnar væri í lófa lagið að semja við Halim Al, eða einhvern annan íslandsvin, um faglega ráð- gjöf á því sviði. Þær sem ekki stæðust prófið yrðu þá að reyna fyrir sér á öðrum vettvangi þar sem linari mælistika er lögð á kvenlegan þokka, svo sem í Ung- frú ísland punktur is eða Ungfrú Gateway. Þess má geta að frést hefur að sú síðarnefnda sé þessa dagana kýr ekki ein. I þessu öllu verður þó að gaum- gæfa að nú á dögum hefur viðhorf fólks til hvílubragða breyst býsna mikið. Nú þykir sérhver einstak- lingur óhæfur til sambúðar, hvað þá giftingar, nema hann eða hún hafi víðtæka reynslu í búfjárlifnaði allt frá unga aldri. Það er því bagalegt að aldurs- takmark í Fegurðarsamkeppni ís- lands skuli vera 18 ár. Eins og tíð- arandinn er á íslandi í dag gæti reynst harla erfitt að finna óspjall- aðar meyjar á þeim aldri. Helst væri að bera niður meðal félaga í sértrúarsöfnuðum, en þeim er vís- ast óheimilt að dilla bossum sínum framan í slefandi dómnefndir. Þá eru bara eftir meyjar þær sem sak- ir ófríðleika hafa enn ekki náð að hrista af sér meydóminn. Vissu- lega mætti manna keppnina þeim fljóðum, en hætt er við að þá myndu menn segja sem svo að nú væri Snorrabúð stekkur. Og lítt væri þá gaman að gæla við hugs- anir um lyngið á Lögbergi helga. ...... ................... . . . -4 H i'# $1 '4 H' IÉ W v a m # # # í J sing Um deiliskipulag í Snœfellsbœ Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga m. 73/1997 er hér meo lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Hótels Búða. Tillagan gerir ráð fyrir hóteli og bátaskýli auk geymslu sem fyrir er á lóðimii. Einnig er lýst eftir athugasemdum við breytta skilmála á stærðum frístundahúsa við Jaðar, Móa og Lækjarbakka Arnarstapa í allt að 85 m2. Tillagan ásamt byggingar- og skipulags- skilmálum liggur frammi á skriistofu Snæfellsbæjar, Röst, HeUissandi frá 10. ágúst til 7. september 2001 á venjulegum skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila fyiir 21. september 2001 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. a’sláttur Kyrnutorgi - íöorgarnesi - s. 437 1240

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.