Skessuhorn - 28.12.2001, Blaðsíða 2
2
FOSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Simi: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
Skrifstofur blaðsins eru OPNAR KL. 9- 16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og óbm: Gisli Einorsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Bloðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310 sigrun@skessuhorn.is
Sigurður Mór, Snæfellsn. 865 9589 smh@skessuhorn.is
Auglýsingor: Hjörtur J. Hjortorson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Prófarkalestur: Ásthildur Magnúsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir ougl@skessuhorn.is
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum.
Auglýsendum er bent ó að panta auglýsingaplúss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til óskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. ú múnuði en krúnur 750 sé greitt með greiðslukorti. Vetð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
...í aldanna
skaut
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Þegar þetta er ritað er árið 2001 senn að rentna sitt skeið samkvæmt
þeim heimildum sem ég hef undir höndum. Það þurfa svosem ekki að
teljast tíðindi því reyndar er það svo að á, að vísu ekki svo mjög langri
ævi, man ég ekki eftir nokkru ári sem ekki hefur lokið með einum eða
öðrum hætti. Því þarf það varla að koma á óvart þó þannig fari fyrir
þessu fyrsta ári nýrrar aldar.
Það er góð og gild venja um áramót að líta um öxl og renna sjónum
yfir farinn veg og rifja upp á andartaki eða svo það helsta sem á daga
hefur drifið síðasdiðna tólf mánuði. Ekki svo að skilja að það breyti
neinu þar sem því sem að baki er verður naumast breytt úr þessu en
það er nú einu sinni svo að maðurinn hefur yfirleitt meiri áhuga á for-
tíðinni en framtíðinni.
Segja má að árið sem senn er liðið í aldanna skaut hafi verið nokkuð
viðburðarríkt hér á Vesturlandi eins og árin á undan reyndar einnig.
Það er hinsvegar oft svo að þeir hlutir sem fyrst koma í hugann eru oft-
ar þeir neikvæðu. Fyrst ber þá að telja hið hörmulega sjóslys við Snæ-
fellsnes í byrjun desember þegar Svanborg SH strandaði við Ondverð-
ames. Þar var þó Ijós í myrkri sem var giftusamleg björgun eins skip-
verjanna. Jafhffamt því sem ég gleðst eins og aðrir Vestlendingar yfir
því afreksverki sendi ég aðstandendum hinna þriggja áhafnarmeðlim-
anna mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Fleiri slys á sjó og landi settu svip sinn á árið sem er að líða en oft
fór þó betur en á horfðist. Mörgum þótti mikill sjónarsviptir að því
þegar hið sögufræga hótel að Búðum varð eldi að bráð snemma árs
þótt þar hafi einungis verið um eignatjón að ræða sem betur fer. Fróð-
legt verður hinsvegar að fylgjast með uppbyggingunni á þeim stað sem
virðist mörgum ferðamanninum svo hugleikinn. Þar kemur þá að á-
nægjulegri minningum ársins en meðal þess má telja þá miklu upp-
byggingu sem á sér stað í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Þar vegur með-
al annars þungt stofnun þjóðgarðs á Snæfellsnesi sem loks varð að
veruleika síðastliðið sumar. Ekkert lát virðist vera á grósku í þessari
ungu atvinnugrein í kjördæminu og sífellt bætast við nýir aðilar og
fleirí og fleiri ný tækifæri eru nýtt.
Ný samgöngumannvirki eru okkur sveitamönnum ávallt hugleikin
enda er það svo að við Vestlendingar höfum þurft að hossast á hálf-
gerðum moldartroðningum ffam undir þetta. A síðustu árum hafa ver-
ið unnin mörg stórvirki á sviði samgöngumála í kjördæminu og í ár
bættist m.a. við nýr vegur yfir Snæfellsnesfjallgarðinn, Vatnaleið, lok-
ið var við stórfelldar vegabætur í Borgarfirði og ffamkvæmdir hófust
við lokaáfangann á Bröttubrekku. Betur má vissulega ef duga skal en
full ástæða til að gleðjast yfir því sem þegar hefur verið gert.
Ymislegt fleira mætti upp telja sem heldur hefur verið til að bæta
geðið á þessu ári. Meðal annars margvísleg íþróttaaffek, bæði einstak-
linga og hópa en hæst hlýtur þar að bera Islandsmeistaratitill Skaga-
manna í knattspymu sem má túlka sem sigur íþróttaandans á auð-
hyggjunni. Af íþróttum utan héraðs ber að sjálfsögðu hæst fádæma
góður árangur hins ástsæla sparkliðs Halifaxhrepps sem með harðfýlgi
hefur tekist að halda sér á botni langneðstu deildar í sinni sveit.
I heildina hygg ég því að telja megi þetta ár nokkuð farsælt okkur
Vestiendingu. Atvinnuástand hefur verið þokkalegt þrátt fyrir kreppu-
væl, hey voru góð, gæffir þokkalegar og veðurfar skárra en í meðalári.
Vona ég að næsta ár verði ykkur öllum til gagns og gamans.
Skessuhom þakkar lesendum sínum samfylgdina á árinu sem, eins
og marg off hefur komið ffam, er að líða og lítur björtum augum til
þess næsta.
Gísli Einarsson á áramótum.
Umtalsverð fjölgrin íbúa á Vesturlandi
Fjölgar í flestum
sveitarfélögum
Hagstofan hefur birt bráða-
birgðatölur yfir mannfjölda á land-
inu 1. desember 2001. Eins og fram
kemur á forsíðu blaðsins í dag er
fjölgun íbúa í þéttbýlisstöðum á
Vesturlandi langmest á Akranesi og
í Olafsvík en á síðarnefnda staðn-
um er hún hlutfallslega mest á
landsvísu. Ef litdð er til einstakra
sveitarfélaga á Vesturlandi kemur í
ljós að aðeins fækkar fólki í fjóram
sveitarfélögum af sautján, þ.e. í
Hvalfjarðarstrandarhreppi, Eyja-
og Miklaholtshreppi, Dalabyggð
og Saurbæjarhreppi. Hlutafallslega
er fækkunin mest í tveim þeim síð-
amefndu eða 5,3%. I Hvítársíðu-
Á 15. sveitarstjórnarfundi Eyrar-
sveitar þann 17. desember sl. vora
samþykktar breytingar á nöfnum
stofnanna sveitarfélagsins í kjölfar
breytinga á sveitarfélaginu sjálfu úr
Eyrarsveit í Grandarfjarðarbær. Var
samþykkt að Grundarfjörður leysi
Um klukkan þrjú, aðfararnótt
annars dags jóla, varð bílvelta á ut-
anverðu Snæfellsnesi, skammt frá
Rifi. Vora tveir menn í bílnum sem
valt en nokkur hálka var á veginum
þegar óhappið varð. Var farið með
þá báða á sjúkrahús, annan á Akra-
hreppi stendur fólksfjöldi í stað en í
öllum öðram sveitarfélögum fjölg-
ar eitthvað. Mesta Ijölgunin er á
Akranesi en þar bætast við 90 íbúar
en hlutfallslega er fjölgunin mest í
Skorradalshreppi. Þar fjölgar úr 47
í 57 eða um 21 prósent. Þá kemur
Snæfellsbær vel út en þar fjölgar
um 59 íbúa eða 3,4%.
Hér að neðan má sjá mannfjölda
í einstökum sveitarfélögum á Vest-
urlandi samkvæmt bráðabirgðatöl-
um Hagstofúnnar. Til samanburð-
ar eru síðan endanlegar mann-
fjöldatölur á sömu stöðum frá árinu
2000 og breytingar milli ára.
Eyrarsveit af hólmi í nöfhunum og
því munu fljódega á næsta ári nöfn
stofnanna sveitarfélagsins verða eft-
irfarandi: Bæjarskrifstofa Grundar-
fjarðar, Grunnskóli Grandarfjarðar,
Bókasafn Grandarfjarðar og svo
ffamvegis. smh
nes en hinn, sem var heldur meira
slasaður, var fluttur til Reykjavíkur
og þurfti þar að gangast undir að-
gerð vegna beinbrota. Mennirnir
köstuðust út úr bílnum og fundust
nokkra metra frá honum.
smh
Rjúpnaskytta
fannst látin
Síðastliðinn laugardag leituðu
björgunarsveitir úr Borgamesi,
Borgarfirði, Akranesi og af höf-
uðborgarsvæðinu manns um þrí-
tugt sem gengið hafði til rjúpna
frá Grímsstöðum á Mýrum
snemma dags. Maðurinn var á
ferð ásamt þremur öðram og
þegar hann hafði ekki skilað sér
til byggða á tilsettum tlma höfðu
félagar hans samband við lög-
reglu. Björgunarsveitarmenn
vora strax kallaðir á vettvang og
um ellefuleytið á laugardags-
kvöld fann sporhundur manninn
látinn í austanverðum Grím-
staðamúla. Um tvo tíma tók að
flytja hann að björgunarbíl en
skyggni var slæmt vegna þoku.
GE
Afsökunarbeiðni
Þau hörmulegu mistök urðu
við vinnslu síðasta tölublaðs
Skessuhoms að rangt var farið
með nafn þess áhafharmeðlims
Svanborgar SH sem fannst látinn
eftir að Svanborg SH fórst undan
Svörtuloftum á Snæfellsnesi,
föstudaginn 7. nóvember sl.
Kom fram í fréttinni, að útför
Eyþórs Garðarssonar ætti að fara
fram á tilteknum degi, en hann
komst sem kunnugt er giftusam-
lega lífs af úr hildarleiknum.
Nafh hins látna var Sæbjöm
Vignir Ásgeirsson og fór útför
hans fram síðastliðinn laugardag.
Skessuhom harmar þess Ieiðu
mistök og biður alla hlutaðeig-
andi velvirðingar. Ritstj.
Syngur í
Hólminum
heima
Mánudaginn 7. janúar næst-
komandi mun Hólmarinn og
bassasöngvarinn Davíð Olafsson
hverfá til æskustöðva sinna og
syngja á tónleikum í Stykkis-
hólmskirkju.
Davíð er óperasöngvari við
Operana í Lúbeck í Þýskalandi
og mun syngja í Stykkishólms-
kirkju ásamt starfsbróður sínum
þaðan, tenórnum Tomislav
Muzek. I þessari Islandsheim-
sókn sinni munu þeir eingöngu
syngja í Stykkishólmskirkju og í
Islensku Operunni, en á efhis-
skránni era aríur og dúettar úr
ýmsum áttum, m.a. eftir Strauss,
Mozart, Puccini og Verdi. Að
auki verður á efnisskránni söng-
leikjatónlist og ítölsk ástarljóð.
Undirleikari á tónleikunum
verður systir Davíðs, Ester
Olafsdóttir, en tónleikamir hefj-
ast klukkan 20:30. smh
GE
2001 2000 Fjölgun Hlutfall
Vesturland 14,449 14,266 183 1,2%
Hvalfjarðarstrandarhreppur 157 161 -4 -2,4%
Skilmannahreppur 146 142 4 2,8%
Innri-Akraneshreppur 125 127 -2 1,5%
Akranes 5,517 5,431 90 1,6%
Leirár- og Melahreppur 127 124 3 2,4%
Borgarfjarðarsveit 689 688 1 0,1%
Skorradalshreppur 57 47 10 21,2%
Hvítársíðuhreppur 83 83 0 0%
Borgarbyggð 2,523 2,468 55 2,2%
Kolbeinsstaðahreppur 112 109 3 2,7%
Eyja- og Miklaholtshreppur 114 119 -5 -4,2%
Snæfellsbær 1,799 1,740 59 3,4%
Eyrarsveit 959 952 7 0,7%
Helgafellssveit 58 56 2 3,5%
Stykkishólmur 1,235 1,229 6 0,5%
Dalabyggð 658 695 -37 -5,3%
Saurbæjarhreppur 90 95 -5 -5,3%
Hlutfallslega erfjölgunin mest í Skorradalshreppi eða 21%
Nafnabreytingar
í Eyrarsveit
Bílvelta við Rif