Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2002, Síða 1

Skessuhorn - 20.11.2002, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 46. tbl. 5. árg. 20. nóvember 2002___Kr. 250 í lausasölu Fulltrúaráð sjálfstæð- isfélaganna á Akranesi fundar um prófkjör VQja vísa málinu til miðstjómar Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna á Akranesi kom saman til fundar í gær til að ræða eftirmál prófkjörs sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi en sjálf- stæðismenn á Akranesi telja ómaklega að sér vegið í þeirri umræðu. A fúndinum var sam- þykkt ályktun þar sem fulltrúa- ráðið harmar þá ágalla sem urðu á utankjörfundaratkvæða- greiðslunni en áréttar að fram- kvæmd hennar hafi verið sam- kvæmt bestu vitund þeirra sem að henni stóðu. I ályktuninni segir ennffemur: „ýmislegt hefur komið fram sem styður grunsemdir um að fram- kvæmd prófkjörsins hafi verið á- bótavant víða um kjördæmið. Nefna má: Komið hefúr fram í fjölmiðl- um að kosið hafi verið úti í bæ á Sauðárkróki, í Grundarfirði, á Skagaströnd, í Stykkishólmi og víðar án þess að óskað hafi verið eftir ógildingu þeirra atkvæða með sama hætti og gert var á Akranesi. Við talningu atkvæða kom í ljós að á Vestfjörðum höfðu ein- staklingar, sem ekki fundust á kjörskrá, greitt atkvæði. Það er með öllu óþolandi að Akurnesingar, sem einir hafa viðurkennt ágalla við utankjör- fundaratkvæðagreiðsluna og leiðrétt þá, séu ákærðir og dæmdir á sama tíma og sam- bærilegar aðferðir víðs vegar í kjördæminu eru látnar óátaldar. I ljósi þess sem að framan greinir, svo og þeirrar stað- reyndar að trúnaðarbresmr hef- ur orðið á milli sjálfstæðisfélag- anna í kjördæminu, leggur fúll- trúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi til að framkvæmd próf- kjörs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem ffam fór þann 9. nóvember sl., verði vísað til umfjöllunar miðstjómar Sjálfstæðisflokksins." GE Kosið í efstu sæti á lista framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi Magnús leiðir listann en Páll settur af Eydís Líndal fékk afgerandi kosningu í fjórða sætið 17,55%, Páll Pémrs- son félagsmálaráð- herra í fjórða með 14% og Þorvaldur T Jónsson í Hjarðar- holti í Borgarfirði með 8,55%. Það var því ljóst að aðeins Kristinn og Magnús kæmust áffam í aðra umferð. Magmís Stefánsson leiðir Magnús bar sigur úr lista framsóknarmanna í bítum í þeirri rimmu, NorSvesturkjördæmi. fékk 54,9% atkvæða. Um fjögurhundrað og sextíu fulltrúar fram- sóknarfélaganna í Norð- vesturkjördæmi tóku þátt í kosningu í sex efsm sætd á framboðslista flokksins í komandi al- þingiskosningum á kjör- dæmisþingi sem haldið var að Laugum í Sæl- ingsdal síðasdiðinn laug- ardag. Þrettán ffambjóðend- ur keppm um sex efsm sætín og þar af vora fimm í kjöri um fyrsta sætið. Gríðarleg spenna ríkti á Laugum upp úr hádegi þegar úrslit vora kynnt úr kosningu um fyrsta sætið. Fastlega var búist við að kjósa þyrfiri að minnsta kosti tvisvar en sam- kvæmt reglum um kosninguna þurfti sigurvegarinn að fá að minnsta kosti 50% atkvæða. Til að komast í aðra umferð þurftu ffam- bjóðendur að fá yfir 20%. Kristinn H Gunnarsson alþingis- maður var efstur eftir fyrsm umferð með 33,9% atkvæða. Magnús Stef- ánsson alþingismaður var í öðra sæti með 25,8% atkvæða, Ami Gunnars- son ffá Sauðárkróki í þriðja með Minnst umdeildur „Þetta var ánægjuleg niðurstaða fyrir mig og vonandi fyrir flokkinn einnig,“ sagði Magnús í samtali við Skessuhom þegar úrslit vora ljós. „Mín bíður erfitt verkefni að leiða flokkinn í komandi kosningum í þessu stóra kjördæmi en það er verk- efni sem verður gaman að takast á við. Þetta þing gefur tóninn fyrir það sem koma skal. Hér hefúr ríkt góður andi og þótt að sjálfsögðu sé hart barist við aðstæður sem þessar þá era menn samstíga um að tryggja flokknum brautargengi í komandi alþingiskosn- ingum. Listinn er breiður og góð dreifing bæði hvað varðar aldur, bú- setu og kynjaskiptingu þannig að ég er veralega bjartsýnn," segir Magnús. Aðspurður um hvort hann telji sig hafa sigrað á því að vera minnst um- deildur þeirra frambjóðenda sem kepptu um fyrsta sætið segir Magnús að sér hafi svosem verið legið á hálsi að vera ekki umdeildur. „Það má kannski segja að ég sé umdeildur fyr- ir að vera ekki umdeildur. Eg hef hinsvegar lagt áherslu á að eiga gott samstarf við fólk innan sem utan flokksins og leysa málin með sam- vinnu og í sátt. Það kann að vera skýr- ingin á því trausti sem mér er sýnt hér í dag,“ segir Magnús. Ekki bitur Páll Pétursson kvaðst ekki bitur þrátt fyrir að fylgið hafi verið af skornum skammti. „Eg er aldrei sáttur við að tapa en það er áhættan sem maður tekur við að fara í orr- ustu. Eg er bardagamaður og því verð ég að sjálfsögðu að geta tekið ó- sigri. Þessi niðurstaða þarf kannski ekki að koma á óvart í ljósi nýrrar kjördæmaskipanar. Það dró einnig úr mínum möguleikum að Arni Gunnarsson minn gamli aðstoðar- maður blandaði sér í þessa baráttu og fékk gott fylgi úr Skagafirði en það era atkvæði sem mér hefði ekki veitt af,“ segir Páll en hann gaf ekki kost á sér í örmur sæti á listanum. Kristinn H Gunnarsson fékk ör- ugga kosningu í annað sæti listans í fyrstu tilraun, hlaut 53,8% atkvæða. Ami Gunnarsson hlaut 22,3% Her- dís A Sæmundardóttir 19,2%, og Þorvaldur T Jónsson 4,5% Herdís A Sæmundardóttir hlaut kosningu í þriðja sætið, og Eydís Líndal Finnbogadóttir ffá Akranesi hlaut afgerandi kosningu í fjórða sætið. Ingi Bjöm Amason ffá Skaga- firði var kjörinn í það fimmta. Þá var Albertína Elíasdóttir frá Isafirði kjörin í sjötta sætið. GE Nýr kjör- dagur Kosið verður til bæjarstjórn- ar í Borgarbyggð þann 7. des- ember n.k en sem kunnugt er staðfesti hæstiréttur ógildingu félagsmálaráðuneytisins á úr- slitum kosninganna þann 25. maí sl. Jólagjafa- handbók Með næsta tölublaði Skessu- horns sem kemur út 27. nóv. n.k. mtm fylgja vegleg jólagjafa- handbók sem ætlað er að kynna allt sem verslanir og þjónustu- aðilar á Vesturlandi hafa upp á að bjóða fyrir jólin. Einnigverð- ur í blaðinu ýmislegt efni tengt jólum og aðventu. Blaðið verður í A4 broti og prentað á glanspappír. Af tilefni útgáfúnnar verður Skessuhomi og þar með jólagjafahandbók- inni dreift ffítt í öll hús á Vestur- landi og víðar. Auglýsendum er bent á að panta pláss í tíma en síðasti skilafrestur er á hádegi á þriðjudag. GE miSstöðinni Obal setja upp forvamardag eins ogþau vilja sjá framkvæmd svoleiðis dags í samvinnu við starfsmenn Oðals. Alls ktrmu þama saman 360 unglingar úr 8.-10. bekk 13 skóla og er óhcett að segja að glæsilega hafi til tekist eins ogsvo oft áður á þessum degi. ARA AFMÆLI HYRNUTORGS

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.