Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2003, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 29.01.2003, Blaðsíða 1
Landshlutum gróflega mismunað varðandi styrki til menningarmála Það hefur verið harla fátítt að íbúar á Akranesi hafi þurft að beita sköfunt síntim til að hreinsa snjó afbílum sínum í vetur. Þess gerðist þó þörf í gœr þegar Vetur konungur minnti blíðlega á sig meðfallegum “jólasnjó” nflega mánuði ofseint til að geta borið það nafn. Grundfirðingar taka ekki þátt í framkvæmdum við FVA Stórtíðindi í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi segir Hörðnr Helgason skólameistari FVA Forsvarsmenn menningar- stofnana á Vesturlandi, svo og sveitarstjórnarmenn, eru ekki alltof kátir með úthlutun styrkja til menningarmála á Vesturlandi samkvæmt fjárlögum. Sam- kvæmt samantekt sem unnin var af markaðsskrifstofu Akranes- bæjar úr fjárlögum fyrir árið 2003 eru styrkir til safna á Vest- urlandi 10,2 milljónir á árinu. Ef borið er saman við aðra lands- hluta er Vesturland langlægst. Næst kernur Austurland með 30, milljónir og Vestfirðir með 44,2 milljónir. Styrkir til safna á Norðurlandi eru 54,2 milljónir og söfo á Suðurlandi fá 63,5 milljónir. Af landshlutum utan höfoðborgarsvæðisins eru söfa á Reykjanesi í toppsætinu en þau fá styrki sem nema 73,9 milljón- um króna. Söfa í Reykjavík fá síðan langstærsta styrkinn eða samtals 301,3 milljónir Mörgum þykir að þarna sé verið að mismuna landshlutum gróflega. A bls. 3 er rætt við Gísla Gíslason, Gísla S Einars- son og Sturlu Böðvarsson. GE Olafur á förum Rnattspyrnufélag IA hefar samið við Þórð Þórðarson markvörð um að leika með liðinu næsta sumar. Þórður er þar með þriðji markmaðurinn á samning hjá félaginu en fyr- ir er Olafar Gunnarsson sem hefur verið aðalmarkmaður liðsins síðustu ár og Páll Gísli Jónsson. Sjábls. 15 Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefar samþykkt að sveitarfélagið taki ekki þátt í fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni er fyrirhugað að byggja 1000 m2 viðbyggingu við skólann auk endurbóta á elsta hluta skólans, þ.e. gamla Gagn- fræðaskólanum. Skólayfirvöld hafa leitað eftir þátttöku sveitar- félaganna á Vesturlandi sem eru aðilar að skólanum til að kosta ffamkvæmdimar á móti ríkinu. Björg Agústsdóttir, bæjarstjóri Grundarþarðar segir ákvörðtmina um að taka ekki þátt í umræddum framkvæmdum að sinni tengjast því að sveitarfélögin á Snæfells- nesi séu að vinna að stofaun fram- haldsskóla á Snæfellsnesi. ,JVlér þykja þetta slæmar frétt- ir,“ sagði Hörður Helgason skólameistari FVA þegar blaða- maður innti hann effir viðbrögð- um við ákvörðun Grundfirðinga. „Eg vissi af þessari umræðu en ekki af því að ákvörðun hefði ver- ið tekin þannig að ég get lítið um þetta sagt á þessari stundu. Það er hinsvegar ljóst að þetta era stór- tíðindi í samstarfi sveitarfélag- anna á Vesturlandi. FVA er eitt af stóru samstarfsverkefnunum á þeim vettvangi og ef einhver sveitarfélög ákveða að slíta sig frá því samstarfi eru það ákveðin þáttaskil," sagði Hörður. GE Þorrablótið víkur fyrir úrslitaleik Eins og sagt var frá í Skessuhorni í síðustu viku hefur úrvalsdeildarlið Snæ- fells í körfuknattleik tryggt sér sæti í úrslitum bikarkeppni KKI. Urslitaleikurinn verður laugardaginn 8. febrúar næst- komandi í Laugardalshöll og mæta Hólmarar Keflvíking- um en sömu lið léku til úrslita fyrir tíu árum þegar Snæfell- ingar komust í úrslit í fyrsta og eina skiptið þar til nú. Svo óheppilega vildi til að sama dag og leikurinn á að fara fram voru Hólmarar búnir að skipuleggja sitt ár- lega þorrablót í Hótel Stykk- ishólmi. Þar sem körfaboltaá- huginn er gífurlegur varð þorrablótið að þessu sinni að víkja fyrir úrslitaleiknum en búist er við að mikill fjöldi stuðningsmanna Snæfells fylgi sínum mönnum suður. Samkvæmt heimildum Skessuhoms eiga Snæfelling- ar einnig von á stuðningi víð- ar að því stuðningsmenn margra annara liða mun æda að mæta og styðja Hólmarana í þeirri von að Davíð takist að fella Golíat. Þeir sem ekki eru tilbúnir að fórna súrmetinu alveg fyrir körfaboltann geta huggað sig við að það hefur ekki verið blásið af heldur verður helg- ina effir. Síðan á eftir að koma í ljós hvort Hólmararnir fá tækifæri til að halda tvöfalt teiti og fagna bikarmeist- aratitli um leið. GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.