Skessuhorn - 29.01.2003, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 29. TANUAR 2003
Dutssunui^
Gömlu
slökkvistöð-
inni ráðstafað
Ekki hefur verið tekin á-
kvörðun um framtíðarhlut-
verk gömlu slökkvistöðvar-
innar við Laugarbraut á
Akranesi, en sem kunnugt er
flytur slökkviliðið í nýtt hús-
næði við Kalmannsvelli á
næstunni. Að sögn Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra á
Akranesi var sviðstjórum
tómstunda og forvarnar-
sviðs, menningar- og
fræðslusviðs og íjölskyldu-
sviðs falið að gera tillögur að
nýtingu hússins. „Það er
verið að skoða ýmsa mögu-
leika og fljótlega verður far-
ið yfir þær tillögur sein
koma fram. Menn vilja sjá
fjölbreytta starfsemi þarna
inni og eru in.a. að horfa til
leikfélagsins og handverks-
fólks. Einnig kemur til
greina að þarna verði æf-
ingaaðstaða íyrir hljómsveit-
ir,“ segir Gísli. GE
Mjög góð
loðnuveiði
Loðnuskip Haraldar
Böðvarssonar hf. hafa alls
veitt um 17.500 tonn af
loðnu það sem af er árinu. I
lok janúar í fýrra var aflinn
ríflega helmingi minni eða
um 8000 tonn. Veiðin skipt-
ist þannig á milli loðnuskipa
fyrirtækisins að Víkingur er
kominn með 8000 tonn og
Ingunn 9500. Fyrrnefnda
skipið kom inn til löndunar
á Akranesi í gærmorgun
með 1100 tonn.
HJH
Bætt sund-
aðstaða í
Ólafsvík
Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar lögðu
fulltrúar J-lista ífam tillögu
þess efnis að gerð yrði
kostnaðaráætlun um upp-
byggingu útiaðstöðu með
heitum pottum og sólbaðs-
aðstöðu við Sundlaug Snæ-
fellsbæjar í Olafsvík. Flutn-
ingsmenn tillögunnar telja
að með framkvæmdinni
myndi aðsókn í laugina
aukast til muna, bæði af
heimamönnum og ferða-
mönnum.
Tillagan var samþykkt
samhljóða með þeim fýrir-
varafulltrúa D-listans, að
kostnaðarlega væri fram-
kvæmdin ekki forgangsverk-
efni. GE
Efiit til samstarfs
heilsugæslu og leikskóla
Heilsugœslan á Akranesi
Efht hefur ver-
ið til samstarfs
milli Heilsu-
gæslustöðvarinn-
ar á Akranesi og
leikskólans
Teigasels við
Laugarbraut.
Um er að ræða
tilraunaverkefni
til tveggja ára og
er meginmark-
mið verkefnisins
að koma á mark-
vissu samstarfi
milli þessara að-
ila. Byrjað verð-
ur á að færa
þroskapróf sem
gerð eru á börn-
um 3ja og 1/2 árs
og 5 ára út í leikskólana. Mat á
þroska barnsins fer þannig fram
í því umhverfi sem barnið þekk-
ir, þ.e. hjúkrunarfræðingur
kemur í leikskólann og hittir
barnið og foreldra þess þar.
Koma hjúkrunarfræðings í leik-
skólann verður tvisvar í mánuði
og mun starfsfólk heilsugæslu-
stöðvarinnar sjá um að boða
foreldra til viðtals eftir því sem
við á. Það er von þeirra sem að
þessu samstarfi standa að vel
takist til og er jafnframt fýrir-
hugað að flytja slíkt samstarf
inn í alla leikskóla Akranes-
kaupstaðar.
Frjálslyndir stilla upp í febrúar
Allir stjórnmálaflokkarnir
sem voru í framboði í kjördæm-
unum, sem mynda hið nýja
Norðvesturkjördæmi fýrir síð-
ustu kosningar, nema Frjáls-
lyndi flokkurinn hafa stillt upp
framboðslistum fýrir komandi
Alþingiskosningar. Að sögn
Guðjóns Arnars Kristinssonar
þingmanns Frjálslyndra á Vest-
fjörðum er fundur stjórnar
kjördæmisráðs og nokkurra
annarra aðila fýrirhugaður
9.-10. febrúar næstkomandi að
Reykjum í Hrútafirði. Þar
verður raðað niður á lista og
hann væntanlega kynntur í
kringum 20. febrúar. Guðjón
fékkst ekki til að gefa upp nöfn
hugsanlegra kandidata að öðru
leyti en því að hann kvaðst gefa
kost á í efsta sæti listans. Guð-
jón Arnar er eini þingmaður
Frjálslyndra í kjördæminu á yf-
irstandandi kjörtímabili.
GE
Guðjóii Amar Kristinsson alþingis-
maöur
Heimir Þór ívarsson trillukarl frá Olafsvíkfór á andaveiðar í s.l. viku en hitti þájýrir grágæsir sem mun vera heldur ó-
venjulegt á þessum árstíma. Að sögn Ólafs Einarssonar fuglafræðings hjá Náttúrufræðistofnun eru gæsir mjóg sjaldgæfar á
þessum slóðum eftir lok október þegar flestar slíkar erufamar til vetrarstóðva sinna á Bretlandseyjum. Telur Olafiir að
veðurfarið í baust og vetur hafi ruglað þær í ríminu.
PSJ
Þrjú
umferðar-
óhöpp
vegna
hálku
Þrjú umferðaróhöpp
urðu á svæði lögreglunnar í
Borgarnesi föstudaginn 24.
janúar s.l. og spilaði hálkan
þar stórt hlutverk. Fólks-
bifreið á suðurleið rann út
af veginum í Galtarholtsfló-
anum ofan við Gufuá á
Vesturlandsvegi upp úr há-
deginu. Okumaðurinn
slapp þar með skrekkinn og
litlar skemmdir urðu á bif-
reiðinni.
Um klukkan níu um
kvöldið varð árekstur í
Borgarnesi. Þar var ekið
aftan á bifreið á Borgar-
brautinni. Bifreiðin hafði
verið stöðvuð vegna um-
ferðar á móti. Ökumaður
aftari bifreiðarinnar tók
ekki tímanlega eftir því að
fremri bifreiðin hafði stöðv-
að og náði því ekki að
stöðva sína bifreið sem rann
á þá fremri. Farþegar í
fremri bílnum fengu háls-
hnykk og var ráðlagt að fara
til læknis.
Þá fór björgunarsveitar-
bifreið frá Akranesi út af
Hagavegi inn við Skorra-
dalsvatn. Bifreiðin valt ofan
í vegskurð og hlutu tveir
farþeganna minniháttar
meiðsl. Töluverð hálka var
á veginum sem er þarna
hlykkjóttur og mjór.
Kranabifreið þurfti til að
íjarlægja björgunarsveitar-
bifreiðina af vettvangi.
GE
Fæddist í
sjúkraM
við Kaldár-
mela
Hólmurum fjöglaði um
einn síðastliðinn fimmtudag
þegar ungur drengur kom í
heiminn. Það væri kannski
ekki í frásögur færandi nema
fyrir það að sá stutti hafði
ekki þolinmæði til að bíða
eftir því að móðirin kæmist
á fæðingardeildina. Dreng-
urinn fæddist nefnilega í
sjúkrabílnum við Kaldár-
mela. Samkvæmt heimild-
um Skessuhorns heilsast
móður og barni vel.
GE