Skessuhorn - 29.01.2003, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 2003
9
onlisauiu/^
Islensk þekking virkjuð í
Portúgal og Rúmeníu
Frá opnun Flexilam í Portiígal Mynd: GE
Tuttugu manna hópur frá
íýrirtækinu Límtré af á Flúðum
og Vírnet-Garðastál hf. í Borg-
amesi, dótturfyrirtæki Límtrés,
var viðstaddur vígslu nýrrar lím-
trésverksmiðju í bænum
Mortagua í Portúgal í síðustu
viku. Verksmiðjan, sem ber naín-
ið Flexilam, er að stærstum hluta
í eigu Límtrés hf. og Nýsköpun-
arsjóðs, en þriðji hluthafinn er
ffamkvæmdastjóri fyrirtækisins,
Gestur Bárðarson. Það var Val-
gerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra sem opnaði verksmiðjuna
formlega. Verksmiðjan hefur
verið starfandi á annað ár og gert
er ráð fyrir að hún velti um 300
milljónum íslenskra króna á ári.
Flexilam hefur verið vel tekið á
portúgölskum byggingamarkaði,
að sögn stjórnenda fyrirtækisins,
þrátt fyrir að límtré hafi verið lít-
ið þekkt byggingarefni í Portú-
gal. Verksmiðjan er sú fyrsta
sinnar tegundar í Portúgal.
Hörður Harðarson, stjórnar-
formaður Límtrés og stjórnar-
maður í Vírnet-Garðastál, sagði í
samtali við Skessuhorn að ástæð-
an fyrir þessari útrás fyrirtækisins
væri sú að íslenski markaðurinn
hefði einfaldlega verið orðinn of
lítill. „Meðalstór og stór fram-
leiðslufyrirtæki
á Islandi komast
oft upp í að vera
í stærð sem er
erfitt að breyta
og eiga fárra
kosta völ til að
bæta sinn rekst-
ur nema með
sameiningu við
önnur fyrirtæki
í sambærilegum
rekstri. Það
keinur því í
sumuin tilfell-
um að því að íslenski
markaðurinn verður of lítill og
segja má að það hafi gerst í okk-
ar tilfelli. Við höfum lagt áherslu
á að þreifa okkur áfram með þá
þekkingu sem við höfum og
þessi nýja verksmiðja er árangur
af því. Þessari þróun líkur hins-
vegar aldrei og menn þurfa
stöðugt að leita fyrir sér að nýj-
um tækifærum. Islensk þekking
bíður upp á endalausa möguleika
en menn þurfa að hafa þolin-
mæði til að láta hlutina gerast,“
segir Hörður.
Það er allavega óhætt að segja
að þróuninni sé ekki lokið hjá
fyrirtækinu, því sama dag og
verksmiðjan í Portúgal var opn-
uð lá fyrir jákvætt svar frá
Danska Fjárfestingasjóðnum um
þátttöku í nýju verkefhi í Rúm-
eníu. Þar í landi hyggst Límtré, í
samvinnu við danskt límtrés-
fyrirtæki, opna verksmiðju sem
verður þrefalt stærri en verk-
smiðjan í Portúgal. Gert er ráð
fyrir að verksmiðjan í Rúmeníu
opni í lok þessa árs en þar verður
ekki aðeins framleitt límtré,
heldur einnig yleiningar líkt og
verksmiðjan á Flúðum framleið-
ir og klæðningajárn líkt og er
stór hluti af framleiðslu Vírnets-
Garðastál í Borgarnesi. Það
verður því ekki aðeins sunnlensk,
heldur einnig borgfirsk verk-
menning sem flutt verður til
Rúmeníu. GE
Soroptimistaklúbbur Akraness hélt svokallaðan pönnuk'ókudag á bóndadaginn,
24.janúar sl. Þær stöllur ífélaginu buðu fyrirtækjum á Akranesi upp á nýbak-
aöar pónnukókur og voru viðtökur mjóg góðar en baksturinn var liður ífjáröfl-
un klúbbsins. Klúbburinn, sem fagnar 20 ára staifsafmæli á þessu ári, hefiir í
gegnum tíðina styrktýmis góð málefni, svo sem við að koma upp aðstöðu til
iðjuþjálfunar barna á vegum Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi svo og Sam-
býli fjölfatlaðra.
Soroptimistasystur vildu koma áframfæri hjartans þökkum til allra fyritækja
sem styrktu þær íþágu góðs málefnis. FIJH
Nýr veitingastaður opnaði við Stillholt á Akranesi um síðustu helgi og hefiir
fengið nafnið Cafe 67. Eins og nafinð gefitr til kynna verður ekki einungis um
matsölustað að ræða, heldur verður einnig starfrækt kaffihús á staðnum þar sem
boðið verður uppá súpu og salat. Reiknað er með að opið verði til 1 um helgar
en Cafe 67 hefur fullt vínveitingaleyfi. A myndinni má sjá Gunnar Leif Stef-
ánsson eiganda, ásamt tveimur af starfsmönnum stnum, en myndin er tekin í
teiti sem haldið var á laugardaginn í tilefni opnunarinnar. FIJH
Eftir Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson
Frumsýning: Laugardaginn l.febrúar kl. 17:00
2. sýning: Mánudaginn 3. febrúar kl. 20:00
3. sýning: Þriðjudaginn 4. febrúar kl. 20:00
4. sýning: Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20:00
Miðasala hefst í Grundaskóla tveimur tímum fyrir hverja sýningu.
Einnig er hægt að panta miða í síma 433 1417 og 433 1416
frá 15-17 alla daga á meðan sýningar eru
Miðaverð: kr. 1000
Ath. Gengið verður í hús á næstu dögum og geisladiskur
með lögum úr söngleiknum boðinn til sölu. Verð kr. 1200.