Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2003, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 05.02.2003, Blaðsíða 5
ú>ií£S9UI1Ui. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 2003 5 Samgöngnáætlun til ársins 2014 lögð fram á Alþingi KolgrafarQörður, Svínadalur og Stafholtstungur Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra mælti í gær fyr- ir þingsáfyktunartillögu, um nýja samgönguáætlun, fyrir tímabilið 2003 - 2006. Einnig mælti hann fyrir þingsályktun- artillögu fyrir langtímasam- gönguáætlun sem nær til ársins 2014. Stærstu framkvæmdir vegna samgöngumannvirkja á Vest- urlandi á tímabilinu 2003 - 2006 eru samkvæmt þinsálykt- unartillögunni brúargerð og vegfylling yfir Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi. Framkvæmdir eiga að hefjast á þessu ári og gert er ráð fyrir að þeim sé að mestu lokið árið 2005. Þá er gert ráð fyrir að endurbyggður verði kafli á hringveginum frá Borgarfjarðarbraut að Hrauná á árunum 2004 - 2006. Fram- kvæmdir við bundið slitlag frá Stóra - Asi í Hálsasveit eiga einnig að heíjast á næsta ári og ljúka árið 2005. Ennfremur er gert ráð fyrir að framkvæmdir við Vestíjarðaleið um Svínadal hefjist árið 2006. Fjárveiting í tengivegi er 90 milljónir á þessu ári, samkvæmt þingsályktunartillögunni, en síðan 91 milljón á ári eftir það. Samkvæmt samgönguátæl- uninni verður 106 milljónum varið í ferðamannaleiðir á Vesturlandi á tímabilinu 2003 - 2006. Fjárveitingin er 31 millj- ón í ár og síðan 25 milljónir á ári. Að auki verður 145 millj- ónum varið í endurbætur á Uxahryggjaleið á tímabilinu, 40 milljónum í ár og síðan 35 milljónum á ári. Fyrir er í sjóði 80 milljóna fjárveiting í það verkefni sem ekki hefur verið nýtt. Sturla Böðvarsson Hafhir Framlög til hafna á Vestur- landi, samkvæmt nýrri sam- gönguáætlun fyrir árin 2003 - 2006, eru mest til Olafsvíkur- hafnar og Rifshafhar í Snæ- fellsbæ, samtals 148 milljónir. Akraneshöfh fær 131 milljón í framkvæmdir, Grundarfjarðar- höfn 18 milljónir og Stykkis- hólmshöfn 22 milljónir. Þá er gert ráð fyrir að Arnarstapa- höfn fái um 20 milljónir til framkvæmda á tímabilinu. A þessu ári renna einnig 6 millj- ónir til Borgarneshafnar og 2,7 milljónir til hafnarinnar í Búð- ardal. Langtímaáætlun Auk þeirra verkefna í vega- gerð sem gert er ráð fyrir í samgönguáætlun fyrir árið 2003-2006 gerir langtímaáætl- unin ráð fyrir að lokið verði við endurbyggingu fyrrnefnds kafla hringvegarins um Staf- holtstungur. Einnig er gert ráð fyrir að ljúka gerð vegarins um Svínadal, en framkvæmdir eiga að hefjast árið 2006 og ljúka á tímabilinu 2007 - 2010. Eina nýframkvæmdin, sem gert er ráð fyrir í langtímaáætluninni er endurbygging vegar yfir Fróðárheiði en hún á að hefjast á tímabilinu 2011 - 2014. Þá er 100 milljónum veitt til breikk- unar brúa á Vesturlandi á tíma- bilinu 2007 - 2010 og sama upphæð á árunum 2011 -2014. Ekki er skilgreint nákvæmlega hvaða brýr á að brúa á þessu árabili en brúr á Hítará, Haf- fjarðará og Reykjadalsá eru sérstaklega nefndar. Dalamenn ósáttir við nýja samgöngnáætlun Fra' framkvœmdum viS Bröttubrekku sl. baust. Tillaga að samgönguáætlun var til umræðu á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar. Þar kom fram almenn óá- nægja sveitarstjórnarmanna með að ekki væri gert ráð fyr- ir framkvæmdum í Svínadal fyrr en eftir árið 2006. Eftir- farandi var bókað á fundin- um. „Sveitarstjórn Dala- byggðar samþykkti að mót- mæla þessari málsmeðferð harðlega og skorar á sam- gönguráðherra og þingmenn kjördæmisins að þeir sjái til þess að hafist verði handa við framkvæmdir á Svínadal, strax og framkvæmdum lýkur við Bröttubrekku eins og vilyrði hefur verið gefið um. Einnig verði tekið inn í áætlunina framkvæmdir við veg um Skógarströnd og Laxárdals- heiði. Jafnframt verði gert ráð fyrir framkvæmdum við brýr í Dalasýslu, þannig að þær verði tvíbreiðar eins og t.d. um Laxá, Haukadalsá, Tunguá og Reykjadalsá. Ekki er gert ráð fyrir neinum brú- arframkvæmdum í Dalasýslu í áætluninni eins og hún var lögð fram.“ GE BÍÓ í BORGARNESI Sýnd sunnudaginn 9. feb Kl: 20:00 bönnuð innan 16 ára Akraneskaupstabur Kynningarfundur um deiliskipulag í Flatahverfi, klasa 1 og 2 Kynningarfundur um deiliskipulag í Flatahverfi, klasa 1 og 2, verður haldinn í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, 3.hæð, þriðjudaginn 11. febrúar 2003 og hefst hann kl. 20:30. Skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar f kynnir skipulagið og svarar fyrirspurnum. Akranesi, 3. febrúar 2003. Skipulags- og umhverfisnefnd. 3ja herb. Búseti auglýsir: Búseturéttur til sölu 4ra herb. Lerkigrund 7, Akranesi 80m2 íbúð 302 Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.165.664 Búsetugjald kr. 42.119 Laus maí/júní að ósk seljanda Lerkigrund 7, Akranesi 94m2 íbúð 301 Alm. lán Búsetur. frá 1.343.249 til 3.881.946 Búsetugjald frá 62.11 7 til 77.153 Laus srax að ósk seljanda Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila: Síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða. Úthlutun íbúðanna fer fram mánudaginn 17. febrúar kl. 12:00 - 12:30 ' að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína, að öðrum kosti gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.