Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2003, Page 7

Skessuhorn - 05.02.2003, Page 7
gSESSlíHOBRI MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 2003 7 Einsetningu grunnskólanna á Akranesi lokið Stór stund í sögu skólastarfsins Úr Brekkubœjarskóla. Einsetningu grunnskólanna tveggja á Akranesi er nú form- lega lokið, en framkvæmdir vegna einsetningarinnar eru með viðamestu framkvæmdum Akra- neskaupstaðar í seinni tíð a.m.k. I tílefni þessara tímamóta ræddi Skessuhorn við tvo þeirra sem hafa haft mikið af þessum fram- kvæmdum að segja, þá Pétur Oðinsson sem er formaður framkvæmdanefndar vegna skólabygginga á Akranesi og Inga Steinar Gunnlaugsson sem er skólastjóri Brekkubæjarskóla. Pétur segir ferlið, sem nú er að ljúka, hafa staðið ffá því árið 1999. Framkvæmdir hófust hins- vegar árið eftir. „Það lá fyrir að það þyrfti að byggja við báða skólana og í upphafi var ákveðið að fara þá leið að hafa alútboð fyrir framkvæmdina í heild sinni. Síðan var ákveðið að byrja á Brekkubæjarskóla. Framkvæmd- Pétur Óðinsson um þar lauk árið 2001 og þá var strax farið í að byggja við Grundaskóla og þeim fram- kvæmdum lauk í haust. Þessi leið, að bjóða fram- kvæmdina út í einu Iagi, gafst að mínu mati mjög vel. Helstí kost- urinn er sá að vertakarnir fá færi á að koma með lausn sem hentar bæði kröfum kaupandans og þeirra vinnubrögðum. Þetta hef- ur líka þann kost að allir, sem að verkinu koma, eru undir sama hatti og minni hætta á togstreitu á milli einstakra verktaka. Það auðveldar okkur mikið að halda utan um verkið. Við fengum fjórar tillögur, sem fóru fyrir dómnefod og nið- urstaðan var sú að langhagstæð- asta tílboðið kom ffá Lofforku. Fermetraverðið, með búnaði og öllu tílheyrandi, er í kringum 170 þúsund á fermeter sem er mjög ásættanlegt. Samkvæmt upplýsingum frá byggingardeild Borgarverkffæðings er það um 20 þúsund krónum undir fer- metraverðinu á þeirra svæði. Niðurstaðan er því að við fáum hin ágætustu hús fyrir ásættan- legt verð. Þá er ég ekki eingöngu að tala um viðbyggingarnar sjálf- ar, því hluti af ffamkvæmdinni var endurbætur á því húsnæði sem fyrir var og að laga gömlu byggingarnar að þeim nýju. Ég held að öll aðstaða í báðum skól- unum sé því orðin nánast eins góð og hægt er,“ segir Pétur. Ekki fleiri viðbyggingar Aðspurður um hversu langt fram í tímann sé horff með þess- um ffamkvæmdum segir Pétur að það þurfi allavega ekki að huga að ffekari grunnskólabygg- ingum á næstu árum. „Það var byggt nokkuð umfram þarfir, eða sem nemur tveimur kennslu- stofom í hvorum skóla, enda gert ráð fyrir einhverri fjölgun nem- enda á næstu árum. Eg held hinsvegar að það sé Ijóst að það verður ekki byggt meira við þessa skóla. Þegar að því kemur að hugsa stærra þá held ég að sé ekki spurning um að það verður nýr skóli. Það er aldrei gott að byggja svona mikið við í þetta mörgum áföngum, þótt þetta sé leið sem flestír hafa orðið að fara, enda hefor það verið reglan að skólahúsin hafa stækkað með bæjunum. Hvar nýr skóli kemur tíl með að rísa veit ég hinsvegar ekki en það er vonandi nægur tími til að spá í það.“ Pétur segir að þótt fram- kvæmdum sé lokið sé enn óleyst hvernig mötuneytismálum verði háttað í ffamtíðinni. „Ein hug- myndin er sú að hafa eitt eldhús fyrir alla skólana, þ.e. grunnskól- ana og leikskólana eða útbúa mat á hverjum stað fyrir sig. I dag er boðið upp á léttan hádegisverð í skólanum, en menn hafa verið að velta fyrir sér að bjóða upp á heitar máltíðir. Þær hugmyndir hafa fengið jákvæðar undirtektir foreldra, en ef það verður ákveð- ið er spurning hvaða leið verður farin. Það kæmi tíl greina að byggja eldhús sem jafavel byði upp á þjónustu fyrir fleiri aðila eða að bjóða þesssa þjónustu út. Þetta eru hinsvegar mest vanga- veltur enn sem komið er.“ Þrátt fyrir að ffamkvæmdum við grunnskólana sé lokið er framkvæmdanefndin ekki laus allra mála. „Það má segja að nefadin hafi verið klöppuð upp því hún hefur nú fengið það verkefni að stýra ffamkvæmdum við leikskólann Vallarsel. Þar liggur fyrir stækkun um þrjár deildir sem á að vera tilbúin í nóvember. Þar verður hinsvegar farin önnur Ieið og hönnuðirnir valdir fyrst og verkið síðan boðið út. Það má segja að það sé dýr- mæt reynsla fyrir sveitarfélagið að geta borið þessar leiðir saman með þessum hætti,“ segir Pétur. Ingi Steinar Gunnlaugsson Fjölmargir kostir Ingi Steinar Gunnlaugsson, skólastjóri Brekkubæjarskóla, segir einseminguna vera lang- þráðan áfanga fyrir alla sem tengjast skólastarfi á Akranesi, hvort sem er kennara, nemendur eða foreldra. „Kostimir era nátt- uralega augljósir, þar sem nem- endur era nú allir í skóla á þeim tíma sem hentar betur tíl náms. Auk þess eru skóladagar nem- enda samfelldir og þeir fá mat í skólanum, þannig að þeir geta mætt á morgnana og þurfa ekki að fara héðan fyrr en kennslu lík- ur. Nemendurnir þurfa því ekki að vera á stöðugu flakki á milli skóla og heimilis eða að drepa tímann á milli kennslustunda. Tíminn nýtist þeim því betur og foreldrar þurfa síður að hafa áhyggjur." Ingi Steinar segir að vinnuað- staða nemenda og kennara einnig hafa einnig bamað til muna með einsetningunni. „Hver bekkjardeild hefur núna sína stofu og því hefor verið hægt að aðlaga húsgögn og inn- réttingar því sem hentar hverjum aldurshópi. Þá verða störf kenn- ara markvissari og það ættí að tryggja betri árangur. Það er því óhætt að segja að þetta sé stór á- fangi fyrir okkur,“ segir Ingi Steinar. GE INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 NÝTTÁ SÖLUSKRÁ ARNARKLETTUR 23, BORGARNESI Nýttraðhús. íbúð 116,1 ferm. ogbílskúr33,l ferm. Húsið « selst fullbúið fyrir utan gólfefni. I húsinu er forstofa, hol, f stofa, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherb. og sólstofa. | Gólf í bílskúr flísalagt. Hellulagt fyrir framan húsið. Húsið | er til afhendingar fljótlega. Verð: kr. 18.500.000 Sýslumaðurinn í Borgarnesi Uppboð Eftirtaldar bifreiöar verða boðnar upp við lögreglustöðina í Borgarnesi, föstudaginn 14. febrúar 2003 kl. 15:00, hafi þær ekki verið afturkallaðar. UP-358 TB-681 KV-118 1 DL-623 US-502 UY-485 í KJ-096 YS-138 JR-159 X Borgarnesi 4. febrúar 2003 Sýslumaðurinn í Borgarnesi ib NOVARTIS Nicotinell Njóttu lífsins reyklaus! VIKUTILBOÐ 15% afsláttur af öllum Nicotineli lyfjum í Borgarnes Apóteki plúsap www.plusapotek.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.