Skessuhorn


Skessuhorn - 26.11.2003, Síða 1

Skessuhorn - 26.11.2003, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 46. tbl. 6. árg. 26. nóvember 2003 Kr. 250 í lausasölu Samgönguráðherra vill aukna uppbygg- ingu á Hvanneyri Þetta vakti athygli manna þegar Sturla Böðvarsson flutti ávarp við vígslu nýs skrifstofu- húsnæðis á Hvanneyri á dögun- um. Samgönguráðherra notaði tækifærið til að hvetja þingmenn norðvesturkjördæmis til að beita sér fyrir því að flytja hluta af starfsemi Rannsóknarstofnunar Landbúnaðarins við Keldnaholt að Hvanneyri. „Það er alveg ljóst að undir forystu Magnúsar B. Jónssonar hefur staðan styrkst. Hvanneyri á mikla möguleika til að styrkja stöðu sína enn ffekar með höfuðborg- arsvæðið nánast í túnfætinuin. Utþensla höfuðborgarinnar þrengir að starfseminni á Keldnaholti og því tel ég að það væri í þágu aukinna hagkvæmni að nýta aðstöðuna á Hvanneyri til rannsókna," sagði Sturla Böðvarsson í samtali við Skessu- horn. Aukin uppbygging há- skólasamfélagsins í Borgarfirði hefur gert það að verkum að meiri möguleiki er að fá fært starfsfólk. Sturla segist ekki hafa Jólagjafa- handbók 16 síðna jólagjafahandbók fylgir Skessuhomi í dag. Þar kynna kaupmenn flest af því sem Vestlendingar ættu að þurfa fýrir jólin auk þess sem þar er að finna ýmiskonar fróðleik og annað jólatengt efni. Sturla BöSvarssm samgönguráðheiTa. fengið nein viðbrögð firá þing- mönnum kjördæmisins en hins vegar mjög góð viðbrögð ffá forsvarsmönnum landbúnaðar- ins í héraðinu. Magnús B. Jóns- son rektor LBH sagðist ánægð- ur með hugmyndir ráðherra og telur að auknar rannsóknir myndu styrkja stofnunina enn ffekar. Astar- stemning í Logalandi Lagið Astarstemning eftir Olaf Flosason í flutningi Halla Melló sigraði í Dæg- urlagasamkeppni Umf Reykdæla á laugardags- kvöldið. Sjá bls 11. S Asatrúarmenn líta hýru auga til Akraness Þegar ásatrúarmenn blótuðu nú í haust heimsóttu þeir m.a. Steinasafnið á Akranesi. I þeirri heimsókn kviknaði áhugi þeirra á að reisa sér hof á Akra- nesi. Nú hefur Haukur Hall- dórsson myndlistarmaður gert líkan að hofi sem hann vill láta reisa við Safnasvæðið á Görð- um. Um er að ræða hringlaga hof sem gert er með hliðsjón að lýsingum á fornum hofum sem rekið væri í tengslum við veitingamann og opið almenn- ingi. Hofið væri jafnframt blótsstaður ásatrúarmanna, þrungið táknum með myndum úr Eddukvæðum á veggjum og hurðum í höfuðáttir. Haukur Halldórsson sagðist í samtali við Skessuhorn vera sannfærður um að slíkt hof myndi hafa gríðarleg áhrif á Skagamaðurinn Garðar Gurmlaugsson Herra Island Líkanið af hofmu sem ásatrúarmenn vilja reisa á Akranesi. ferðamannstraum til Akraness. „Annaðhvort reynum við að ná túristunum inn eða látum þetta vera. Það hefði mikil áhrif að vera fyrstir með gamalt hof og er enginn staður betur til þess fallinn en Akraness því þar hef- ur alltaf verið kristni,“ sagði Haukur. Krismir menn numu Akranes og kristin trú verið þar ríkjandi allar gömr síðan. Hug- myndir um hofið hafa ekki fengið formlega umfjöllun á Akranesi og því óljóst hvort af síðbúnu trúboði ásatrúarmanna verði. Garðar Gunnlaugsson. Knattspyrnumaður- inn knái Garðar Berg- mann Gunnlaugsson var kjörinn Herra Is- land á Broadway á fimmrndaginn var úr hópi 18 keppenda. Garðar var einnig val- inn Zirh-herrann. Keppnin var sýnd beint á Stöð 2 og gafst áhorfendum tækifæri á að greiða atkvæði með símakosningu. Eins og greint var frá í Skessuhorni fyr- ir nokkru voru keppendur leiddir fýrir dóm hrútavinafé- lagsins Hreðja á Hvanneyri. Mikil leynd hefur hvílt yfir nið- urstöðum hrútavinafélagsins til að koma í veg fýrir áhrif á keppnina sjálfa. Garðar kom reyndar ákaflega vel út þar, fékk 84 stig eða 1. verðlaun A og deildi öðm sætinu. Allar bækur & geisladiskar með afslætti Góður kostur ið kl. 9-19 virka daga Laugardaga kl. 10-19 Sunnudaga kl. 12-19

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.